Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Myndir: Jákvæðir nei-sinnar fjölmenntu

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 17.7.2026 | 17:33 Myndir: Jákvæðir nei-sinnar fjölmenntu Halldór Benjamín Þorbergsson var fundarstjóri í Brekkubæjarskóla þar sem fjöldi fólks kom saman á fundi Áfram Ísland. mbl.is/Anton Brink Kjartan Leifur Sigurðsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Sérlausn vegna flugs framlengd til 2030 Ljótt að feta í sama farveg „Grimm hagsmunagæsla“ kostar þjóðarbúið Áttunda stækkunarlotan hjá ESB Beint: Fundur Áfram Ísland á Akranesi » Fleiri tengdar fréttir Húsfyllir var í Brekkubæjarskóla á Akranesi síðdegis í gær er borgarafundur Áfram Ísland-hreyfingarinnar fór þar fram. Var þetta annar opni fundur hreyfingarinnar en stofnfundurinn fór fram í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll í síðustu viku. Hyggst hreyfingin standa fyrir fundum sem þessum um land allt næstu vikurnar. Ræðumenn voru Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, Valdís Marselía Þórðardóttir tannlæknir og Álfheiður Ágústsdóttir, forstjóri Elkem á Íslandi. Halldór Benjamín Þorbergsson hagfræðingur var fundarstjóri eins og í Sjálfstæðissalnum í síðustu viku. Frétt af mbl.is Ljótt að feta í sama farveg Uppeldisárin á Snæfellsnesi mótandi Halldór Benjamín steig fyrstur á svið og kom inn á að í gær voru 17 ár liðin frá því að ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur sótti um aðild að Evrópusambandinu. Sagði hann svo að þeir sem tilheyrðu hreyfingunni væru „jákvæðir nei-sinnar“, sem að hans sögn þýðir að vera jákvætt fólk sem trúir á íslenska framtíð. Álfheiður Ágústsdóttir hóf ræðu sína á því að minnast uppeldisára sinna í Grundarfirði, þar hefði hún alist upp í samfélagi þar sem enginn þurfti að útskýra hvað verðmætasköpun væri og af hverju hún skipti máli. Skagamenn fjölmenntu í Brekkubæjarskóla. mbl.is/Anton Brink Í samtali við Morgunblaðið eftir fundinn sagði Álfheiður störf sín fyrir fyrirtæki í útflutningi hafa eflt sannfæringu sína um að Ísland ætti að standa utan Evrópusambandsins. „Það er mjög mikilvægt að við höfum yfirráð yfir okkar auðlindum og getu til að taka ákvarðanir sem tryggja samkeppnishæfni okkar,“ sagði Álfheiður við blaðamann. Elkem varð fyrir barðinu á verndartollum sambandsins á kísiljárn og sagði Álfheiður að það gæti kennt okkur að stóru ríkin í Evrópusambandinu verðu sína hagsmuni og hvort sem Ísland stæði innan eða utan sambandsins væri hætt við að hagsmunir okkar yrðu undir, vegna smæðar okkar. Gestirnir hlýddu á ræðurnar. Ljósmynd/víkingur Magnússon Af hverju að breyta um stefnu? Valdís sagði það hafa komið sér á óvart að vera boðið að fara með ræðu á fundinum. Hún hefði þó áttað sig á því að umræðan snerist ekki bara um stjórnmál, heldur snerist hún um fólk, fjölskyldur, fyrirtækin og hvaða land við ætluðum okkur að skilja eftir fyrir börnin. Valdís benti á að vissulega væri Ísland ekki fullkomið, hér væri glímt við verðbólgu, háa vexti, húsnæðisvanda og „skítaveður á sumrin“. Þegar hún horfði á stóru myndina sæi hún þó land þar sem atvinnuleysi væri lítið, atvinnuþátttaka með því mesta í heiminum og kaupmáttur hefði vaxið hratt, auk þess sem stærra hlutfall fólks byggi í eigin húsnæði hér en annars staðar í Evrópu. „Þá spyr ég mig, ef Ísland stendur svona sterkt, af hverju ættum við þá að breyta um stefnu?“ Hreyfingin samanstendur að sögn Halldór Benjamíns af jákvæðum nei-sinnum. mbl.is/Anton Brink Valdís sagðist telja að sem flestar ákvarðanir um Ísland ættu að vera teknar á Íslandi, ekki vegna þess að við hefðum alltaf rétt fyrir okkur, heldur vegna þess að þeir sem tækju ákvarðanirnar ættu að bera ábyrgð gagnvart íslensku þjóðinni. Að lokinni ræðu Valdísar kynnti Halldór Benjamín Vilhjálm á svið en þeir tókust oft harkalega á í kjaraviðræðum þegar Halldór Benjamín var framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Hóf Vilhjálmur ræðu sína á því að benda á að hérlendis væru 90,6% launafólks í stéttarfélögum en meðaltalið væri 18,2% í Evrópu. Að sögn Vilhjálms mældist styrkur íslenskrar verkalýðshreyfingar í öllum gögnum enda væru laun hér á landi hæst meðal ríkja OECD að teknu tilliti til kaupmáttar. Fundir sem þessir á vegum Áfram Ísland munu fara fram um land allt. mbl.is/Anton Brink Sagði Vilhjálmur það vera blekkingu að halda því fram að vextir og verðbólga myndu lækka samstundis við það eitt að ganga inn í Evrópusambandið. Ísland þyrfti áður en til aðildar kæmi að ná vöxtum og verðbólgu niður hér og afnema verðtryggingu af sjálfsdáðum. „Ef við þurfum að gera þetta allt sjálf til að taka upp evru, til hvers þurfum við þá að ganga í Evrópusambandið?