Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Jaðarhegðun að nenna að mála yfir regnbogafánann

Read Full Article →

Innlent | mbl | 21.7.2026 | 10:30 Jaðarhegðun að nenna að mála yfir regnbogafánann Ásthildur Hannesdóttir - [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Dagmál Uppáhalds Þjóðhátíðarlög brekkusöngvarans Reglufargan borgarinnar kæfir skemmtanalífið Ekki eitthvað úrhrak með hræðilegt leyndarmál Nei/Já: hvað á að leggja áherslu á Óeðlileg afskipti lögreglunnar á Flateyri » Fleiri tengdar fréttir Söngkonan Helga Margrét Clarke og gítarleikarinn Róberta Andersen ræddu stöðu hinsegin fólks í Dagmálum á dögunum. Sögðust þær báðar finna fyrir því sem oft hefur verið kennt við bakslag í umræðunni um málefni hinsegin fólks en í þættinum töluðu þær einnig um mikilvægi sýnileika hinsegin fólks til að auka fræðslu og draga úr fordómum. Ætla þær sér einmitt að leggja hönd á plóg við að viðhalda sýnileikanum og standa því fyrir tónleikum í aðdraganda Hinsegin daga þar sem þær hyggjast einungis leika tónlist eftir hinsegin tónlistarfólk með það að markmiði að skemmta og fræða. „Það er engin ógn sem stafar af því að vera hinsegin. Samt er reynt að finna eitthvað, hvort sem það eru fánarnir, fræðslan eða annað. Það er svo mikil upplýsingaóreiða í gangi og oft eru það einstaklingar sem hafa enga innsýn í það hvernig það er að vera hinsegin sem hafa mjög háværar skoðanir á þessum litla hópi fólks,“ segir Helga Margrét. Róberta Andersen og Helga Margrét Clarke finna fyrir bakslaginu sem orðið hefur í málefnum hinsegin fólks. Samsett mynd Bakslagið vel sýnilegt Aðspurðar hvort þær telji að bakslag hafi orðið í umræðu og baráttu hinsegin fólks síðustu misseri segjast þær báðar upplifa, sjá og finna fyrir breytingum. Meðal annars í tengslum við skiptar skoðanir og andúð á regnbogafánanum og hinsegin fræðslu í skólum, svo eitthvað sé nefnt. „Mér finnst miklu meiri neikvæðni núna í garð hinsegin fólks heldur en var hérna áður, allavega háværari raddir. Það er meira áberandi og maður sér til dæmis skemmdarverk eins og varðandi fánana,“ segir Helga Margrét og vísar til skemmdarverksins sem unnið var á regnbogafánanum við kirkjutröppurnar við Grafarvogskirkju í byrjun júlímánaðar. Þannig í rauninni er bakslagið áþreifanlegt fyrir ykkar hóp? „Allavega sýnilegt, já,“ svarar hún jafnframt. Róberta segir þó að þeir sem standi fyrir slíkum gjörðum séu fámennur hópur. „Ég myndi halda það. Ég meina, það er sem betur fer mjög mikil jaðarhegðun í dag að nenna að standa í því að mála íslenska fánann yfir hinsegin fánann. Þú þarft að passa að þetta sé rétt „shade“ af bláum, rauðum og hvítum. Og helst þarftu að blanda málninguna við sand líka svo að fólk meiði sig ekki og renni ekki í tröppunum. Þetta er alveg smá fyrirtæki. Það þarf að kaupa málningu, rúllur og bakka og málningarteip. En ég held að það hefði verið óhugsandi fyrir nokkrum árum að einhverjum dytti þetta í hug.“ Frétt af mbl.is Ekki eitthvað úrhrak með hræðilegt leyndarmál Fólk leyfi sér meira nú en áður Hún segir slíkar aðgerðir engu að síður sýna að tónninn í samfélagsumræðunni hafi breyst og það ekki til hins betra. „Þannig birtist bakslagið í raun og veru, að fólk segir og gerir hluti sem það hefði kannski ekki leyft sér fyrir nokkrum árum.