Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Eykur ekki traust erlendra ráðamanna til Þorgerðar

Read Full Article →

Innlent | mbl | 20.7.2026 | 12:04 Eykur ekki traust erlendra ráðamanna til Þorgerðar Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins. mbl.is/Anton Brink Kjartan Leifur Sigurðsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Frakkar gerðu ekki ráð fyrir undanþágum Ætti að biðjast afsökunar Bregðast við ummælum Þorgerðar Bjarni kallar eftir útskýringu Jetten neitar tali um undanþágur » Fleiri tengdar fréttir Sérstakt er að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra vísi í óformleg samskipti sín við erlenda ráðamenn í viðtölum við fjölmiðla. Þetta segir Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins, í samtali við mbl.is. Hollensk stjórnvöld hafa vísað því á bug að Rob Jetten, forsætisráðherra Hollands, hafi sagt íslenskum stjórnvöldum að Ísland gæti fengið undanþágur, sérlausnir eða varanlega undanþágu frá sameiginlegri fiskveiðistefnu Evrópusambandsins eins og Þorgerður hefur haldið fram. Frétt af mbl.is Bregðast við ummælum Þorgerðar „Dregur úr trúverðugleika“ „Þetta er auðvitað sérstakt. Óformleg samtöl eru óformleg nema að þau séu skráð og liggi fyrir,“ segir Sigurður Ingi inntur eftir sinni sýn á málið. Segir fyrrverandi Framsóknarformaðurinn það þó enn verra að yfirlýsingar íslenskra ráðamann séu ekki staðfestar þegar eftir því er leitast. „Það dregur verulega úr trúverðugleika annars vegar þeirra yfirlýsinga sem íslenskir ráðamenn eru með og hins vegar hefur þetta nú væntanlega ekki góð áhrif á traust og trúverðugleika í samskiptum ríkja.“ Frétt af mbl.is Ætti að biðjast afsökunar Ekki sterkur grunnur undir yfirlýsingar ráðherra Sigurður Ingi vill ekki fullyrða að yfirlýsingar Þorgerðar hafi rýrt traust erlendra ráðamanna til hennar. „Ég get svo sem ekkert tjáð mig um það en þetta getur allavega augljóslega ekki styrkt það og þetta dregur augljóslega úr trúverðugleika yfirlýsinga íslenskra ráðamanna um hvaða skilaboð forsætisráðherra og utanríkisráðherra hafa verið að fá frá erlendum ráðamönnum eða frá Brussel. Þegar í ljós kemur að það er dregið til baka af þeim sem þær eru að vitna til.“ Fullyrðingar Þorgerðar um samskipti sín við Jetten eru því á skjön við ummæli Jettens á hollenska þinginu og svar ráðuneytis hans við fyrirspurn Morgunblaðsins. „Bæði forsætisráðherra og utanríkisráðherra hafa verið með yfirlýsingar í þá veru að það sé mjög líklegt að það séu alls konar breytingar og undanþágur, varanlegar sem tímabundnar, og jafnvel breytingar á stofnsáttmála Evrópusambandsins séu mögulegar. Þetta hlýtur að ýta undir það að það sé ekki mjög sterkur grunnur undir slíkum yfirlýsingum og dregur úr trúverðugleika alls þess sem þær segja að öðru leyti,“ segir Sigurður Ingi. Dagbjört Hákonardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar. Eggert Jóhannesson Öll samskipti af hinu góða Dagbjört Hákonardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, situr í utanríkismálanefnd ásamt Sigurði Ingi. Hennar sýn á málið er töluvert frábrugðin sýn Sigurðar Inga. „Ég tel bara að öll samskipti við erlenda ráðamenn séu af hinu góða á tímum sem þessum. Það er ekkert við það að athuga og ég tel mjög óeðlilegt að þau séu gerð tortryggileg að einhverju leyti,“ segir Dagbjört í samtali við mbl.is. Hefur Dagbjört ekki séð neitt benda til þess að Þorgerður hafi brotið trúnað gagnvart Jetten. „Ég hef ekki orðið vör við það. Vegna þess að það er verið að gera tortryggilegt að ráðherrar eigi í trúnaðarsamskiptum sín á milli og óformlegum samskiptum vil ég benda á að slík samskipti hafa alltaf átt sér stað og munu alltaf eiga sér stað. Þau eru mikilvægur hluti stjórnmáladiplomasíu og sannarlega ekki ný á nálinni.