Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Brynja Rut ráðin deildarstjóri hjá Fastus

Read Full Article →

Brynja Rut Blöndal hefur verið ráðin deildarstjóri vörustýringar og innkaupa hjá Fastus. Hún er með víðtæka reynslu í aðfanga- og birgðastýringu og gagnadrifnum rekstri fyrirtækja og kemur til Fastus frá Samkaupum þar sem hún starfaði síðast sem rekstrareftirlitsstjóri. Fastus er sölu- og þjónustufyrirtæki á vörum og búnaði fyrir fyrirtæki og fagaðila. Fyrirtækið skiptist í Fastus heilsu, sem þjónustar og sérhæfir sig í vörum og ráðgjöf fyrir heilbrigðisgeirann, og Fastus lausnir, sem sér um þjónustu og ráðgjöf fyrir veitingastaði, hótel og fyrirtæki. Brynja hefur einnig sinnt ýmsum hlutverkum í gegnum breytingar hjá Samkaupum og vann meðal annars að gagnadrifnum rekstri, greiningum og birgðastýringu hjá fyrirtækinu. Sjá einnig Elín Edda ráðin fjármálastjóri Fastus Þar áður starfaði Brynja sem ráðgjafi hjá AGR, fyrst í Danmörku, þar sem hún vann með viðskiptavinum víðs vegar á Norðurlöndunum, og síðar á Íslandi. Þá var hún einnig stundakennari í HR samhliða störfum fyrir AGR og kenndi námskeiðið Framleiðsla og birgðastýring. Brynja er rekstrarverkfræðingur að mennt og er með B.Sc.-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og meistaragráðu frá DTU í Danmörku. „Við erum afar ánægð og stolt að fá Brynju til Fastus. Hún hefur víðtæka reynslu og þekkingu úr störfum sínum bæði hér á landi og erlendis og styrkir hún enn frekar öflugan hóp starfsfólks hjá fyrirtækinu,“ segir Guðrún Gunnarsdóttir, forstjóri Fastus.

Share this article