Hreyfingin Áfram Ísland, sem telur hagsmunum Íslands best borgið utan Evrópusambandsins, heldur opinn fund í Brekkubæjarskóla á Akranesi í dag sem hefst kl. 17:00. Nálgast má streymi af fundinum hér að neðan. Ræðumenn á fundinum verða Álfheiður Ágústsdóttir, forstjóri Elkem á Íslandi, Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness og Valdís Marselía Þórðardóttir, tannlæknir, móðir og áhrifavaldur. Fundarstjóri verður Halldór Benjamín Þorbergsson, hagfræðingur og forstjóri Heima fasteignafélags. Þetta er annar fundur hreyfingarinnar sem var stofnuð í sumar. Á fyrri fundi Áfram Ísland, sem fór fram í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll 6. júlí sl., héldu Björn Zoëga læknir, Lára Herborg Ólafsdóttir, lögmaður og sérfræðingur í tæknirétti, og Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, ræður.