Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Stekkur á ævintýrin

Read Full Article →

Brynja Rut Blöndal var nýlega ráðin deildarstjóri vörustýringar og innkaupa hjá Fastus. Hún hefur víðtæka reynslu af aðfanga- og birgðastýringu, gagnadrifnum rekstri og rekstrargreiningu og kom til fyrirtækisins frá Samkaupum þar sem hún starfaði síðast sem rekstrareftirlitsstjóri. Brynja segir það hafa verið spennandi fyrir sig að koma inn í ört vaxtandi fyrirtæki eins og Fastus. „Það er ótrúlega gaman og áhugavert að taka við þessu starfi,“ segir Brynja. „Fastus hefur vaxið mjög hratt síðustu ár og núna er mikilvægasta verkefnið hjá okkur að koma ferlum í þann farveg að þeir standi undir þeim vexti.“ Sjá einnig Brynja Rut ráðin deildarstjóri hjá Fastus Hjá Samkaupum kom Brynja að þróun gagnadrifins rekstrar, greininga og birgðastýringar. Þar áður var hún ráðgjafi hjá AGR í Danmörku og á Íslandi. Samhliða störfum sínum hjá AGR var Brynja stundakennari í framleiðslu- og birgðastýringu við Háskólann í Reykjavík. Hún er rekstrarverkfræðingur að mennt, með B.Sc.-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og meistaragráðu frá Danmarks Tekniske Universitet (DTU). Brynja segir reynslu sína af vörustýringu og rekstri nýtast vel í nýja starfinu en áhuginn fyrir faginu hafi vaknað þegar hún vann hjá AGR. „Hjá AGR fékk ég að vinna með mörgum ólíkum fyrirtækjum og sjá hvernig þau nálgast vörustýringu og rekstur. Þar fékk ég yfirsýn yfir fjölbreyttan rekstur og innsýn inn í það hvernig mismunandi fyrirtæki tækluðu þessi mál. Hjá Samkaupum fékk ég annars konar reynslu og lærði ótrúlega mikið af reynsluboltum innan fyrirtækisins og verslana samstæðunnar.“ Brynja lýsir endurskipulagningunni hjá Samkaupum í kjölfar eigendaskipta á síðasta ári sem afar áhugaverðu og lærdómsríku ferli. Brynja segist alltaf hafa haft mikla þörf fyrir að prófa og læra eitthvað nýtt og hún hafi í gegnum tíðina stokkið á ýmis ævintýri sem hún er þakklát fyrir í dag. Hún fór 17 ára í spænskuskóla í Valencia, í árs skiptinám til Barcelona í B.Sc.-náminu og flutti svo til Danmerkur í meistaranám. Í dag býr hún í Vesturbænum með Þorgeiri Sigurðarsyni og börnum þeirra tveimur og segir alltaf nóg um að vera í stórum vinahópum og með stórfjölskyldunni. „Þegar maður er með marga bolta á lofti eru það gæðastundir með fjölskyldu og vinum sem eru það besta, hversu klisjukennt sem það hljómar,“ Fréttin birtist fyrst í Viðskiptablaðinu sem kom út 15. júlí.

Share this article