Innlent | mbl | 18.7.2026 | 19:35 Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Björgólfur Thor Björgólfsson. Setja bókamerki Björgólfur Thor Björgólfsson segir brottflutning auðugra frumkvöðla frá Bretlandi vera orðinn að raunverulegum flótta. Hann er á meðal auðugra athafnamanna sem hafa yfirgefið Bretland eftir að Verkamannaflokkurinn tók þar við völdum. Björgólfur Thor, sem varð fyrstur Íslendinga milljarðamæringur, flutti í fyrra frá Bretlandi til Ítalíu og greiðir nú skatta þar í landi. Þá hefur fjárfestingarfélag hans, Novator, flutt höfuðstöðvar sínar frá Lundúnum til Zürich í Sviss. Þetta kemur fram í viðtali Bloomberg við auðkýfinginn. Segir auðmenn flýja land Björgólfur flytur á sama tíma og vaxandi áhyggjur eru uppi af því að efnamiklir einstaklingar og athafnamenn yfirgefi Bretland vegna breytinga á skattkerfinu. Breska ríkisstjórnin hefur meðal annars afnumið svokallað non-dom-kerfi, sem gerði ákveðnum einstaklingum með lögheimili í Bretlandi kleift að greiða ekki fullan skatt af tekjum og eignum erlendis. Þá hafa reglur um erfðafjárskatt verið hertar. Segir Björgólfur að brottflutningur efnamikilla frumkvöðla frá Bretlandi sé engar ýkjur. „Þetta er fólksflótti, það er ekki uppspuni.“ Hann segir afnám svokallaðs non-dom-kerfis hafa orðið til þess að fjárfestar leiti annað. „Það er ótrúlegt hversu hratt þetta hefur gerst. Afleiðingarnar eru farnar að koma fram víða annars staðar.“ Frétt af mbl.is Björgólfur Thor nældi sér í þrenn gullverðlaun Kallar eftir föstu skattaþaki Rachel Reeves, fjármálaráðherra Bretlands, afnam non-dom-reglurnar í apríl árið 2025 og tók í stað þeirra upp nýtt kerfi um erlendar tekjur og söluhagnað. Samkvæmt nýju reglunum geta þeir sem flytja til Bretlands fengið undanþágu frá skattlagningu tekna sem aflað er erlendis í allt að fjögur ár. Skilyrði er að viðkomandi hafi ekki verið skattskyldur í Bretlandi undanfarin tíu ár. Björgólfur Thor hefur nú flutt til Mílanó og bætist þar með í hóp athafnamanna sem hafa yfirgefið Bretland eftir að Verkamannaflokkurinn tók við stjórn landsins. Hann greindi jafnframt frá því að hafa setið fund með ráðgjafa Keirs Starmer forsætisráðherra ásamt fleiri auðugum einstaklingum. „Það sem veldur mér áhyggjum er að ríkisstjórnin virðist hafa gert mistök og áttað sig síðan á því að hún hafi gert mistök,“ sagði Björgólfur Thor. Hann hvetur bresk stjórnvöld til að taka upp fast skattaþak að ítalskri fyrirmynd. Slíkt kerfi myndi að hans mati gera Bretland eftirsóknarverðara fyrir frumkvöðla og leiðtoga í atvinnulífinu. Frétt af mbl.is „Öruggt mál að þeir hafa setið um mig“ Novator flutt til Zürich Tekið er fram að Björgólfur Thor hafi byggt auð sinn upp á ný eftir fjármálakreppuna á árunum 2008 og 2009, þegar hann tapaði nær öllum eignum sínum. Hann var fyrir bankahrunið stærsti eigandi Landsbankans, sem féll haustið 2008. Björgólfur Thor sætti mikilli gagnrýni vegna hlutverks síns í aðdraganda hrunsins og baðst síðar afsökunar á gjörðum sínum á þeim tíma. Áhyggjur eru nú uppi af því að fjármálageirinn í Lundúnum verði fyrir skakkaföllum þegar efnamiklir fjárfestar og athafnamenn flytja úr landi. Að því er Telegraph greinir frá leiddi flutningur Novator frá Lundúnum til Zürich til þess að um 20 störf lögðust niður í bresku höfuðborginni. Frétt af mbl.is Björgólfur Thor skemmti sér í afmæli Beckham Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Einn stálheppinn fær 96,5 milljónir Valur - Fram, staðan er 1:3 Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Verður dýrasti Englendingurinn Sonur Túfa verður sá yngsti til að spila Umræðan Land, þjóð og tunga á þjóðveldisöld Barnaleg nálgun Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Hér eru áfall og vantrú ríkjandi“ Fregnir af tökum slökkviliðs á eldinum ýktar Gerðu árásir sjöunda daginn í röð Skýringar Péturs þóttu ekki fullnægjandi Mest lesið Í gær Í vikunni Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Hafnar orðum Þorgerðar Alvarlega slasaður eftir vinnuslys Þyrlan lenti á tjaldsvæðinu á Hvammstanga Sögulegt hús í nýjum búningi Úrkomumet fallið í höfuðborginni Þyrlan tók þátt í leit að ferðamanni Netverslun með áfengi í boði ráðherra Vill skoða endurgerð gatnamóta Varð viðskila farsímalaus með svefnpoka Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Biðraðir á nýrri brú Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Þyrlan flutti slasaðan mann úr Glerárdal Gögn frá lögreglu ófullnægjandi Uppsveiflan kemur á óvenjulegum tíma Óeðlileg afskipti lögreglunnar á Flateyri Léttir til vestanlands eftir hádegi Yfirfullt á tjaldsvæðinu á Hömrum Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hitamet sumarsins fallið Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Einn fær 552,5 milljónir Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði „Það er eitthvað að gerast hérna í Reykjavík“ Nýjast á mbl.is » Einn stálheppinn fær 96,5 milljónir Valur - Fram, staðan er 1:3 Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Verður dýrasti Englendingurinn Sonur Túfa verður sá yngsti til að spila Umræðan Land, þjóð og tunga á þjóðveldisöld Barnaleg nálgun Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ekki hægt að breyta skráningunni Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Sérlausn vegna flugs framlengd til 2030 Uppsveiflan kemur á óvenjulegum tíma Mest lesið Í gær Í vikunni Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Hafnar orðum Þorgerðar Alvarlega slasaður eftir vinnuslys Þyrlan lenti á tjaldsvæðinu á Hvammstanga Sögulegt hús í nýjum búningi Úrkomumet fallið í höfuðborginni Þyrlan tók þátt í leit að ferðamanni Netverslun með áfengi í boði ráðherra Vill skoða endurgerð gatnamóta Varð viðskila farsímalaus með svefnpoka Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Biðraðir á nýrri brú Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Þyrlan flutti slasaðan mann úr Glerárdal Gögn frá lögreglu ófullnægjandi Uppsveiflan kemur á óvenjulegum tíma Óeðlileg afskipti lögreglunnar á Flateyri Léttir til vestanlands eftir hádegi Yfirfullt á tjaldsvæðinu á Hömrum Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hitamet sumarsins fallið Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Einn fær 552,5 milljónir Myndir: Hjólhýsi þveraði veginn á Holtavörðuheiði „Það er eitthvað að gerast hérna í Reykjavík“