Innlent | Morgunblaðið | 22.7.2026 | 8:00 Aðsend grein: Finnland á hraðri niðurleið eftir inngöngu í ESB Albert Þór Jónsson Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Athyglisvert er að fylgjast með Finnlandi, sem gekk í Evrópusambandið 1995 og tók upp evru 1. janúar 1999, reyna núna að komast út úr efnahagslegri stöðnun með atvinnuleysi í methæðum sem er núna yfir 10%. Atvinnuleysi meðal ungs fólks er yfir 30%. Opinberar skuldir ríkissjóðs Finnlands nálgast nú 90% af þjóðarframleiðslu og fyrirliggjandi er efnahagsleg innspýting að fjárhæð 1.305 ma.kr. til að koma í veg fyrir algjöra stöðnun. Finnland hefur einnig misst mörg viðskiptasambönd við önnur lönd vegna veru sinnar í Evrópusambandinu. Vöxtur hefur verið lítill vegna hækkandi aldurs þjóðarinnar og fækkunar tæknifyrirtækja, m.a. Nokia. Nú liggur fyrir að tryggja þarf fjármálaaðgerðir til að koma í veg fyrir langtímastöðnun í atvinnulífi Finnlands. Finnland er eina landið á Norðurlöndum sem er bæði með evru og í Evrópusambandinu. Robert Aliber, hagfræðiprófessor við Chicago-háskóla, sagði á ráðstefnu í Háskóla Íslands á árinu 2008 að upptöku á öðrum gjaldmiðli á Íslandi væri hægt að líkja við að miðaldra karlmaður reyndi að fara í fermingarjakkann sinn, en sveigjanleiki skiptir auðlindahagkerfi eins og hið íslenska miklu máli þótt mörg rök mæli með upptöku annars gjaldmiðils. Óhagstæð gengisþróun getur haft mikil áhrif á rekstrarafkomu fyrirtækja, t.a.m. fyrirtæki í sjávarútvegi og ferðaþjónustu. Íslenska krónan hefur komið að góðum notum fyrir íslenska auðlindahagkerfið sem þarf að upplifa miklar sveiflur sem oft einkenna slík hagkerfi. Vandamálið snýr miklu fremur að hagstjórn og skynsamlegum ríkisrekstri. Það væri tilbreyting að fá raunhæfar lausnir á þeim vandamálum frá ráðherrum ríkisstjórnarinnar sem hafa lofað hagræðingu í ríkisrekstri en þess í stað vaxa ríkisútgjöldin og skattar og gjöld hækka eins og peningar vaxi á trjánum. Breytingar á vöxtum og gengi gjaldmiðla hafa veruleg áhrif á rekstur fyrirtækja bæði á Íslandi og á alþjóðlegum mörkuðum. Vextir voru lágir á alþjóðlegum fjármálamörkuðum frá árinu 2008 og voru neikvæðir í einstaka landi en hafa hækkað umtalsvert á undanförnum þremur árum. Á Íslandi hafa verið háir vextir á sama tíma og vaxtamunur hefur verið á bilinu 4-5% í samanburði við önnur lönd, þótt gera megi ráð fyrir 2-3% náttúrulegum vaxtamun vegna smæðar íslenska hagkerfisins auk þess sem Ísland er auðlindadrifið hagkerfi sem þarf að takast á við sveiflur í verði auðlinda sinna á alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Vandamálið snýr miklu fremur að hagstjórn og skynsamlegum ríkisrekstri. Sviss er ekki í Evrópusambandinu og notar ekki evru þrátt fyrir að landið sé umleikið löndum í Evrópusambandinu. Athyglisvert er að Ísland, Sviss og Noregur eru í þremur efstu sætum um mest lífsgæði í heiminum og eru ekki í Evrópusambandinu eða með evru sem gjaldmiðil, sem ætti að vera meðmæli með því að vera utan ESB. Hærri orkukostnaður, lægri rannsóknarkostnaður og lítið markaðssinnað háskólakerfi hefur leitt til þess að Evrópa er að dragast hratt aftur úr. Reglugerðavæðing hefur blásið út og viðeigandi fjármögnunarmöguleika við uppbyggingu hefur skort. Frá aldamótum hafa Bandaríkin vaxið um 68% á meðan Evrópa hefur vaxið um 40%. Framleiðnivöxtur í Evrópu var á pari við Bandaríkin fram til 1995 en frá þeim tíma hefur framleiðnivöxtur í Bandaríkjunum þrefaldast. ESB og Evrópa eru á hraðri niðurleið og taka öflug lönd eins og Finnland með sér í þá vegferð. Vonandi átta Íslendingar sig á þessum staðreyndum. Albert Þór Jónsson, viðskiptafræðingur (Cand. Oecon). Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Hafna 64 milljóna tilboði Chelsea Sól í borginni um helgina „Sveiflaðist á milli lífs og dauða“ Sjöfaldur NBA-meistari þjálfar krakka á Íslandi Aðsend grein: Finnland á hraðri niðurleið eftir inngöngu í ESB Umræðan Kostir smæðarinnar Finnland á hraðri niðurleið eftir inngöngu í ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Tímabært að kalla Þorgerði fyrir nefndina Sjá fram á góðan þriðja ársfjórðung Enginn haft samband vegna skrúfunnar Rannsókn vegna andlátsins hætt Mest lesið Í gær Í vikunni Slegist um orlofsíbúðir á sólríkari slóðum Gerði sér ferð til Íslands til að sjá fuglinn Segist ekki hafa rætt við Jetten Allar forsendur uppsagnarinnar brostnar Bætir í vind og rigningu vestanlands Kári leggst gegn umsókn að Evrópusambandinu Hefur tæknivæðing skólakerfisins gengið of langt? Heppinn Íslendingur vann 45 milljónir Tímabært að kalla Þorgerði fyrir nefndina Borgarstjóri hefur áhyggjur af innbrotafaraldri Rannsókn vegna andlátsins hætt Skemmdarverkin enn óupplýst: Aðkoman var ömurleg „Skelfileg og vanhugsuð breyting“ Rugluðust á Íslandi og Grænlandi Enginn haft samband vegna skrúfunnar Lögmaður mannsins: „Ekki séð neitt þessu líkt“ Sviptir flugréttindum og málið væntanlega kært Ekki á boðstólum ESB Varð að leggja út 800.000 krónur í gistingu Heppinn Íslendingur vann 45 milljónir Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hitamet sumarsins fallið Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Einn stálheppinn fær 96,5 milljónir Nýjast á mbl.is » Hafna 64 milljóna tilboði Chelsea Sól í borginni um helgina „Sveiflaðist á milli lífs og dauða“ Sjöfaldur NBA-meistari þjálfar krakka á Íslandi Aðsend grein: Finnland á hraðri niðurleið eftir inngöngu í ESB Umræðan Kostir smæðarinnar Finnland á hraðri niðurleið eftir inngöngu í ESB Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Tímabært að kalla Þorgerði fyrir nefndina Enginn haft samband vegna skrúfunnar Þrjú ár líða hratt í flugbransanum Bjóst ekki við skrúfu í samlokunni Mest lesið Í gær Í vikunni Slegist um orlofsíbúðir á sólríkari slóðum Gerði sér ferð til Íslands til að sjá fuglinn Segist ekki hafa rætt við Jetten Allar forsendur uppsagnarinnar brostnar Bætir í vind og rigningu vestanlands Kári leggst gegn umsókn að Evrópusambandinu Hefur tæknivæðing skólakerfisins gengið of langt? Heppinn Íslendingur vann 45 milljónir Tímabært að kalla Þorgerði fyrir nefndina Borgarstjóri hefur áhyggjur af innbrotafaraldri Rannsókn vegna andlátsins hætt Skemmdarverkin enn óupplýst: Aðkoman var ömurleg „Skelfileg og vanhugsuð breyting“ Rugluðust á Íslandi og Grænlandi Enginn haft samband vegna skrúfunnar Lögmaður mannsins: „Ekki séð neitt þessu líkt“ Sviptir flugréttindum og málið væntanlega kært Ekki á boðstólum ESB Varð að leggja út 800.000 krónur í gistingu Heppinn Íslendingur vann 45 milljónir Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Hitamet sumarsins fallið Hjólreiðamaður lést í Glerárdal Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Einn stálheppinn fær 96,5 milljónir