- What: Samherji establishes a 300 million ISK fund to support drug addiction treatment
- Impact: Aimed at organizations working with drug users in Iceland
Samherji stendur að stofnun nýs átakssjóðs sem fengið hefur nafnið Samheldni. Sjóðnum er ætlað að styðja við innviðafjárfestingar hjá aðilum sem sinna meðferðarúrræðum fyrir fólk í fíknivanda hér á landi. Samherji mun leggja sjóðnum til 20 milljónir króna á ári næstu fimm árin, eða samtals 100 milljónir króna. Stefnt er að því að fá íslenskt atvinnulíf til liðs við verkefnið þannig að sjóðurinn geti úthlutað yfir 300 milljónum króna til þriggja verkefna sem þegar hafa verið valin. „Við vildum koma inn með myndarlegum hætti en því miður er þörfin svo gríðarleg að fleiri þurfa að leggjast á árarnar,“ segir Baldvin Þorsteinsson, forstjóri Samherja. Baldvin segir Samherja hafa í gegnum tíðina fundið fyrir því í eigin rekstri hversu djúpstæð og eyðileggjandi fíknivandamál geti verið. Fyrirtækið hafi reynt að styðja starfsfólk og fjölskyldur þess þegar slík mál hafi komið upp, en nú sé markmiðið að gera það með formlegri og víðtækari hætti. „Í nálægðinni við starfsfólkið finnum við hvað þessi mál eru átakanleg og hversu harkalega þau reyna á alla sem þeim tengjast,“ segir Baldvin. Hann segist vonast til þess að öflug fyrirtæki og fólk í íslensku atvinnu- og þjóðlífi taki þátt í átakinu með framlögum næstu fimm árin. Þrenn mikilvæg verkefni í forgang Samheldni hefur þegar valið þrjú verkefni sem eiga að njóta stuðnings úr sjóðnum. Markmiðið er að bæta aðstöðu og þjónustu við fólk í fíknivanda og fjölskyldur þeirra. Fyrsta verkefnið snýr að SÁÁ og stuðningi við fjölskyldur og ungmenni. Þar á að bæta umgjörð í kringum fjölskyldur þar sem börn eða ungmenni glíma við fíknivanda. Með skjótari og betri aðstoð sé hægt að hafa afgerandi áhrif á framtíð ungmennanna. Annað verkefnið snýr að Hlaðgerðarkoti. Þar á að reisa smáhýsi í landi meðferðarstöðvarinnar fyrir einstaklinga sem hafa lokið meðferð en þurfa áframhaldandi stuðning áður en þeir fara að fullu út í sjálfstætt líf. Heimilin hafa fengið heitið Brú út í lífið. Þriðja verkefnið er ný álma við meðferðarheimilið í Krýsuvík. Með henni fjölgar gistiplássum um 20. Í tilkynningu kemur fram að nú séu yfir 150 manns á biðlista eftir að komast í meðferð í Krýsuvík. Biskup verndari sjóðsins Guðrún Karls Helgudóttir, biskup Íslands, verður verndari Samheldni. Hún fagnar framtakinu og segir kirkjuna þekkja vel afleiðingar fíknisjúkdóma og mikilvægi meðferðarúrræða. „Ég mun því gera það sem ég get til þess að leggja þessu framtaki lið,“ segir Guðrún. Stjórn Samheldni skipa: Anna María Kristinsdóttir, mannauðsstjóri Samherja. Einar Logi Vignisson, framkvæmdastjóri RÚV sölu. Jón Ólafur Halldórsson, formaður Samtaka atvinnulífsins. Sunneva Ósk Guðmundsdóttir, framleiðslustjóri ÚA. Valgeir Magnússon, stjórnarformaður Pipars/TBWA og stjórnarformaður Samheldni. Varamaður: Marta María Winkel Jónasdóttir. Þá hefur einnig verið opnaður vefurinn samheldni.is en þar er að finna helstu upplýsingar um átakið og þau verkefni sem áætlað er að styrkja.