Guðmundur Marteinsson, stjórnarmaður í Brim, keypti í dag 110 þúsund hluti í útgerðarfélaginu, samkvæmt tilkynningu til Kauphallarinnar. Hlutirnir voru keyptir á genginu 89,5 krónur á hlut og nam heildarkaupverðið því 9.845.000 krónum. Bréf Brims lokuðu í 89,5 krónum í Kauphöllinni í gær og voru kaupin því gerð á sama gengi og dagslokagengi félagsins. Samkvæmt síðast birtum upplýsingum átti Guðmundur 74 þúsund hluti í Brim áður en hann tók sæti í stjórn félagsins í mars. Engin önnur viðskipti hans með bréf félagsins hafa verið tilkynnt síðan. Eftir kaupin á hann því 184 þúsund hluti. Miðað við dagslokagengið er eignarhluturinn metinn á tæplega 16,5 milljónir króna. Guðmundur kom inn í stjórn Brims á aðalfundi félagsins í mars. Hann tók þar sæti Magnúsar M.S. Gústafssonar, sem hafði setið í stjórn frá árinu 2018 en sóttist ekki eftir endurkjöri. Aðeins fimm framboð bárust í stjórnarsætin fimm og var Guðmundur því sjálfkjörinn. Sjá einnig Guðmundur á leið í stjórn Brims Hann tók þar sæti Magnúsar M.S. Gústafssonar, sem hafði setið í stjórn frá árinu 2018 en sóttist ekki eftir endurkjöri. Aðeins fimm framboð bárust í stjórnarsætin fimm og var Guðmundur því sjálfkjörinn. Guðmundur starfaði hjá Bónus á árunum 1992 til 2024 og var lengst af framkvæmdastjóri verslunarkeðjunnar. Hann lét af störfum hjá félaginu árið 2024. Viðskiptablaðið greindi frá því í mars að hlutabréfaeign hans í Brim næmi þá 74 þúsund hlutum, að markaðsvirði um 6,1 milljón króna miðað við þáverandi gengi. Sjá einnig Kveður Bónus með stolti