Innlent | Spursmál | mbl | 22.7.2026 | 10:15 | Uppfært 12:20 „Þú sigar hundum á sauðfé – ekki lögreglu“ Setja bókamerki Tengdar fréttir Vín í verslanir Arnar og Kári takast á í beinni í Spursmálum „Reiðubúinn að mæta Kára hvar og hvenær sem er“ Netverslun með áfengi í boði ráðherra Áfengisnetverslanir komnar til að vera Heimilt að auglýsa áfengisnetverslanir » Fleiri tengdar fréttir Hart var tekist á um lögmæti netsölu áfengis og áhrif hennar á lýðheilsu þegar Kári Stefánsson, fyrrverandi forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, og Arnar Sigurðsson, stofnandi netverslunarinnar Santé, mættust í Spursmálum. Tilefni umræðunnar var grein sem Kári Stefánsson birti í Morgunblaðinu þar sem hann gagnrýndi stjórnvöld, og sérstaklega dómsmálaráðherra, fyrir að framfylgja ekki gildandi lögum um netsölu áfengis. Arnar Sigurðsson, stofnandi Santé, svaraði málflutningnum og skoraði á Kára að mæta sér í umræðu. Sú áskorun varð til þess að þeir settust saman við borðið í aukaþætti Spursmála í beinni útsendingu og tókust þar á um lögmæti netsölunnar, túlkun dóma, þrískiptingu ríkisvaldsins og áhrif aukins aðgengis að áfengi á lýðheilsu. Ólík túlkun laga og reglna Kári hélt því fram að gildandi lög gerðu netsöluna ólöglega og gagnrýndi stjórnvöld harðlega fyrir að framfylgja þeim ekki. „Það eru lög í landinu sem voru sett 1998 sem gera það að verkum að netsala með áfengi er ólögleg,“ sagði Kári og vísaði meðal annars til afstöðu ríkisstjórnarinnar gagnvart ESA og dóms Héraðsdóms Reykjaness. Hann sagði alvarlegt að lögregla og ákæruvald hegðuðu sér eins og lögin væru ekki í gildi. Með yfirlýsingum sínum væri dómsmálaráðherra í raun að gefa til kynna að þessum tilteknu lögum þyrfti ekki að fylgja. Arnar hafnaði málflutningnum alfarið og sagði stöðuna mun flóknari. Hann benti á að Santé hefði unnið dómsmál sem ÁTVR höfðaði gegn fyrirtækinu og að annað mál, gegn Smáríkinu, væri enn í áfrýjunarferli. Stefán Einar Stefánsson stýrði umræðunum líkt og fyrri daginn í Spursmálum. mbl.is/María Matthíasdóttir Hann gagnrýndi jafnframt kröfur um að ráðherra beitti sér gagnvart lögreglu. „Þú sigar hundum á sauðfé en þú sigar ekki lögreglu,“ sagði Arnar. Ráðherra ætti ekki að líta á lögreglu sem handbendi sitt enda færi slíkt gegn þrískiptingu ríkisvaldsins. Stál í stál Ágreiningurinn varð enn harðari þegar rætt var um áhrif netsölunnar á áfengisneyslu. Kári sagði ljóst af rannsóknum að auknu aðgengi fylgdi almennt aukin neysla. Sérstaklega þyrfti að horfa til þeirra sem væru veikir fyrir áfengi. „Það er alltaf ákveðinn hundraðshluti, svona í kringum fjórðungur, 20 til 25% af þjóðinni, sem er afskaplega veikur fyrir alkóhóli,“ sagði hann. Arnar sagði opinberar tölur hins vegar sýna að áfengisneysla hefði dregist saman á sama tíma og netverslunum fjölgaði. Hugmyndin um að aukið framboð skapaði sjálfkrafa aukna eftirspurn væri einfaldlega röng. „Aðgengi að áfengi var 100%. Það skiptir engu máli þó þú aukir aðgengið upp í 120%,“ sagði Arnar og benti á að áfengi hefði lengi verið aðgengilegt á börum og veitingastöðum. Kári sagði heildartölur þó ekki segja alla söguna. Aðalatriðið væri að netsala gæfi fólki aðgang að áfengi á þeim augnablikum sem hefðbundnar verslanir væru lokaðar. Þar lægi hinn raunverulegi ágreiningur: Hvort netsala væri nútímalegt frelsismál eða hættuleg viðbót við aðgengi að vöru sem Kári sagði valda gríðarlegum samfélagslegum