Bandarísk stjórnvöld hafa endurgreitt fyrirtækjum um 100 milljarða bandaríkjadala vegna tolla sem innheimtir voru áður en Hæstiréttur Bandaríkjanna úrskurðaði þá ólögmæta. Endurgreiðslurnar nema 60% þeirra 165 milljarða dala sem innheimtir voru með svokölluðum „frelsisdagstollum“ (e. liberation day tariffs) sem Donald Trump Bandaríkjaforseti kom á í apríl 2025. Í febrúar á þessu ári felldi Hæstiréttur Bandaríkjanna hluta tollanna úr gildi og fyrirskipaði stjórnvöldum að endurgreiða fyrirtækjum þá fjármuni sem þau höfðu greitt. Fjárlagahalli Bandaríkjanna aukist milli ára Trump hefur lagt ríka áherslu á tolla á innfluttar vörur í efnahagsstefnu sinni frá því hann tók við embætti forseta á ný. Hann hefur sagt að þeir styðji við innlenda framleiðslu, bæti viðskiptasamninga og dragi úr fjárhalla. Þrátt fyrir að innleiðingu tollanna hafi fylgt auknar tekjur hefur fjárlagahalli Bandaríkjanna aukist að undanförnu. Hallinn nam 1.370 milljörðum dala á fyrstu níu mánuðum þessa fjárhagsárs, tveimur prósentum meira en á sama tíma á síðasta ári. Tollastefna Trumps sætir harðri gagnrýni Í júlí kynnti Trump nýja tolla á innflutning frá 85 ríkjum . sem standa undir 99,4% af öllum innflutningi til Bandaríkjanna. Tollarnir eru á bilinu 10 til 12,5 prósent. Þeir eru meðal annars lagðir á vörur frá Bretlandi, Kanada, Mexíkó, Ástralíu, Indlandi, Kína og á öll aðildarríki Evrópusambandsins. Nýju tollarnir voru lagðir á samkvæmt ákvæði í bandarískum viðskiptalögum sem heimilar aðgerðir gegn ríkjum sem hafa ekki gert nóg til að sporna gegn nauðungarvinnu í framleiðslu. Samtök 25 ríkja innan Bandaríkjanna hafa þó stefnt alríkisstjórninni vegna þeirra. Þau hafa haldið því fram að ákvæðið sé yfirvarp sem ætlað sé að endurvekja tollana sem Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur þegar fellt úr gildi. Ríkin krefjast þess að dómstóll stöðvi innheimtu tollanna, úrskurði þá ólögmæta og fyrirskipi endurgreiðslu tolla sem þegar hafa verið greiddir. Embættismenn hafa gagnrýnt tollastefnu Bandaríkjaforseta harðlega. Þeir hafa meðal annars sakað ríkisstjórn Trumps um að reyna ítrekað að hækka skatta á fjölskyldur og fyrirtæki með ólögmætum hætti með síendurteknum lotum nýrra tolla.