Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Póstkort frá Brussel að lokinni heimsmeistarakeppni

Read Full Article →

Deila Eins og fjallað var um á þessum vettvangi í liðinni viku ­hefur Morgunblaðið fjallað að undanförnu um þá staðreynd að enginn áhugi er meðal danskra og hollenskra ráðamanna á að samþykkja að Ísland, eitt aðildarríkjanna, fengi varanlegar undanþágur frá hinni sameiginlegu sjávar­útvegsstefnu ef til aðildar að Evrópusambandinu kæmi. Kveðið hefur við sama tón á írska þinginu og þau sjónarmið raunar einnig verið látin í ljós á vettvangi Evrópuþingsins. Þetta eru allt miklar fiskveiðiþjóðir sem hafa hagsmuni sem máli skipta þegar kemur að sjávarútvegi og í mörgum tilfellum eru þeir andsnúnir íslenskum hagsmunum. Þetta er ekki síst ­fréttnæmt sökum þess að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utan­ríkis­ráðherra hefur látið í veðri vaka að í samtölum hennar við ráðamenn aðildarríkjanna hafi komið fram ríkur vilji til þess að koma til móts við hagsmuni Íslendinga með alls kyns undanþágum, varan­legum undanþágum, sér­lausnum og aðlögunarfresti í sjávarútvegsmálum. Til að lesa meira Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér. Verð frá 6.295 kr. á mánuði Kaupa áskrift

Share this article