- What: Samherji launches addiction support fund
- Impact: Aims to support treatment programs for people with substance abuse issues
Samherji greindi í gær frá stofnun átakssjóðsins Samheldni, sem ætlað er að styðja við innviðafjárfestingar hjá aðilum sem sinna meðferðarúrræðum fyrir fólk í fíknivanda hér á landi. Með stofnun sjóðsins vilji Samherji, ásamt öðrum fyrirtækjum og einstaklingum, leggja sitt af mörkum. Í tilkynningu kemur fram að Samherji muni leggja sjóðnum til 20 milljónir króna á ári næstu fimm árin, eða samtals 100 milljónir króna. Samherji skorar nú á fleiri einstaklinga og fyrirtæki úr atvinnulífinu að taka þátt og leggja hönd á plóg. Markmiðið er að sjóðurinn geti úthlutað yfir 300 milljónum króna til þriggja verkefna sem þegar hafa verið valin. Í samtali við Viðskiptablaðið segir Baldvin Þorsteinsson, forstjóri Samherja, að verkefnið hafi verið í undirbúningi um nokkurt skeið. Hann segir ljóst að víða skorti á innviði í kringum meðferðarúrræði og aðgerðir gegn fíknivanda. Baldvin segir framtakið hafa fengið góðar viðtökur, og að forsvarsmenn Samheldni finni fyrir jákvæðum viðbrögðum. Hann segir hópinn jafnframt einhuga í því að fá sem flesta að borðinu, svo unnt sé að ná meiri árangri. Markmið sjóðsins er að styðja við verkefni sem efla þjónustu og úrræði fyrir fólk sem glímir við fíknisjúkdóma, sem og aðstandendur þeirra. Sjúkdómur með víðtæk áhrif Baldvin bendir á að áhrif fíknisjúkdóma nái langt út fyrir einstaklinginn sjálfan. Í flestum tilvikum hafi sjúkdómurinn einnig áhrif á fjölskyldu, vini og annað nærumhverfi. Hann telur því brýnt að styrkja innviði í kringum meðferð og bata. Samfélagið hafi einfaldlega ekki efni á að missa fólk úr virkri þátttöku. Hann segir fjárfestingu í slíkum úrræðum skila sér margfalt til baka, bæði fyrir einstaklingana sjálfa og samfélagið í heild. „Við erum ekki mörg í þessu samfélagi og ég hef þá sýn að við þurfum á öllum að halda. Það er verk að vinna í umgjörðinni í kringum þennan sjúkdóm og ég tel það hiklaust þess virði að við reynum okkar allra besta,“ segir Baldvin.