Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Guð­mundur seldi Brim bréf fyrir 3,1 milljarð

Read Full Article →

Út­gerðarfélag Reykja­víkur hefur samþykkt að selja Brimi 35 milljónir hluta í út­gerðarfélaginu fyrir 3,1 milljarð króna. Þetta kemur fram í kaup­hallar­til­kynningu en Út­gerðarfélag Reykja­víkur er al­farið í eigu Guð­mundar. Í ein­földu máli þýðir það að félag í eigu Guð­mundar Kristjáns­sonar, for­stjóra og stærsta hlut­hafa Brims, selur hluta af bréfum sínum í Brimi aftur til félagsins sjálfs. Brim kaupir eigin bréf til að geta notað þau við upp­gjör á kaupum félagsins á Lýsi, þar sem selj­endur Lýsis fá hluta kaup­verðsins greiddan með hluta­bréfum í Brimi. Salan er gerð í tengslum við endur­kaup Brims á eigin bréfum vegna upp­gjörs á kaupum félagsins á Lýsi. Brim til­kynnti í gærkvöldi að félaginu hefðu borist samþykkt til­boð frá hlut­höfum fyrir sam­tals 69 milljónir hluta að nafn­virði. Kaup­verðið var 88 krónur á hlut og heildar­kaup­verð bréfanna rúmir sex milljarðar króna. Nú liggur fyrir að rúm­lega helmingur þeirra hluta kom frá félagi Guð­mundar sjálfs. Út­gerðarfélag Reykja­víkur seldi 35 milljónir hluta, eða 1,79% af heildar­hluta­fé Brims, á genginu 88 krónur á hlut. Sölu­verðið nemur sam­tals 3.080 milljónum króna. Endur­kaupin tengjast Lýsis­við­skiptunum, þar sem selj­endur Lýsis fá helming kaup­verðsins greiddan með hluta­bréfum í Brimi. Með því að kaupa eigin bréf getur Brim af­hent selj­endum Lýsis hluti sem félagið á sjálft, í stað þess að gefa út nýja hluti í sama mæli. Það dregur úr útþynningu núverandi hlut­hafa. Brim hefur samið um kaup á öllu hluta­fé í Lýsi fyrir 20 milljarða króna. Kaup­verðið er lægra en upp­haf­legt sam­komu­lag gerði ráð fyrir, en í septem­ber í fyrra var til­kynnt um samþykkt kaup­til­boð í Lýsi fyrir 30 milljarða króna, að frá­dregnum vaxta­berandi skuldum upp á 5,3 milljarða króna. Í upp­færðu sam­komu­lagi verður kaup­verðið greitt að hálfu með reiðufé og að hálfu með hluta­bréfum í Brimi. Upp­haf­lega var miðað við gengið 63 krónur á hlut í Brimi, en í nýja sam­komu­laginu er miðað við 85 krónur á hlut. Selj­endur Lýsis munu fá 117,6 milljónir hluta í Brimi, sem sam­svarar um 6% af heildar­hluta­fé félagsins, nái Brim að nýta eigin bréf við upp­gjör við­skiptanna. Brim átti fyrir endur­kaupin 30,5 milljónir eigin hluta, eða 1,56% af heildar­hluta­fé. Við það bætast 20,8 milljónir hluta við upp­gjör á sölu Brims á hlut sínum í Mel­nesi og 69 milljónir hluta sam­kvæmt samþykktum til­boðum í endur­kaupunum. Að þeim við­skiptum loknum mun Brim eiga 120,3 milljónir eigin hluta, eða 6,15% af heildar­hluta­fé félagsins. Það er lítil­lega meira en sem nemur þeim hlutum sem selj­endur Lýsis eiga að fá í Brimi sam­kvæmt upp­færðu sam­komu­lagi. Sam­hliða Lýsis­við­skiptunum hefur Brim selt eignir fyrir sam­tals tæpa 20 milljarða króna. Sjá einnig Brim í sex milljarða endur­kaupum fyrir Lýsis­við­skiptin Félagið hefur selt 50% hlut sinn í Polar Sea­food Den­mark fyrir um 17,8 milljarða króna og 43% hlut sinn í út­gerðarfélaginu Mel­nesi á Rifi fyrir 1,8 milljarða króna. Við­skiptin sýna að Brim er að endur­raða eigna­safni sínu og eigin bréfum til að ljúka kaupum á Lýsi á nýjum for­sendum. Það sem bætist nú við er að Guð­mundur Kristjáns­son tekur sjálfur þátt í endur­kaupunum í gegnum Út­gerðarfélag Reykja­víkur, sem selur Brimi hluti fyrir rúma þrjá milljarða króna.

Share this article