Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Reiðubúinn að mæta Kára hvar og hvenær sem er“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 18.7.2026 | 16:23 | Uppfært 16:42 „Reiðubúinn að mæta Kára hvar og hvenær sem er“ Arnar segir Kára fara með rangt mál í grein sinni í Morgunblaðinu í morgun. Samsett mynd/Kristinn Magnússon/Eggert Björn Diljan Hálfdanarson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Vín í verslanir Netverslun með áfengi í boði ráðherra Áfengisnetverslanir komnar til að vera Heimilt að auglýsa áfengisnetverslanir Mun ekki láta lögreglu ráðast gegn netsölu áfengis Meirihluti þingmanna vill netverslun með áfengi » Fleiri tengdar fréttir Arnar Sigurðsson, annar eiganda netáfengisverslunarinnar Santé, segist reiðubúinn að mæta Kára Stefánssyni, fyrrverandi forstjóra Íslenskrar erfðagreiningar, hvenær sem er til að ræða netsölu með áfengi á Íslandi. Þetta er meðal þess sem fram kemur í athugasemd Arnars undir frétt mbl.is um grein Kára sem birtist í Morgunblaðinu í morgun um aukið aðgengi að áfengi hér á landi í kjölfar fleiri netverslana. Bendir Arnar á að ÁTVR auglýsi netverslun sína í héraðsfréttablöðum um allt land og sendi pantanir í allar Vínbúðir og á sjö aðra afhendingarstaði án endurgjalds. Stofnunin hafi þegar hámarkað aðgengi að áfengi með heimsmeti í fjölda vínbúða miðað við höfðatölu. Frétt af mbl.is Netverslun með áfengi í boði ráðherra Tölur Hagstofunnar sýna annað Í grein Kára segir meðal annars að til séu góðar faraldsfræðirannsóknir sem sýni að aukið aðgengi að áfengi leiði til aukinnar neyslu. Vitnaði hann í því samhengi í Mark Pearson, einn framkvæmdastjóra OECD, sem flutti erindi á Læknadögum hér á landi í janúar. Hann hafi sagt margt benda til þess að síðan netsala á áfengi hófst hér á landi hafi áfengisneysla aukist hér en minnkað í flestum OECD-ríkjum. „Það er einföld leið til að sannreyna þetta: að fletta upp hjá Hagstofu Íslands. Samkvæmt tölum hennar var neysla hreins vínanda á mann 8,1 lítri árið 2022, 7,7 lítrar árið 2023 og 7,6 lítrar árið 2024. Neyslan hefur með öðrum orðum dregist saman þrjú ár í röð – á sama tíma og aðgengi að áfengi hefur aldrei verið meira í Íslandssögunni,“ skrifar Arnar. „Ísland er auk þess landfræðilega einangraðasta neyslusvæði Evrópu og því einstaklega vel fallið til mælinga af þessu tagi; hér lekur ekkert yfir landamæri.“ Frétt af mbl.is Meirihluti þingmanna vill netverslun með áfengi Athyglisverð ásökun Maður sem kenni sig við vísindi standi frammi fyrir vali þegar gögnin stangist á við kenninguna: að endurskoða kenninguna eða hunsa gögnin. Kári hafi valið síðari kostinn og bætt um betur með því að saka aðra um að tala utan síns sérsviðs. „Það er athyglisverð ásökun frá manni sem fjallar í sömu grein um faraldsfræði, lögfræði, stjórnskipunarrétt og störf lögreglu.“ Alvarlegasti hluti greinar Kára sé þó ekki talnameðferðin heldur stjórnskipunarhugmyndirnar. „Hann krefst þess berum orðum að dómsmálaráðherra „beiti húsbóndavaldi sínu“ til að skipa lögreglunni fyrir um rannsókn sakamáls gegn nafngreindum borgurum,“ skrifar Arnar. Frétt af mbl.is Mun ekki láta lögreglu ráðast gegn netsölu áfengis „Það er ekki hægt að orða þetta öðruvísi: Kári Stefánsson kallar eftir stjórnarfari þar sem ráðherra stýrir sakamálarannsóknum gegn pólitískum viðfangsefnum sínum. Slíkt fyrirkomulag hefur verið reynt víða um heim. Hvergi telst það til fyrirmyndar.