skaða. Þáttinn í heild sinni er hægt að sjá í spilaranum hér að neðan og á streymisveitum. Tengdar fréttir Vín í verslanir Arnar og Kári takast á í beinni í Spursmálum „Reiðubúinn að mæta Kára hvar og hvenær sem er“ Netverslun með áfengi í boði ráðherra Áfengisnetverslanir komnar til að vera Heimilt að auglýsa áfengisnetverslanir » Fleiri tengdar fréttir 1 blogg um fréttina Bloggað um fréttina Jóhann Elíasson: GRUNDVALLARSPURNINGIN ER SÚ: "Á AÐ VIRÐA GILDANDI LÖG Í LANDINU"???? Nýjast á mbl.is » Ástandið aldrei verið eins slæmt Orri Steinn á Stamford Bridge Bandero snúinn aftur inn í lögsöguna Lykilmaður Íslandsmeistaranna til Álftaness Búist við heitasta degi ársins í Grikklandi Umræðan Kostir smæðarinnar Evran lagar ekki umferðina Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hefur tæknivæðing skólakerfisins gengið of langt? Nátttröllið í úkraínska hernum Telur ekki tímabært að gera mislæg gatnamót Málarar með tárin í augunum í vætunni Mest lesið Í gær Í vikunni Segist ekki hafa rætt við Jetten Slegist um orlofsíbúðir á sólríkari slóðum Málarar með tárin í augunum í vætunni Gerði sér ferð til Íslands til að sjá fuglinn Allar forsendur uppsagnarinnar brostnar Bætir í vind og rigningu vestanlands Hefur tæknivæðing skólakerfisins gengið of langt? „Þú sigar hundum á sauðfé – ekki lögreglu“ Kári leggst gegn umsókn að Evrópusambandinu Tímabært að kalla Þorgerði fyrir nefndina Rannsókn vegna andlátsins hætt Skemmdarverkin enn óupplýst: Aðkoman var ömurleg „Skelfileg og vanhugsuð breyting“ Rugluðust á Íslandi og Grænlandi Enginn haft samband vegna skrúfunnar Lögmaður mannsins: „Ekki séð neitt þessu líkt“ Sviptir flugréttindum og málið væntanlega kært Ekki á boðstólum ESB Varð að leggja út 800.000 krónur í gistingu Heppinn Íslendingur vann 45 milljónir Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hitamet sumarsins fallið Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Einn stálheppinn fær 96,5 milljónir Nýjast á mbl.is » Ástandið aldrei verið eins slæmt Orri Steinn á Stamford Bridge Bandero snúinn aftur inn í lögsöguna Lykilmaður Íslandsmeistaranna til Álftaness Búist við heitasta degi ársins í Grikklandi Umræðan Kostir smæðarinnar Evran lagar ekki umferðina Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Lögmaður mannsins: „Ekki séð neitt þessu líkt“ Vald landlæknis jafnað við vald dómstóla Sjá fram á góðan þriðja ársfjórðung Ákæru á hendur Skúla vísað frá Mest lesið Í gær Í vikunni Segist ekki hafa rætt við Jetten Slegist um orlofsíbúðir á sólríkari slóðum Málarar með tárin í augunum í vætunni Gerði sér ferð til Íslands til að sjá fuglinn Allar forsendur uppsagnarinnar brostnar Bætir í vind og rigningu vestanlands Hefur tæknivæðing skólakerfisins gengið of langt? „Þú sigar hundum á sauðfé – ekki lögreglu“ Kári leggst gegn umsókn að Evrópusambandinu Tímabært að kalla Þorgerði fyrir nefndina Rannsókn vegna andlátsins hætt Skemmdarverkin enn óupplýst: Aðkoman var ömurleg „Skelfileg og vanhugsuð breyting“ Rugluðust á Íslandi og Grænlandi Enginn haft samband vegna skrúfunnar Lögmaður mannsins: „Ekki séð neitt þessu líkt“ Sviptir flugréttindum og málið væntanlega kært Ekki á boðstólum ESB Varð að leggja út 800.000 krónur í gistingu Heppinn Íslendingur vann 45 milljónir Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hitamet sumarsins fallið Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Einn stálheppinn fær 96,5 milljónir