“ Álfheiður Ágústsdóttir, forstjóri Elkem á Íslandi, flutti ræðu. mbl.is/Anton Brink Valdís Marselía Þórðardóttir tannlæknir flutti ræðu. mbl.is/Anton Brink Þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram 29. ágúst. mbl.is/Anton Brink Vilhjálmur Birgisson verkalýðsforingi. mbl.is/Anton Brink Ólafur Adolfsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins var á fundinum. Ljósmynd/Víkingur Magnússon Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Ísland og ESB Sérlausn vegna flugs framlengd til 2030 Ljótt að feta í sama farveg „Grimm hagsmunagæsla“ kostar þjóðarbúið Áttunda stækkunarlotan hjá ESB Beint: Fundur Áfram Ísland á Akranesi » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Myndir: Jákvæðir nei-sinnar fjölmenntu Salah lækkar launakröfur sínar Lönduðu þeim þúsundasta í Þverá í morgun UEFA fer ekki sömu leið og FIFA Stórbruni í Drammen í Noregi Umræðan Það þarf að taka slaginn fyrir Ísland Samkeppni og lífskjör Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skynsamlegt hjá Bandaríkjaþingi: Íslendingar á röngum tíma Ekki hægt að breyta skráningunni Stúlkan er fundin heil á húfi Viðvarandi vandamál í áratugi Mest lesið Í gær Í vikunni Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Biðraðir á nýrri brú Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Þyrlan flutti slasaðan mann úr Glerárdal Gögn frá lögreglu ófullnægjandi Uppsveiflan kemur á óvenjulegum tíma Óeðlileg afskipti lögreglunnar á Flateyri Léttir til vestanlands eftir hádegi Ljótt að feta í sama farveg Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Spara mætti milljarða Þrjú ár fyrir nauðgun á skjólstæðingi Skýringar Péturs þóttu ekki fullnægjandi Máli slökkviliðsstjórans vísað til lögreglu Stúlkan er fundin heil á húfi „Það var ekkert að hjólinu“ Hundruðum eldri nemenda vísað frá Þrír fengu eftirlitsskýrslur MAST Almar nýr formaður Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Hitamet sumarsins fallið Stefnir í mesta hita ársins um helgina Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Einn fær 552,5 milljónir „Það er eitthvað að gerast hérna í Reykjavík“ Nýjast á mbl.is » Myndir: Jákvæðir nei-sinnar fjölmenntu Salah lækkar launakröfur sínar Lönduðu þeim þúsundasta í Þverá í morgun UEFA fer ekki sömu leið og FIFA Stórbruni í Drammen í Noregi Umræðan Það þarf að taka slaginn fyrir Ísland Samkeppni og lífskjör Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Staðan verri áður en skýrslan var unnin Sparkvöllurinn rís ekki í bili Ekki hægt að breyta skráningunni Þrjú ár fyrir nauðgun á skjólstæðingi Mest lesið Í gær Í vikunni Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Biðraðir á nýrri brú Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Þyrlan flutti slasaðan mann úr Glerárdal Gögn frá lögreglu ófullnægjandi Uppsveiflan kemur á óvenjulegum tíma Óeðlileg afskipti lögreglunnar á Flateyri Léttir til vestanlands eftir hádegi Ljótt að feta í sama farveg Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Spara mætti milljarða Þrjú ár fyrir nauðgun á skjólstæðingi Skýringar Péturs þóttu ekki fullnægjandi Máli slökkviliðsstjórans vísað til lögreglu Stúlkan er fundin heil á húfi „Það var ekkert að hjólinu“ Hundruðum eldri nemenda vísað frá Þrír fengu eftirlitsskýrslur MAST Almar nýr formaður Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Hitamet sumarsins fallið Stefnir í mesta hita ársins um helgina Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Einn fær 552,5 milljónir „Það er eitthvað að gerast hérna í Reykjavík“

Share this article