Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Ófullnægjandi ástand á Hraunbúðum

Read Full Article →

Innlent | mbl | 23.7.2026 | 21:55 | Uppfært 22:15 Ófullnægjandi ástand á Hraunbúðum Hjúkrunarheimilið Hraunbúðir í Vestmannaeyjum. mbl.is/Óskar Pétur Friðriksson Setja bókamerki Landlæknir hefur gert alvarlegar athugasemdir er varða Hjúkrunar- og dvalarheimilið Hraunbúðir í Vestmannaeyjum. Athugasemdirnar snúa að mönnun, húsnæði og brunavörnum á heimilinu. Í nýrri úttekt landlæknis, sem framkvæmd var í tilefni af alvarlegu atviki sem átti sér stað á Hraunbúðum, kemur meðal annars fram að hlutfall hjúkrunarfræðinga á heimilinu sé aðeins 12% en lágmarksviðmið eru 20%. Þá er hlutfall faglærðra í umönnun 27% en lágmarksviðmið á landinu er 57%. Frétt af mbl.is Rannsókn vegna andlátsins hætt Mönnunarvandamál Landlæknir lýsir því yfir í úttekt sinni að mönnun sé mikið vandamál á Hraunbúðum. Stöðugildi hjúkrunarfræðinga eru 4,1 og sjúkraliða 4,87. Stöðugildi ófaglærðs starfsfólks eru 24,58. Hlutfall hjúkrunarfræðinga er sagt vera 12% en samkvæmt almennum viðmiðum um mönnun á hjúkrunarheimilum er lágmarkshlutfall 20% og æskilegt hlutfall 27%. Hlutfall faglærðs fólks í umönnun á heimilinu er 27% en lágmarksviðmið eru 57% og æskilegt hlutfall 78%. Hins vegar kemur fram að fjöldi umönnunarklukkustunda á hvern íbúa á sólarhring sé innan viðmiða. Landlæknir segir vandamál í mönnun geta haft ýmsar afleiðingar. Það geti ógnað gæðum þjónustunnar sem boðið er upp á á heimilinu, aukið álag á starfsfólk og þá sé hætta á því að ófaglært starfsfólk taki á sig of mikið ábyrgðarhlutfall án nægilegrar þekkingar. Síðustu 3 ár hefur starfsmannavelta verið 35% og starfsánægja hefur mælst undir viðmiðum. Frétt af mbl.is Hafa fengið ýmsar ábendingar um hjúkrunarheimilið Húsnæðismál Landlæknir gerir miklar athugasemdir við húsnæði Hraunbúða sem leigt er af Vestmannaeyjabæ. Það var upprunalega reist sem bráðabirgðahúsnæði eftir eldgosið árið 1973 og er enn að mestu leyti upprunalegt. Húsnæðið er sagt vera í ófullnægjandi ástandi. Þá snýr alvarlegasta athugasemdin að rýmingu hússins, en ekki er hægt að koma rúmum íbúa út um herbergisdyr ef koma skyldi til rýmingar. Þá verði að tryggja fullnægjandi brunavarnir og að hægt sé að rýma húsið örugglega. Að sögn stjórnenda hefur lengi verið óskað eftir nauðsynlegum endurbótum af hálfu eiganda húsnæðisins og áætlað er að framkvæmdir hefjist seinna í ár. Frétt af mbl.is „Búið að eyðileggja líf þriggja hjúkrunarfræðinga“ Íbúar og aðstandendur ánægðir Þrátt fyrir athugasemdir landlæknis virðast íbúar Hraunbúða og aðstandendur þeirra almennt ánægðir með vistina þó svo að ósætti ríki um ákveðna þætti starfseminnar, svo sem upplýsingagjöf til aðstandenda og mönnun. 74 atvik voru skráð á Hraunbúðum árið 2025 og ekkert þeirra metið alvarlegt; úrvinnslu var ekki lokið í einu einasta atviki þegar úttekt landlæknis fór fram. Embætti landlæknis setti fram fjöldann allan af athugasemdum en nú stendur til að vinna að úrbótum á þeim fjölþættu vandamálum sem hjúkrunarheimilið glímir við. Þá eiga stjórnendur Hraunbúða að skila úrbótaáætlun fyrir 1. september og framgangsskýrslum í framtíðinni. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Kristófer og Karen með forystu eftir fyrsta dag Manstu eftir brúðkaupi Jóns Óttars og Margrétar Ófullnægjandi ástand á Hraunbúðum Nóg af mörkum í 1. deildinni Bræður Bosemans höfða mál gegn ekkju hans Umræðan Hverjir draga stutta stráið? Það skiptir máli á hvaða grunni viðræður eru hafnar á ný Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skoða þarf úrskurðinn í samræmi við þrjú skilyrði Telur ekki tímabært að gera mislæg gatnamót Velferðin þarf verðmætasköpun Aldrei ókostur að vera frá Íslandi Mest lesið Í gær Í vikunni Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Þungbært mál Íslendings í Noregi „Djöfullegt að vera hættur í þurrheyinu“ Stúlkan fannst heil á húfi Fundu týnda ferðamenn á Kristínartindum „Tommi og Jenni“ í lifanda lífi á Framnesvegi Kynntust læknanáminu í sumarskóla í Tékklandi „Þetta fólk er vont“ Selur Hlíðarkaup eftir 35 ár í rekstri Varað við vindi Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Ástandið aldrei verið eins slæmt Segist ekki hafa rætt við Jetten Málarar með tárin í augunum í vætunni Slegist um orlofsíbúðir á sólríkari slóðum Kynnir í 55 ár: Lifði fyrir og lést á Þjóðhátíð Gerði sér ferð til Íslands til að sjá fuglinn Allar forsendur uppsagnarinnar brostnar „Þú sigar hundum á sauðfé – ekki lögreglu“ Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Þungbært mál Íslendings í Noregi Nýjast á mbl.is » Kristófer og Karen með forystu eftir fyrsta dag Manstu eftir brúðkaupi Jóns Óttars og Margrétar Ófullnægjandi ástand á Hraunbúðum Nóg af mörkum í 1. deildinni Bræður Bosemans höfða mál gegn ekkju hans Umræðan Hverjir draga stutta stráið? Það skiptir máli á hvaða grunni viðræður eru hafnar á ný Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Stjórnsýslan myndi þenjast verulega út Nátttröllið í úkraínska hernum Málarar með tárin í augunum í vætunni Tímabært að kalla Þorgerði fyrir nefndina Mest lesið Í gær Í vikunni Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Þungbært mál Íslendings í Noregi „Djöfullegt að vera hættur í þurrheyinu“ Stúlkan fannst heil á húfi Fundu týnda ferðamenn á Kristínartindum „Tommi og Jenni“ í lifanda lífi á Framnesvegi Kynntust læknanáminu í sumarskóla í Tékklandi „Þetta fólk er vont“ Selur Hlíðarkaup eftir 35 ár í rekstri Varað við vindi Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Ástandið aldrei verið eins slæmt Segist ekki hafa rætt við Jetten Málarar með tárin í augunum í vætunni Slegist um orlofsíbúðir á sólríkari slóðum Kynnir í 55 ár: Lifði fyrir og lést á Þjóðhátíð Gerði sér ferð til Íslands til að sjá fuglinn Allar forsendur uppsagnarinnar brostnar „Þú sigar hundum á sauðfé – ekki lögreglu“ Allar björgunarsveitir kallaðar út í Eyjafirði Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Þungbært mál Íslendings í Noregi

Share this article