Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Spurningar sem kalla á svör fyrir ágústlok

Read Full Article →

Hvaða skoðun sem menn kunna að hafa á því hvort hagsmunum Íslands sé best borgið innan vébanda Evrópusambandsins eða ekki er grundvallaratriði að málið sé rætt út frá efnahagslegum staðreyndum en ekki tilfinningum. Áhugafólk um að íslensk stjórnvöld ljúki aðildarviðræðunum sem ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttir stofnaði til á sínum tíma birti myndskeið á samfélagsmiðlum í síðustu viku. Hópurinn kallar sig Sjá og í myndbandinu fullyrðir Margrét Rós Sigurðardóttir, varaborgarfulltrúi Viðreisnar, að kaupmáttur sé mun meiri í Svíþjóð en á Íslandi. Þá fullyrðingu rökstyður hún með því að bera saman hversu margar mjólkurfernur er hægt að kaupa fyrir lágmarkslaun í Svíþjóð annars vegar á Íslandi hins vegar. Var sá samanburður í myndskeiðinu Íslandi mjög í óhag – enda var stuðst við verð sem á sér enga stoð í veruleikanum og er 62% hærra en mjólkin kostar úti í búð um ­þessar mundir. Til að lesa meira Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér. Verð frá 6.295 kr. á mánuði Kaupa áskrift

Share this article