Innlent | Morgunblaðið | 20.7.2026 | 23:39 Þrjú ár líða hratt í flugbransanum Íslensk stjórnvöld sömdu um tímabundna sérlausn við innleiðingu ETS-reglnanna í EES-samninginn árið 2023. Að óbreyttu hefði undanþágan fallið úr gildi í lok þessa árs en hefur verið framlengd til ársins 2030. mbl.is/Eyþór Örn Óskar Pétursson Blöndal [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Krefur Þorgerði um skýrari svör Utanríkisráðherra Frakka í heimsókn Eykur ekki traust erlendra ráðamanna til Þorgerðar Frakkar gerðu ekki ráð fyrir undanþágum Ætti að biðjast afsökunar » Fleiri tengdar fréttir Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins (ESB) og íslensk stjórnvöld hafa lýst sameiginlegum vilja til að framlengja sérlausn Íslands vegna millilandaflugs með losunarheimildir innan ETS-kerfis ESB til ársins 2030. Sérlausnin átti að óbreyttu að falla úr gildi í lok þessa árs. Þetta kemur fram í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. Þar segir að framlengingin komi í kjölfar þess að framkvæmdastjórn ESB birti tillögur sínar um endurskoðun ETS-kerfisins sem nú ganga til aðildarríkjanna og Evrópuþingsins. Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair segir í samtali við Morgunblaðið að framlenging sérlausnarinnar sé mikilvæg og að það sé unnið áfram í því að fá varanlega lausn. „Við með íslenskum stjórnvöldum höfum talað fyrir varanlegri lausn hjá Evrópusambandinu til þess að taka tillit til sérstöðu Íslands hérna í miðju Atlantshafinu. Í rekstrinum þurfum við að hugsa og taka ákvarðanir til langs tíma hvað varðar flugvélakaup og fleira. Þess vegna er mikilvægt að hafa langtímafyrirsjáanleika og varanlegar lausnir en ekki skammtímasérlausnir því að þrjú ár eru fljót að líða í okkar grein,“ segir hann. Frétt af mbl.is Áfram unnið að varanlegri lausn Borga hlutfallslega meira en margir keppinautar Kostnaðurinn er mikill og verður áfram þrátt fyrir sérlausnina að sögn Boga. „Á síðasta ári var umhverfiskostnaður hjá okkur um 5 milljarðar með sérlausninni og ef hún hefði dottið út hefði hann kannski hækkað í kringum 6 milljarða. Sérlausnin tryggir að kostnaðurinn sé ekki að aukast og að við fáum fríheimildir áfram en þrátt fyrir það erum við að borga hlutfallslega meira en margir samkeppnisaðilar okkar og munum við gera það áfram.“ Hann segir að Icelandair og flugrekendur í Evrópu telji heldur óheppilegt að ESB og Evrópa reyni að leysa alþjóðlegt vandamál með staðbundinni lausn. „Flugrekstur er í eðli sínu alþjóðlegur og flugið færist þá bara til á hagkvæmari svæði. Það er mjög mikilvægt að unnið verði að því að finna alþjóðlega lausn en ekki staðbundið kerfi eins og verið er að vinna með núna.“ Hann tekur það sérstaklega fram að þessi ákvörðun sé nýtilkomin og að félagið eigi eftir að rýna frekar í bæði kerfið sem framkvæmdastjórn Evrópusambandsins er að leggja til og hvaða áhrif sérlausnin hefur á það kerfi, Icelandair og Ísland. „Það er jákvætt að sérlausnin sé framlengd, en það er aldrei heppilegt að vinna með tímabundnar lausnir,“ segir hann. Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair. Ljósmynd/Aðsend Tillit til sérstöðu Íslands Í tilkynningunni er einnig yfirlýsing frá Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra. Hún segir að þessi niðurstaða sé afrakstur víðtækrar hagsmunagæslu íslenskra stjórnvalda og staðfesti enn og aftur að innan Evrópusambandsins sé vilji til að taka tillit til sérstakra aðstæðna þar sem þær séu fyrir hendi. Hún bætti við á Facebook-síðu sinni: „Þó að þessu beri að fagna er verkefninu ekki lokið. Við munum áfram vinna að hagsmunum Íslands til lengri tíma – bæði hvað varðar flugsamgöngur og aðra geira þar sem sérstakar aðstæður okkar skipta máli.“ Frétt af mbl.is Sérlausn vegna flugs framlengd til 2030 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. Ljósmynd/Aðsend „Rausnarleg túlkun“ Lilja Dögg Alfreðsdóttir formaður Framsóknarflokksins svaraði ummælum utanríkisráðherra á Facebook-síðu sinni. „Grimm hagsmunagæsla gagnvart ESB kostar þjóðarbúið!“ skrifar hún. „Við Íslendingar getum ekki tekið lest til meginlands Evrópu. Ekki í dag og ekki árið 2030. Flugið er ekki munaður fyrir eyþjóð í Norður-Atlantshafi heldur forsenda atvinnulífs, ferðaþjónustu, viðskipta og tengsla við umheiminn.