“ Sjálfstæði lögreglu og ákæruvalds gagnvart ráðherra sé einn af hornsteinum réttarríkisins, varnargarður sem verji borgara gegn því að rannsóknarvaldi ríkisins sé beitt eftir pólitískum hentugleika. „Ég er reiðubúinn að mæta Kára hvar og hvenær sem er til að ræða þrennt: opinberar neyslutölur Hagstofunnar, netverslun og auglýsingastarfsemi ÁTVR, og hvort ráðherrar eigi að stýra lögreglurannsóknum. Það eina sem ég fer fram á er að rökræðan byggi á gögnum sem hægt er að fletta upp – ekki rannsóknum sem hvergi finnast nema í tilvísanaskrá hugarheimsins,“ skrifar Arnar að lokum. Frétt af mbl.is 24 netverslanir með áfengi starfandi hér á landi Tengdar fréttir Vín í verslanir Netverslun með áfengi í boði ráðherra Áfengisnetverslanir komnar til að vera Heimilt að auglýsa áfengisnetverslanir Mun ekki láta lögreglu ráðast gegn netsölu áfengis Meirihluti þingmanna vill netverslun með áfengi » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Varð viðskila farsímalaus með svefnpoka Arsenal að næla í efnilegan leikmann frá erkifjendunum „Reiðubúinn að mæta Kára hvar og hvenær sem er“ Draumabyrjun Freys hjá stórveldinu Sjö mörk á Seltjarnarnesi Umræðan Land, þjóð og tunga á þjóðveldisöld Barnaleg nálgun Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skýringar Péturs þóttu ekki fullnægjandi Viðartittlingur kallar á nefndarálit Sérlausn vegna flugs framlengd til 2030 Ljótt að feta í sama farveg Mest lesið Í gær Í vikunni Hafnar orðum Þorgerðar Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Alvarlega slasaður eftir vinnuslys Þyrlan lenti á tjaldsvæðinu á Hvammstanga Sögulegt hús í nýjum búningi Úrkomumet fallið í höfuðborginni Vill skoða endurgerð gatnamóta Netverslun með áfengi í boði ráðherra Einn stór turn í stað þriggja minni Þyrlan tók þátt í leit að ferðamanni Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Biðraðir á nýrri brú Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Þyrlan flutti slasaðan mann úr Glerárdal Gögn frá lögreglu ófullnægjandi Uppsveiflan kemur á óvenjulegum tíma Óeðlileg afskipti lögreglunnar á Flateyri Léttir til vestanlands eftir hádegi Yfirfullt á tjaldsvæðinu á Hömrum Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hitamet sumarsins fallið Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Einn fær 552,5 milljónir „Það er eitthvað að gerast hérna í Reykjavík“ Nýjast á mbl.is » Varð viðskila farsímalaus með svefnpoka Arsenal að næla í efnilegan leikmann frá erkifjendunum „Reiðubúinn að mæta Kára hvar og hvenær sem er“ Draumabyrjun Freys hjá stórveldinu Sjö mörk á Seltjarnarnesi Umræðan Land, þjóð og tunga á þjóðveldisöld Barnaleg nálgun Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þrjú ár fyrir nauðgun á skjólstæðingi Hafnar orðum Þorgerðar „Hér eru áfall og vantrú ríkjandi“ Ljótt að feta í sama farveg Mest lesið Í gær Í vikunni Hafnar orðum Þorgerðar Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Alvarlega slasaður eftir vinnuslys Þyrlan lenti á tjaldsvæðinu á Hvammstanga Sögulegt hús í nýjum búningi Úrkomumet fallið í höfuðborginni Vill skoða endurgerð gatnamóta Netverslun með áfengi í boði ráðherra Einn stór turn í stað þriggja minni Þyrlan tók þátt í leit að ferðamanni Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Biðraðir á nýrri brú Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Þyrlan flutti slasaðan mann úr Glerárdal Gögn frá lögreglu ófullnægjandi Uppsveiflan kemur á óvenjulegum tíma Óeðlileg afskipti lögreglunnar á Flateyri Léttir til vestanlands eftir hádegi Yfirfullt á tjaldsvæðinu á Hömrum Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hitamet sumarsins fallið Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði Einn fær 552,5 milljónir „Það er eitthvað að gerast hérna í Reykjavík“

Share this article