“ Frétt af mbl.is Jetten neitar tali um undanþágur Fréttaflutningurinn hafi verið bjagaður Segir Dagbjört fréttaflutning af umræðum á hollenska þinginu þar sem Jetten sagði sameiginlegu fiskveiðistefnuna órjúfanlegan hluta regluverks ESB hafa verið bjagaðan. „Ég hef rætt við fólk sem kann hollensku. Það sem ekki hafa verið fluttar fréttir af er að forsætisráðherra Hollands fagnaði sérstaklega hugsanlegri aðildarumsókn Íslands, kysi þjóðin að fara þá leið.“ Tengdar fréttir Ísland og ESB Frakkar gerðu ekki ráð fyrir undanþágum Ætti að biðjast afsökunar Bregðast við ummælum Þorgerðar Bjarni kallar eftir útskýringu Jetten neitar tali um undanþágur » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Leifur og Hugrún eiga von á barni Víkingar fá erfiðan andstæðing ef þeir tapa Eykur ekki traust erlendra ráðamanna til Þorgerðar Breikkun Kjalarnesvegar í útboð Mbappé sá fyrsti í sögu HM Umræðan Tími hvalveiða er liðinn Stærsta netverslunin er ríkisins Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fregnir af tökum slökkviliðs á eldinum ýktar Bregðast við ummælum Þorgerðar Ætti að biðjast afsökunar Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Mest lesið Í gær Í vikunni Bregðast við ummælum Þorgerðar Röng frétt leiðrétt Hefði aldrei verið samþykkt í dag Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Mótmæltu veginum um árabil Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá Ég var kölluð tjaldakonan Aldagömul mynt fannst í Höfnum Ætti að biðjast afsökunar Hnífi beitt í alvarlegri líkamsárás „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Leita að manneskju sem féll í Ölfusá Bjarni kallar eftir útskýringu Þrír fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu Tjaldsvæðið varð stútfullt þegar leið á kvöldið Einn stálheppinn fær 96,5 milljónir Arnar og Kári takast á í beinni í Spursmálum Sá ekki borgarísinn en taldi hann hættulegan Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Íslenska hitametið gæti fallið á morgun „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hitamet sumarsins fallið Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Nýjast á mbl.is » Leifur og Hugrún eiga von á barni Víkingar fá erfiðan andstæðing ef þeir tapa Eykur ekki traust erlendra ráðamanna til Þorgerðar Breikkun Kjalarnesvegar í útboð Mbappé sá fyrsti í sögu HM Umræðan Tími hvalveiða er liðinn Stærsta netverslunin er ríkisins Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Bregðast við ummælum Þorgerðar Fundu mynt frá 11. öld við uppgröft Sérlausn vegna flugs framlengd til 2030 Fregnir af tökum slökkviliðs á eldinum ýktar Mest lesið Í gær Í vikunni Bregðast við ummælum Þorgerðar Röng frétt leiðrétt Hefði aldrei verið samþykkt í dag Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Mótmæltu veginum um árabil Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá Ég var kölluð tjaldakonan Aldagömul mynt fannst í Höfnum Ætti að biðjast afsökunar Hnífi beitt í alvarlegri líkamsárás „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Leita að manneskju sem féll í Ölfusá Bjarni kallar eftir útskýringu Þrír fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu Tjaldsvæðið varð stútfullt þegar leið á kvöldið Einn stálheppinn fær 96,5 milljónir Arnar og Kári takast á í beinni í Spursmálum Sá ekki borgarísinn en taldi hann hættulegan Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Íslenska hitametið gæti fallið á morgun „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hitamet sumarsins fallið Hjólreiðamaður lést í Glerárdal

Share this article