Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Fjöldi milljónamæringa ekki minni síðan 2008

Read Full Article →

Fjöldi einstaklinga í Bretlandi með auðæfi yfir eina milljón punda, eða yfir 165 milljónir króna, hefur meira en helmingast á undanförnum fjórum árum og ekki verið minni frá árinu 2008, samkvæmt áætlun hugveitunnar The Adam Smith Institute (ASI). ASI áætlar að milljónamæringum í Bretlandi hafi fækkað um 7% í fyrra og að þeir séu nú um 442 þúsund talsins. Hugveitan rekur fækkunina til lækkandi fasteignaverðs og brottflutnings margra efnaðra einstaklinga í kjölfar breytinga ríkisstjórnar Verkamannaflokksins á non-dom-kerfinu svokallaða, sem gerði ákveðnum einstaklingum með lögheimili í Bretlandi kleift að greiða ekki fullan skatt af tekjum og eignum erlendis. Meðal auðkýfinga sem hafa tilkynnt um brottflutning frá London er Björgólfur Thor Björgólfsson. Róbert Wessman, sem tók fram að hann væri ekki „non-dom“, hefur sömuleiðis greint frá því að hann íhugi nú að flytja frá Bretlandi og hafi skoðað eignir í Mílan. Sjá einnig Róbert íhugar að flytja frá Bret­landi vegna hárra skatta Þeir vísuðu báðir til breytinga á skattkerfinu sem ástæðuna fyrir því að þeir ákváðu að flytja annað. Björgólfur sagðist hafa flutt á síðastliðnu ári til Ítalíu og að skrifstofa fjárfestingarfélags hans, Novator, hafi verið flutt til Zurich í Sviss. Björgólfur sagði í viðtali við Bloomberg að ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að loka á non-dom-kerfið kynni að hafa meiri afleiðingar en bresk stjórnvöld hafi gert sér grein fyrir. Björgólfur Thor Björgólfsson og Róbert Wessman eru meðal fjárfesta sem hafa gagnrýnt opinberlega skattastefnu ríkisstjórnar Verkamannaflokksins © Samsett (SAMSETT) Bráðabirgðatölur frá breskum skattayfirvöldum sem birtar voru í fyrra sýndu að 60.700 non-dom einstaklingar voru búsettir í landinu á tímabilinu 2023–2024, sem samsvarar 30% fækkun frá árunum 2014–2015. Fyrrum ríkisstjórn Íhaldsflokksins byrjaði að herða reglur um non-dom-kerfið og voru reglurnar hertar enn frekar í ráðherratíð Rachel Reeves, fyrrverandi fjármálaráðherra. Á undanförnum dögum hafa orðrómar um að nýr forsætisráðherra, Andy Burnham, hyggist innleiða auðlegðarskatt orðið háværri. Hann hefur áður sagt að Bretlandi hafi lagt of mikinn skatt á verkafólk og of lítinn skatt á efnaðri einstaklinga. ASI varar við að eignaskattur myndi líklega leiða til frekari brottflutnings efnaðra einstaklinga.

Share this article