“ Hún bendir á að það sé mikilvægt að rugla ekki saman tímabundinni sérlausn og varanlegri viðurkenningu á grundvallarhagsmunum Íslands. „Það er ekki hægt að reka heilt hagkerfi á sérlausnum, undanþágum og stöðugri óvissu gagnvart Evrópusambandinu. Tímanum og orkunni sem lítil íslensk stjórnsýsla ver í að berjast aftur og aftur fyrir sömu sjálfsögðu hagsmununum væri betur varið í að leita nýrra tækifæra, efla verðmætasköpun og bæta lífskjör almennings,“ skrifar Lilja. Hún segir sérkennilegt að utanríkisráðherra líti á niðurstöðuna sem sönnun þess að Evrópusambandið taki tillit til sérstöðu Íslands, þar sem um sé að ræða tímabundna en ekki varanlega lausn. „Ef sambandinu væri raunverulega alvara með að viðurkenna landfræðilega stöðu okkar, þá hefði það tilkynnt um varanlega undanþágu í dag en ekki enn eina tímabundna framlenginguna. Að kalla það grimma hagsmunagæslu að fá frest til ársins 2030 er heldur rausnarleg túlkun. Hvað gerist þá? Hefst sami slagurinn á ný með óvissu fyrir íslensk heimili og fyrirtæki?“ skrifar hún að lokum. Frétt af mbl.is „Grimm hagsmunagæsla“ kostar þjóðarbúið Lilja Dögg Alfreðsdóttir formaður Framsóknarflokksins. Ljósmynd/Aðsend Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Ísland og ESB Krefur Þorgerði um skýrari svör Utanríkisráðherra Frakka í heimsókn Eykur ekki traust erlendra ráðamanna til Þorgerðar Frakkar gerðu ekki ráð fyrir undanþágum Ætti að biðjast afsökunar » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Þrjú ár líða hratt í flugbransanum Krefjast síma- og smáskilaboðagagna blaðamanna Myndir: Opnunarhátíð landsmóts skáta Fyrsta ársfjórðungsskýrsla SpaceX Messi var rændur Umræðan Tími hvalveiða er liðinn Hvað gerum við þegar ríkisstjórn ákveður að fara á svig við stjórnarskrá Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fundu mynt frá 11. öld við uppgröft Varað við hvassviðri við Jökulsárlón Þrjú ár líða hratt í flugbransanum Frakkar gerðu ekki ráð fyrir undanþágum Mest lesið Í gær Í vikunni Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá Röng frétt leiðrétt Bregðast við ummælum Þorgerðar Bjóst ekki við skrúfu í samlokunni Varð að leggja út 800.000 krónur í gistingu Hefði aldrei verið samþykkt í dag Yfir 100 Íslendingar fastir í Gautaborg Mótmæltu veginum um árabil Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Von á breytingum eftir „hálf ömurlega tíð“ „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Leita að manneskju sem féll í Ölfusá Bjarni kallar eftir útskýringu Þrír fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu Tjaldsvæðið varð stútfullt þegar leið á kvöldið Einn stálheppinn fær 96,5 milljónir Arnar og Kári takast á í beinni í Spursmálum Sá ekki borgarísinn en taldi hann hættulegan Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hitamet sumarsins fallið Nýjast á mbl.is » Þrjú ár líða hratt í flugbransanum Krefjast síma- og smáskilaboðagagna blaðamanna Myndir: Opnunarhátíð landsmóts skáta Fyrsta ársfjórðungsskýrsla SpaceX Messi var rændur Umræðan Tími hvalveiða er liðinn Hvað gerum við þegar ríkisstjórn ákveður að fara á svig við stjórnarskrá Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Enginn haft samband vegna skrúfunnar Aflýsa öðru flugi: Íslendingarnir sóttir í nótt Frakkar gerðu ekki ráð fyrir undanþágum „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Mest lesið Í gær Í vikunni Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá Röng frétt leiðrétt Bregðast við ummælum Þorgerðar Bjóst ekki við skrúfu í samlokunni Varð að leggja út 800.000 krónur í gistingu Hefði aldrei verið samþykkt í dag Yfir 100 Íslendingar fastir í Gautaborg Mótmæltu veginum um árabil Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Von á breytingum eftir „hálf ömurlega tíð“ „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Leita að manneskju sem féll í Ölfusá Bjarni kallar eftir útskýringu Þrír fluttir á sjúkrahús eftir bílveltu Tjaldsvæðið varð stútfullt þegar leið á kvöldið Einn stálheppinn fær 96,5 milljónir Arnar og Kári takast á í beinni í Spursmálum Sá ekki borgarísinn en taldi hann hættulegan Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Farþegar ósáttir og vopnaðir verðir kallaðir til Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Von á nífaldri úrkomu á við meðalár Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Íslenska hitametið gæti fallið á morgun Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hitamet sumarsins fallið