Innlent | Morgunblaðið | 20.7.2026 | 22:35 Þrautir, söngur og varðeldur Búið er að slá upp tjöldum á landsmótssvæðinu við Kjarnaskóg. mbl.is/Þorgeir Baldursson Sigurður Bogi Sævarsson [email protected] Setja bókamerki Vænst er allt að 2.000 gesta á Landsmót skáta 2026 sem haldið verður á Hömrum í Kjarnaskógi við Akureyri og er nú að hefjast. Í gær var verið að setja upp ýmsan búnað og útbúa þá aðstöðu sem mótshaldinu fylgir og nú fer fólk að flykkjast á svæðið. Nú rúllar af stað dagskrá með skátaleikjum ýmiss konar en setningarathöfn mótsins er svo í kvöld og hún hefst kl. 20. „Á Landsmóti er alltaf einstök stemning og við hlökkum til næstu daga,“ segir Halldóra Ólafsdóttir talsmaður mótsins. Skylmingar, kleinubakstur, skógargöngur, þrautir, söngur og varðeldur. Þetta eru póstar í dagskrá mótsins sem stendur alla vikuna og lýkur á sunnudaginn næsta. Forseti Íslands, Halla Tómasdóttir, heimsækir landsmótið á fimmtudag. Þá verður mikið umleikis á laugardag og um kvöldið verður skemmtivaka í skóginum með fjölbreyttri dagskrá. Leikur á síðasta landsmóti. mbl.is/Sigurður Bogi Landsmót skáta var síðast haldið að Úlfljótsvatni fyrir tveimur árum. Mótin eru að jafnaði sitt á hvað, það er á Úlfljótsvatni og fyrir norðan. Heimsfaraldur og fleira settu strik í reikninginn svo þetta er fyrsta stóra mótið á Hömrum síðan 2014. Heldur færri gestir frá útlöndum koma á landsmót nú en stundum hefur verið áður. Kemur þar til að stór mót á vegum skátafélaga á Norðurlöndunum eru einmitt haldin um þessar mundir og margir ytra velja þau fremur en að koma til Íslands. Þema landsmótsins nú er Á Norðurslóð . „Því fylgir að ýmsir leikir og verkefni sem mótsgestir glíma við sem tengjast menningu og aðstæðum á norðurslóðum heimsins, þar sem náttúrufar er að breytast hratt. Hins vegar er fínasta veður hér á Akureyri nú, 20 stiga hiti og spáin fyrir næstu daga er góð,“ segir Halldóra Ólafsdóttir. Skátarnir lenda í ágætis veðri fyrir norðan. mbl.is/Þorgeir Hér má sjá tvo skáta glamra á gítar. mbl.is/Þorgeir Búið er að koma upp sviði á svæðinu. mbl.is/Þorgeir Það þarf aldeilis að pakka vel fyrir skátamót. mbl.is/Þorgeir mbl.is/Þorgeir Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Írinn skiptir um lið Þrautir, söngur og varðeldur Hef engar áhyggjur af falli Jenner og Chalamet ástfangin á úrslitaleik HM Ný ríkisstjórn tekur á sig mynd Umræðan Tími hvalveiða er liðinn Hvað gerum við þegar ríkisstjórn ákveður að fara á svig við stjórnarskrá Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Jetten neitar tali um undanþágur Ætti að biðjast afsökunar Vilja sameina fólk í sköpun og gleði Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Mest lesið Í gær Í vikunni Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá Röng frétt leiðrétt Bregðast við ummælum Þorgerðar Bjóst ekki við skrúfu í samlokunni Hefði aldrei verið samþykkt í dag Yfir 100 Íslendingar fastir í Gautaborg Mótmæltu veginum um árabil Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Varð að leggja út 800.000 krónur í gistingu Von á breytingum eftir „hálf ömurlega tíð“ „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Leita að manneskju sem féll í Ölfusá Bjarni kallar eftir útskýringu Þrír fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu Tjaldsvæðið varð stútfullt þegar leið á kvöldið Einn stálheppinn fær 96,5 milljónir Arnar og Kári takast á í beinni í Spursmálum Sá ekki borgarísinn en taldi hann hættulegan Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hitamet sumarsins fallið Nýjast á mbl.is » Írinn skiptir um lið Þrautir, söngur og varðeldur Hef engar áhyggjur af falli Jenner og Chalamet ástfangin á úrslitaleik HM Ný ríkisstjórn tekur á sig mynd Umræðan Tími hvalveiða er liðinn Hvað gerum við þegar ríkisstjórn ákveður að fara á svig við stjórnarskrá Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Gerðu árásir sjöunda daginn í röð Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Smávægileg bilun tafði heimför Íslendinganna Fregnir af tökum slökkviliðs á eldinum ýktar Mest lesið Í gær Í vikunni Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá Röng frétt leiðrétt Bregðast við ummælum Þorgerðar Bjóst ekki við skrúfu í samlokunni Hefði aldrei verið samþykkt í dag Yfir 100 Íslendingar fastir í Gautaborg Mótmæltu veginum um árabil Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Varð að leggja út 800.000 krónur í gistingu Von á breytingum eftir „hálf ömurlega tíð“ „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Leita að manneskju sem féll í Ölfusá Bjarni kallar eftir útskýringu Þrír fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu Tjaldsvæðið varð stútfullt þegar leið á kvöldið Einn stálheppinn fær 96,5 milljónir Arnar og Kári takast á í beinni í Spursmálum Sá ekki borgarísinn en taldi hann hættulegan Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hitamet sumarsins fallið