Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Spá hagnaðar­sam­drætti hjá Arion banka

Read Full Article →

Akkur spáir því að Arion banki hafi hagnast um 7,6 milljarða króna á öðrum árs­fjórðungi. Það væri um 26% minni hagnaður en á sama tíma í fyrra, þegar bankinn hagnaðist um 10,3 milljarða króna. Arion banki birtir upp­gjör sitt fyrir annan árs­fjórðung 29. júlí. Sam­kvæmt af­komu­spá Akkurs námu hreinar vaxta­tekjur bankans 14,6 milljörðum króna á fjórðungnum og jukust um 3% milli ára. Vaxta­munur bankans er áætlaður 3,4%, saman­borið við 3,5% á öðrum fjórðungi í fyrra. Akkur bendir á að verðbólga á öðrum fjórðungi hafi numið um 1,5%, svipað og á sama tíma í fyrra, en verið lægri en á fyrsta fjórðungi þegar hún var um 2,5%. Það leiði til þess að hreinar vaxta­tekjur lækki milli fjórðunga en hækki þó milli ára. Vaxta­munurinn er áætlaður 10 punktum lægri en fyrir ári og 40 punktum lægri en á fyrsta fjórðungi. Hreinar þóknana­tekjur eru áætlaðar 4,0 milljarðar króna og dragast saman um 12,3% milli ára. Þá gerir Akkur ráð fyrir að trygginga­rekstur Varðar skili 554 milljóna króna af­komu á fjórðungnum, saman­borið við 1,1 milljarð króna á sama tíma í fyrra. Það jafn­gildir 48% sam­drætti. Akkur gerir ráð fyrir að sam­sett hlut­fall Varðar verði 88,9% á fjórðungnum, sem er 950 punktum hærra en á sama tíma í fyrra. Það þýðir að trygginga­reksturinn er enn arðbær en af­koman lakari en áður, þar sem tjón og kostnaður taka stærri hluta ið­gjalda. Heildar­rekstrar­tekjur Arion banka eru áætlaðar 19,7 milljarðar króna og dragast saman um 7,8% milli ára. Rekstrar­kostnaður hækkar hins vegar um 6,6% og er áætlaður 7,1 milljarður króna. Þyngst vegur þó breyting í virðis­rýrnun. Akkur spáir 1,2 milljarða króna virðis­rýrnun á fjórðungnum, saman­borið við 147 milljóna króna jákvæða virðis­rýrnunarfærslu á sama tíma í fyrra. Greiningar­fyrir­tækið gerir ráð fyrir að virðis­rýrnun aukist bæði milli fjórðunga og milli ára. Hagnaður fyrir skatta er áætlaður 10,8 milljarðar króna, sem væri 24,4% sam­dráttur frá fyrra ári. Arð­semi eigin fjár er áætluð 14,9%, saman­borið við 20,9% á öðrum fjórðungi í fyrra. Kjarna­af­koma fyrir skatta, þar sem horft er til vaxta­tekna, þóknana­tekna, trygginga­rekstrar og kostnaðar, er áætluð 12,0 milljarðar króna og lækkar um 8,3% milli ára. Það bendir til þess að undir­liggjandi rekstur bankans sé veikari en á sama tíma í fyrra, þó að vaxta­tekjurnar haldi enn vel. Fimm atriði til að fylgjast með Akkur nefnir fimm at­riði sem fjár­festar ættu sér­stak­lega að fylgjast með í upp­gjörinu. Þar er fyrst horft til þróunar vaxta­munar, en verðbólga og verð­tryggingar­mis­vægi geta aukið sveiflur í hreinum vaxta­tekjum bankans. Þá skiptir máli hvernig þóknana­tekjur skiptast milli lána og ábyrgða, greiðslumiðlunar, fjár­festingar­banka­starf­semi og eignastýringar. Einnig verður fylgst með arð­semi eigin fjár, en hún hefur sveiflast á bilinu 11,7% til 20,9% síðustu sex fjórðunga. Þá verður sér­stak­lega horft til af­komu Varðar og þróunar tjóna, auk verð­tryggingar­mis­vægis bankans. Meta virði Arion um 58% yfir markaðsverði Akkur spáir því að Arion banki hagnist um 29,6 milljarða króna á árinu 2026 í heild, saman­borið við 32,5 milljarða króna í fyrra. Það jafn­gildir 9% sam­drætti. Hreinar vaxta­tekjur eru þó áætlaðar 57,7 milljarðar króna á árinu og hækka um tæp 10%. Arð­semi eigin fjár er áætluð 13,5% á árinu. Akkur er með kaup ráðgjöf á hluta­bréfum Arion banka. Verðmat greiningar­fyrir­tækisins er 291 króna á hlut, en síðasta loka­gengi fyrir birtingu spárinnar var 184,5 krónur. Munurinn nemur 58%.

Share this article