Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Ekki eitthvað úrhrak með hræðilegt leyndarmál

Read Full Article →

Innlent | mbl | 17.7.2026 | 21:20 Ekki eitthvað úrhrak með hræðilegt leyndarmál Setja bókamerki Tengdar fréttir Dagmál Reglufargan borgarinnar kæfir skemmtanalífið Nei/Já: hvað á að leggja áherslu á Óeðlileg afskipti lögreglunnar á Flateyri Áfengisgjöldin þau hæstu í heimi Þungavigtarbardagi sem gæti ráðist í vítaspyrnukeppni » Fleiri tengdar fréttir „Ég beið bara alltaf eftir að þetta hætti, að ég myndi einhvern veginn breytast,“ segir tónlistarkonan Róberta Andersen þegar hún rifjar upp hvernig hún glímdi lengi við eigin kynhneigð áður en hún kom út úr skápnum og reyndi ítrekað að bíða hana af sér. Róberta er gestur Ásthildar Hannesdóttur í Dagmálum í dag ásamt söngkonunni Helgu Margréti Clarke en þar ræða þær meðal annars reynslu sína á því að vera hinsegin tónlistarkonur. Í aðdraganda Hinsegin daga, sem fram fara 4.-9. ágúst, standa þær fyrir tónleikum, Hinsegin hádegistónum , á Bókasafninu í Kópavogi, þar sem þær koma til með að leika lög eftir hinsegin tónskáld og tónlistarfólk. Helga Margét Clarke og Róberta Andersen segja sýnileika hinsegin fólks mikilvægan. Samsett mynd/mbl.is/Hallur Már/Eggert Sýnileikinn mikilvægur Kveikjan að tónleikunum er að þeirra sögn aðallega sú að viðhalda sýnileika hinsegin fólks og heiðra framlag þeirra til menningar- og mannkynssögunar fram til þessa. Róberta segir að skortur á sýnileika og fyrirmyndum hafi haft áhrif á sjálfsmynd sína á yngri árum. Mikil vinna hafi fylgt því að styrkja sjálfsmyndina og þora að koma til dyranna eins og hún var klædd. „Ég held alla fyrir mína parta þá hefði alveg liðið betur ef það hefði verið meiri sýnileiki þegar ég var að alast upp og þetta hefði verið meira inni í hausnum á mér sem mengi þess að vera manneskja, partur af eðlilegu mengi þess að vera manneskja í litrófi tilverunnar einhvern veginn.“ Leið eins og hún bæri risastórt leyndarmál Róberta segir að það hafi skipt miklu máli að sjá annað hinsegin fólk og átta sig á því að hún væri ekki ein. „Það að sjá annað hinsegin fólk hjálpar manni að meðtaka þetta. Að maður þurfi ekki að loka sig af og líða eins og maður sé eitthvert úrhrak með eitthvað hræðilegt leyndarmál sem enginn má vita um.“ Hún segir að það hafi tekið langan tíma að vinna úr þessum tilfinningum sem þó hafi orðið auðveldara með hverju skrefinu sem tekið hafi verið. „Mér leið þannig mjög lengi og það var rosa vesen fyrir mig að vinna úr því. Það tók mig mjög langan tíma.“ Að horfast í augu við sjálfan sig Þegar Róberta er spurð hvernig hún hafi tekist á við þessar tilfinningar segir hún að fyrsta skrefið hafi verið að horfast í augu við sjálfa sig. „Ég þurfti bara að setjast niður og taka þetta alvarlega. Ég beið alltaf eftir að þetta hætti,“ lýsir hún en segir þetta hafa verið mikla vinnu og ferli sem ekki hafi gerst á einni nóttu. „Maður þarf bara að taka ákvörðun um að stíga skrefið og bara gera þetta, ef að maður kemst að því fyrir sjálfan sig að þetta sé það sem maður þarf að gera og ég komst að,“ lýsir hún. „Þetta gerðist ekki á einni nóttu og var mjög „gradual“ hjá mér og ég fann bara alltaf að mér leið betur með öll skref sem ég tók út úr skápnum. Það styrkti mig í því að halda áfram í því að hætta að vera í skápnum.