Innlent | mbl | 28.7.2026 | 17:30 | Uppfært 17:45 Reykjavík kallar um verslunarmannahelgina Tónlistarhátíðin fer fram í Austurbæjarbíói um verslunarmannahelgina, 31. júlí-2. ágúst, þar sem boðið verður upp á fjölbreytta tónlistardagskrá á kvöldin og skemmtidagskrá yfir daginn. Ljósmynd/Innipúkinn Setja bókamerki „Miðasalan hefur gengið gríðarlega vel og hefur eiginlega bara sjaldan gengið betur. Það er greinilega mikil stemmning fyrir bæði hátíðinni og að vera í borginni núna um verslunarmannahelgina,“ segir Eldar Ástþórsson, einn skipuleggjanda hátíðarinnar Innipúkans. Tónlistarhátíðin fer fram í Austurbæjarbíói um verslunarmannahelgina, 31. júlí-2. ágúst, þar sem boðið verður upp á fjölbreytta tónlistardagskrá á kvöldin og skemmtidagskrá yfir daginn sem er ókeypis og opin öllum. Eldar segir aðstandendur hátíðarinnar sjaldan hafa fengið jafn góðar viðtökur og í ár. Þar telji hann að spili inn í dagskrá hátíðarinnar sem og mögulega veðrið en spáin er blíðara á Suðurlandi næstu helgi en annars staðar. Frétt af mbl.is Spáir blíðu sunnanlands um verslunarmannahelgina Frétt af mbl.is Á annan tug útihátíða um versló Eldar segir aðstandendur hátíðarinnar sjaldan hafa fengið jafn góðar viðtökur og í ár. Ljósmynd/Innipúkinn Stærri í ár „Innipúkinn hefur haldið ákveðnum séreinkennum sem eru eins ár frá ári en hann hefur alveg stækkað og eflst og er orðinn aðeins feitari. Hann hefur látið meira til sín taka síðustu ár en í upphafi,“ segir Eldar. „Ég held að það sé alveg óhætt að segja að hátíðin í ár sé með þeim stærri sem við höfum sett upp. Bæði er dagskráin sjálf vegleg og síðan er alltaf meiri og meiri áhugi fyrir hátíðinni sem er náttúrulega bara mjög jákvætt fyrir okkur og sömuleiðis listafólkið sem kemur fram því að við leggjum alltaf áherslu á það að hátíðin sé eingöngu skipuð íslenskum listamönnum og hljómsveitum og erum oft að gera þetta í góðri samvinnu við listafólkið.“ Á meðal þeirra sem koma fram á Innipúkanum í ár eru Retro Stefsson, Elín Hall, GDRN, Joey Christ og Gugugsar. Ljósmynd/Innipúkinn Hægt er að kynna sér dagskrá hátíðarinnar hér , en á meðal þeirra sem koma fram á Innipúkanum í ár eru Retro Stefsson, FM Belfast, Elín Hall, GDRN, Joey Christ og Gugugsar, svo eitthvað sé nefnt. Þá mun flóamarkaður hátíðarinnar, Nískupúkinn, snúa aftur þar sem hægt verður að næla sér í föt, list, handverk og alls konar annað á góðu verði. Sömuleiðis verður einnig boðið upp á Popppunktar pöbbkviss Dr. Gunna. Ljósmynd/Innipúkinn Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Infantino áformar að selja hlutabréf í HM Hvít-Rússneskir menn stefna íslenska ríkinu KR-ingar styrkja sig Reykjavík kallar um verslunarmannahelgina Beint: Fundur Áfram Ísland á Egilsstöðum Umræðan Um fullt að semja Hvers vegna þurfti þá meint samkomulag? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Upplýsingagjöf hefði mátt vera betri Enn sár skortur þrátt fyrir fögur fyrirheit Hvað ef það verður skýjað 12. ágúst? Aðalsteinn gekk á hólm við easyJet Mest lesið Í gær Í vikunni 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Átti að mæta eftir hálftíma: „Ég er dottinn í það“ Kröftugur skjálfti í Bárðarbungu Hnuplaði vörum að andvirði tæprar milljónar króna Myndskeið: Refur át lömb skammt frá þjóðveginum Ming Ting dæmd í 12 ára fangelsi Hvað ef það verður skýjað 12. ágúst? Tóku eftir því við lendingu að maðurinn var horfinn Meginþorri umsókna renni í gegn Aðalsteinn gekk á hólm við easyJet Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Íslendingum sendur tónninn Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Flugmaðurinn fundinn: Fluttur á Landspítalann Banaslys á Þrengslavegi Lilja syrgir Hilmar og þakkar fyrir dýrmætan tíma „Langt síðan að það var skjálfti af þessari stærð“ Vonlaus barátta við Fæðingarorlofssjóð Leita flugmanns eftir tilkynningu um flugslys Leita að manni á sjó: Fjögur útköll á skömmum tíma Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Íslendingum sendur tónninn Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Þungbært mál Íslendings í Noregi Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Ástandið aldrei verið eins slæmt Nýjast á mbl.is » Infantino áformar að selja hlutabréf í HM Hvít-Rússneskir menn stefna íslenska ríkinu KR-ingar styrkja sig Reykjavík kallar um verslunarmannahelgina Beint: Fundur Áfram Ísland á Egilsstöðum Umræðan Um fullt að semja Hvers vegna þurfti þá meint samkomulag? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ætlar að áfrýja dómi héraðsdóms Ekki gert til þess að tefja fyrir 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Óvissa um afleiðingar bæði jás og neis Mest lesið Í gær Í vikunni 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Átti að mæta eftir hálftíma: „Ég er dottinn í það“ Kröftugur skjálfti í Bárðarbungu Hnuplaði vörum að andvirði tæprar milljónar króna Myndskeið: Refur át lömb skammt frá þjóðveginum Ming Ting dæmd í 12 ára fangelsi Hvað ef það verður skýjað 12. ágúst? Tóku eftir því við lendingu að maðurinn var horfinn Meginþorri umsókna renni í gegn Aðalsteinn gekk á hólm við easyJet Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Íslendingum sendur tónninn Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Flugmaðurinn fundinn: Fluttur á Landspítalann Banaslys á Þrengslavegi Lilja syrgir Hilmar og þakkar fyrir dýrmætan tíma „Langt síðan að það var skjálfti af þessari stærð“ Vonlaus barátta við Fæðingarorlofssjóð Leita flugmanns eftir tilkynningu um flugslys Leita að manni á sjó: Fjögur útköll á skömmum tíma Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Íslendingum sendur tónninn Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Þungbært mál Íslendings í Noregi Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur 400 metra langur borgarísjaki óvenju nálægt landi Ástandið aldrei verið eins slæmt