Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Álagning tollanna skorti lagastoð

Read Full Article →

Donald Trump Bandaríkjaforseti kynnti í byrjun apríl á síðasta ári umfangsmiklar breytingar á tollastefnu Bandaríkjanna, með það að markmiði að efla innlenda framleiðslu og draga úr viðskiptahalla Bandaríkjanna. Tollarnir voru lagðir á með vísan til neyðarlaga, svokallaðra IEEPA-heimilda, sem veita forsetanum víðtækar heimildir til efnahagslegra aðgerða þegar þjóðaröryggi eða neyðarástand krefst þess. Tollarnir voru einna hæstir á innflutning frá Asíu og þá einkum Kína, þar sem samtals 54% tollur var lagður á vörur til Bandaríkjanna. Fyrir íslenskar vörur voru tollarnir 10-15%. Hæstiréttur Bandaríkjanna komst þó að þeirri niðurstöðu í byrjun árs að skattlagningarvald væri ekki unnt að fella undir IEEPA-heimildir. Samkvæmt stjórnarskrá er slíkt vald í höndum bandaríska þingsins, nema annað hafi sérstaklega verið samþykkt. Tollarnir voru því taldir hafa verið lagðir á án fullnægjandi lagastoðar, og í kjölfarið voru fjölmargir þeirra felldir úr gildi. Með síðari úrskurði sérdómstóls um alþjóðaviðskipti, var bandarískum tollyfirvöldum gert að endurgreiða hina ólögmætu tolla til innflytjenda sem setið hefðu undir tollheimtu. Stjórnvöld í Bandaríkjunum standa nú frammi fyrir því að endurgreiða samtals 166 milljarða dala, eða ríflega 20.800 milljarða íslenskra króna, vegna málsins. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér.

Share this article