Hagnaður Emblu Medical, móðurfélags Össurar, á öðrum ársfjórðungi jókst um 39% frá sama tímabili í fyrra og nam 29 milljónum dala eða um 4 milljörðum króna. Hagnaðurinn samsvarar 11% af veltu. Félagið birti árshlutauppgjör í morgun. Sala Emblu á öðrum ársfjórðungi nam 259 milljónum dala eða um 32 milljörðum króna, sem samsvarar 11% heildarvexti og 6% innri vexti. Innri vöxtur í sölu á stoðtækjum nam 12% á fjórðungnum, vöxtur í spelkum og stuðningsvörum var 1% og tekjur af þjónustu við skjólstæðinga drógust saman um 2%. „Vöxturinn var fyrst og fremst drifinn áfram af kröftugum innri vexti í stoðtækjum, áframhaldandi góðu gengi í EMEA og APAC og góðum árangri nýrra vara. Vöxtur í spelkum og stuðningsvörum var hóflegur, en tekjur af þjónustu við skjólstæðinga lækkuðu á fjórðungnum,“ segir Sveinn Sölvason , forstjóri Emblu. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) nam 58 milljónum dala eða um 7 milljörðum króna, sem jafngildir 22% EBITDA framlegð á fjórðungnum, samanborið við 21% á öðrum ársfjórðungi 2025. „EBITDA framlegð hækkaði einkum vegna aukinnar sölu í stoðtækjum, áframhaldandi kostnaðaraðhalds og endurgreiðslu á tollum í Bandaríkjunum,“ segir í afkomutilkynningu Emblu. Í uppgjöri Emblu kemur fram að félagið hafi fengið endurgreiðslu vegna tolla í Bandaríkjunum upp á 4 milljónir dala eða sem nemur ríflega hálfum milljarði króna. Að frádregnum kostnaði vegna ferlisins nam nettó endurgreiðsla vegna tollana 3 milljónum dala, eða um 375 milljónum króna. Fjárhagsáætlun ársins 2026 hefur verið uppfærð í 5–7% innri vöxt, samanborið við fyrri áætlun um 5–8% innri vöxt. Áætlun um 20–22% EBITDA framlegð að teknu tilliti til einskiptisliða er óbreytt. Á fjórðungnum voru keypt 1.323.653 eigin bréf fyrir samtals 5,5 milljónir Bandaríkjadala eða um 0,7 milljarða króna.