“ Mannréttindi hinsegin fólks ekki sjálfgefin Helga Margrét tekur undir mikilvægi sýnileika og segir að fleiri fyrirmyndir hefðu líklega styrkt sjálfsmynd hennar á yngri árum. „Ég var alveg frekar lengi að koma út úr skápnum sem samkynhneigð kona. Ég get ímyndað mér að það hefði verið auðveldara ef ég hefði haft fyrirmyndir og ef það hefði verið meiri sýnileiki og meiri jákvæðni gagnvart því að vera hinsegin,“ segir hún og báðar meta þær svo að staða hinsegin fólks hafi batnað hér á landi á undanförnum árum, en benda jafnframt á að mannréttindi séu aldrei sjálfgefin og að þrátt fyrir að bakslög verði sé mikilvægt að halda haus. „Eins og með öll mannréttindi þá þarf alltaf að halda þeim á lofti og berjast fyrir þeim. Við erum alltaf bara einum kosningum frá því að glata ákveðnum mannréttindum á hverjum tíma,“ segir Róberta. Smelltu á hlekkinn hér að neðan til að horfa á viðtalið við þær Helgu Margréti og Róbertu í heild sinni. „Meiri neikvæðni nú en oft áður í garð hinsegin fólks“ Tengdar fréttir Dagmál Reglufargan borgarinnar kæfir skemmtanalífið Nei/Já: hvað á að leggja áherslu á Óeðlileg afskipti lögreglunnar á Flateyri Áfengisgjöldin þau hæstu í heimi Þungavigtarbardagi sem gæti ráðist í vítaspyrnukeppni » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Ekki eitthvað úrhrak með hræðilegt leyndarmál Öruggur sigur Fylkis á Njarðvík Tottenham hafnar tilboði í unga Svíann Þróa forspárlíkön sem gefa kaup- og sölumerki Leiðir eftir sögulegan hring á Opna breska Umræðan Það þarf að taka slaginn fyrir Ísland Samkeppni og lífskjör Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Mikill verðmunur milli sundlauga Ljótt að feta í sama farveg Sérlausn vegna flugs framlengd til 2030 Viðvarandi vandamál í áratugi Mest lesið Í gær Í vikunni Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Biðraðir á nýrri brú Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Þyrlan flutti slasaðan mann úr Glerárdal Gögn frá lögreglu ófullnægjandi Uppsveiflan kemur á óvenjulegum tíma Óeðlileg afskipti lögreglunnar á Flateyri Léttir til vestanlands eftir hádegi Ljótt að feta í sama farveg Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Spara mætti milljarða Þrjú ár fyrir nauðgun á skjólstæðingi Skýringar Péturs þóttu ekki fullnægjandi Máli slökkviliðsstjórans vísað til lögreglu Stúlkan er fundin heil á húfi „Það var ekkert að hjólinu“ Hundruðum eldri nemenda vísað frá Þrír fengu eftirlitsskýrslur MAST Almar nýr formaður Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Hitamet sumarsins fallið Stefnir í mesta hita ársins um helgina Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Einn fær 552,5 milljónir Nýjast á mbl.is » Ekki eitthvað úrhrak með hræðilegt leyndarmál Öruggur sigur Fylkis á Njarðvík Tottenham hafnar tilboði í unga Svíann Þróa forspárlíkön sem gefa kaup- og sölumerki Leiðir eftir sögulegan hring á Opna breska Umræðan Það þarf að taka slaginn fyrir Ísland Samkeppni og lífskjör Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skynsamlegt hjá Bandaríkjaþingi: Íslendingar á röngum tíma Umferðaröryggi ávallt í fyrirrúmi Uppsveiflan kemur á óvenjulegum tíma Viðartittlingur kallar á nefndarálit Mest lesið Í gær Í vikunni Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Biðraðir á nýrri brú Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Þyrlan flutti slasaðan mann úr Glerárdal Gögn frá lögreglu ófullnægjandi Uppsveiflan kemur á óvenjulegum tíma Óeðlileg afskipti lögreglunnar á Flateyri Léttir til vestanlands eftir hádegi Ljótt að feta í sama farveg Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Spara mætti milljarða Þrjú ár fyrir nauðgun á skjólstæðingi Skýringar Péturs þóttu ekki fullnægjandi Máli slökkviliðsstjórans vísað til lögreglu Stúlkan er fundin heil á húfi „Það var ekkert að hjólinu“ Hundruðum eldri nemenda vísað frá Þrír fengu eftirlitsskýrslur MAST Almar nýr formaður Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til MAST: Hætta skal notkun pönnunnar umsvifalaust Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Hitamet sumarsins fallið Stefnir í mesta hita ársins um helgina Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Einn fær 552,5 milljónir

Share this article