Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Lítil viðbrögð við framlengingu ETS-sérlausnar

Read Full Article →

Hlutabréfaverð Icelandair hefur hækkað um tæp 2% í 7 milljóna króna veltu í dag eftir að tilkynnt var um að framkvæmdastjórn ESB hyggist leggja til að sérlausn Íslands vegna millilandaflugs, innan viðskiptakerfis ESB með losunarheimildir (ETS), verði framlengd um 3 ár eða til ársins 2030. Gengi Icelandair lokaði í 0,74 krónum á hlut en til samanburðar var dagslokagengi félagsins í gær 0,726 krónur á hlut. Íslensk stjórnvöld sömdu árið 2023 um tímabundna sérlausn á grunni landfræðilegrar legu sem hefði að óbreyttu runnið út í lok árs 2026. Hún fól í sér að Íslandi var veitt heimild til að úthluta gjaldfrjálsum losunarheimildum fyrir flug milli Íslands og EES svæðisins, Bretlands og Sviss. Tilkynnt var í morgun um að framkvæmdastjórn ESB og íslensk stjórnvöld hefðu lýst sameiginlegum vilja til að framlengja sérlausn Íslands vegna millilandaflugs, innan viðskiptakerfis ESB með losunarheimildir (ETS), um 3 ár eða til ársins 2030. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sagði við Vísi að íslensk flugfélög fái með þessu loftslagsbætur upp á 1,6 milljarða. Sjá einnig Flugið á Ís­landi ber hæsta lofts­lags­kostnaðinn í Evrópu Icelandair hefur kallað eftir því að stjórnvöld beitu sér fyrir því að tryggja að fundin verði leið sem henti aðstæðum Íslands til lengri tíma. Umhverfisgjöld flugfélagsins námu um 5 milljörðum króna í fyrra og tvöfölduðust frá fyrra ári. Til samanburðar nemur markaðsvirði Icelandair ríflega 30 milljörðum króna í dag. Undanþágan þýðingarmikil Í nýlegu verðmati Akkurs, þar sem markgengi flugfélagsins var metið á 1,67 krónur í árslok, var litið til fjögurra ólíkra sviðsmynda. Grunnsviðsmyndin, sem fól í sér að bæði launakostnaður og gjöld vegna losunarheimilda myndu hækka hóflega mikið, leiddi af sér markgengi upp á 2,44 krónur á hlut í lok árs. Ein sviðsmyndin fól í sér að Íslandi myndi ekki takast að tryggja áframhaldandi undanþágu Íslands varðandi losunarheimildir fyrir flugsamgöngur í ETS kerfinu. Í þeirri sviðsmynd, sem fékk 25% vægi í verðmatinu, var markgengi Icelandair 0,87 krónur á hlut. Önnur sviðsmynd fól í sér að launakostnaður á hvert stöðugildi myndi hækka um 10% meira en í grunnsviðsmyndinni. Sú sviðsmynd leiddi af sér markgengi upp á 1,22 krónur á hlut. Í fjórðu sviðsmyndinni sem fól í sér annars vegar að ekki fengist áframhaldandi undanþága vegna ETS-kerfisins og að laun myndu hækka verulega var markgengi hlutabréfa Icelandair í lok árs metið á 0 krónur. Glæra tekin úr verðmati Akkurs.

Share this article