“ Róberta bendir þó jafnframt á að aukinn sýnileiki geti að hluta til skýrt þessi viðbrögð. „Það má heldur ekki gleyma því að kirkjan var ekki að mála hinsegin merki á byggingar sínar fyrir nokkrum árum. Þannig að þetta er kannski líka afleiðing af auknum sýnileika og auknum réttindum.“ Smelltu á hlekkinn hér að neðan til að nálgast viðtalið við þær Helgu Margréti og Róbertu í heild sinni. „Meiri neikvæðni nú en oft áður í garð hinsegin fólks“ Tengdar fréttir Dagmál Uppáhalds Þjóðhátíðarlög brekkusöngvarans Reglufargan borgarinnar kæfir skemmtanalífið Ekki eitthvað úrhrak með hræðilegt leyndarmál Nei/Já: hvað á að leggja áherslu á Óeðlileg afskipti lögreglunnar á Flateyri » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Feðgarnir sameinaðir Einn handtekinn grunaður um nauðgun á Gothia Cup Minnstu neyðarbirgðir í 43 ár Myndskeiðin af Trump og Yamal fölsuð Jaðarhegðun að nenna að mála yfir regnbogafánann Umræðan Gjörbreytt menntakerfi Varanlegar undanþágur eru ekki á boðstólum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hefði aldrei verið samþykkt í dag „Skelfileg og vanhugsuð breyting“ Bjarni kallar eftir útskýringu Jetten neitar tali um undanþágur Mest lesið Í gær Í vikunni Rannsókn vegna andlátsins hætt „Skelfileg og vanhugsuð breyting“ Enginn haft samband vegna skrúfunnar Ekki á boðstólum ESB Varð að leggja út 800.000 krónur í gistingu Afstaða Frakklands óljós Þrjú ár líða hratt í flugbransanum Myndir: Opnunarhátíð landsmóts skáta Þrjú farþegaskip lágu við bryggju í Hafnarfjarðarhöfn í fyrsta sinn Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá Röng frétt leiðrétt Bregðast við ummælum Þorgerðar Varð að leggja út 800.000 krónur í gistingu Bjóst ekki við skrúfu í samlokunni Hefði aldrei verið samþykkt í dag Yfir 100 Íslendingar fastir í Gautaborg Mótmæltu veginum um árabil Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Von á breytingum eftir „hálf ömurlega tíð“ Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hitamet sumarsins fallið Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Nýjast á mbl.is » Feðgarnir sameinaðir Einn handtekinn grunaður um nauðgun á Gothia Cup Minnstu neyðarbirgðir í 43 ár Myndskeiðin af Trump og Yamal fölsuð Jaðarhegðun að nenna að mála yfir regnbogafánann Umræðan Gjörbreytt menntakerfi Varanlegar undanþágur eru ekki á boðstólum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ætti að biðjast afsökunar Frakkar gerðu ekki ráð fyrir undanþágum Varð að leggja út 800.000 krónur í gistingu Vilja sameina fólk í sköpun og gleði Mest lesið Í gær Í vikunni Rannsókn vegna andlátsins hætt „Skelfileg og vanhugsuð breyting“ Enginn haft samband vegna skrúfunnar Ekki á boðstólum ESB Varð að leggja út 800.000 krónur í gistingu Afstaða Frakklands óljós Þrjú ár líða hratt í flugbransanum Myndir: Opnunarhátíð landsmóts skáta Þrjú farþegaskip lágu við bryggju í Hafnarfjarðarhöfn í fyrsta sinn Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá Röng frétt leiðrétt Bregðast við ummælum Þorgerðar Varð að leggja út 800.000 krónur í gistingu Bjóst ekki við skrúfu í samlokunni Hefði aldrei verið samþykkt í dag Yfir 100 Íslendingar fastir í Gautaborg Mótmæltu veginum um árabil Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Von á breytingum eftir „hálf ömurlega tíð“ Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hitamet sumarsins fallið Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Manneskjunni bjargað úr Ölfusá

Share this article