Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Þýska ríkið fjárfestir í varnarfyrirtækjum

Read Full Article →

Þýska ríkisstjórnin kynnti í dag umfangsmiklar aðgerðir sem ætlað er að efla nýsköpun og blása lífi í efnahagslífið, meðal annars með beinum fjárfestingum ríkisins í sprotafyrirtækjum sem þróa varnartækni. Þetta kemur fram í umfjöllun Financial Times . Samkvæmt áætlunum stjórnvalda verður fjárfest í fyrirtækjunum í gegnum þýska þróunarbankann KfW. Jafnframt verða innleiddir skattahvatar, einfaldað ferli við stofnun fyrirtækja og stjórnsýsla gerð stafrænni til að auðvelda rekstur sprotafyrirtækja. „Við erum að leggja grunn að næstu kynslóð þýskra leiðandi fyrirtækja á heimsmarkaði,“ sagði Katherina Reiche, efnahagsráðherra Þýskalands. Hún sagði markmiðin þrjú vera að auðvelda stofnun fyrirtækja, hraða vexti þeirra og tryggja að nýsköpun og verðmætasköpun haldist innan Þýskalands. Aðgerðirnar eru hluti af viðleitni ríkisstjórnar Friedrichs Merz til að snúa við langvarandi stöðnun í stærsta hagkerfi Evrópu. Hefðbundnar útflutningsgreinar á borð við bílaframleiðslu og stáliðnað hafa átt undir högg að sækja vegna aukinnar samkeppni, einkum frá Kína, og stjórnvöld hafa í auknum mæli litið til nýsköpunar og varnariðnaðar sem drifkrafta framtíðarvaxtar. Þýsk stjórnvöld hyggjast verja meira en 700 milljörðum evra til varnarmála fyrir árið 2030 og vilja að sú fjárfesting skili ávinningi fyrir hagkerfið í heild. Meðal annars verður komið á fót nýju fjárfestingarfyrirkomulagi sem gerir ríkinu kleift að kaupa beinan eignarhlut í sprota- og vaxtarfyrirtækjum sem þróa vörur og þjónustu með hernaðarleg notagildi. Í tillögum stjórnvalda kemur jafnframt fram að hraða eigi afgreiðslu útflutningsleyfa fyrir varnartækni og auðvelda sprotafyrirtækjum að taka þátt í opinberum útboðum. Þá verður lögð áhersla á að koma í veg fyrir að viðkvæm tækni og þekking flytjist úr landi, meðal annars vegna þátttöku erlendra fjárfesta í stórum fjármögnunarlotum.

Share this article