Spánn og Argentína mætast í dag í úrslitaleik HM karla í fótbolta. Leikurinn hefst klukkan 19:00 og er sýndur á RÚV. Spánn hefur einu sinni farið í úrslitaleikinn og vann hann árið 2010. Þetta er í sjöunda skipti sem Argentína fer í úrslit en liðið vann 1978, 1986 og 2022. Dagskrá dagsins Stofan - 18:30 - RÚV Spánn - Argentína - 19:00 - RÚV HM kvöld - 21:25 - RÚV Mbappé tók fram úr Messi bæði sem markahæstur í sögu HM og HM í ár er hann skoraði tvö mörk gegn Englandi í bronsleiknum. Mbappe er með 10 mörk á HM í ár og Messi með 8. Þá er Mbappe með 22 mörk á HM og Messi 21.