Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Lágt hlutfall hjúkrunarfræðinga á Hraunbúðum dapurlegt en „kemur ekki á óvart“

Read Full Article →

Helga Rósa Másdóttir, formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, segir mjög alvarlegt að hlutfall hjúkrunarfræðinga á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum sé langt undir viðmiðum til að tryggja öryggi. Embætti landlæknis gerði alvarlegar athugasemdir við aðbúnað á heimilinu í skýrslu sem unnin var eftir tilkynningu um alvarlegt atvik fyrr á árinu. Þar voru meðal annars gerðar athugasemdir við mönnun. Hlutfall hjúkrunarfræðinga á Hraunbúðum er 12% en lágmarkshlutfall til að tryggja öryggi íbúa er 20%. „Það er auðvitað vel þekkt og vel rannsakað að rétt mönnun hjúkrunarfræðinga eykur öryggi þeirra sem þurfa á heilbrigðisþjónustu að halda. Þetta er mjög dapurleg frétt að heyra en kemur því miður ekki á óvart,“ segir Helga Rósa. Gagnrýnir að skuldinni sé skellt á starfsmenn, ekki stofnunina Þegar svo lágt hlutfall hjúkrunarfræðinga sé við störf á stofnun segir hún að líkur geti aukist á því að óvænt eða alvarleg atvik verði. Starfsmaður Hraunbúða tilkynnti andlát konu á tíræðisaldri á Hraunbúðum til lögreglu í janúar. Tveir starfsmenn höfðu réttarstöðu sakbornings en lögregla hætti rannsókn á dögunum, eftir að endanleg krufningarskýrsla barst. Helga Rósa segir mikinn létti að rannsókninni hafi verið hætt. Hún er jafnframt gagnrýnin á að sökinni sé skellt á starfsmenn þegar atvik koma upp. „Ef það koma upp óvænt atvik og það er alveg ljóst að hlutirnir eru ekki í lagi,“ segir Helga Rósa og tekur þar ótryggt starfsöryggi vegna lágrar mönnunar, lélegs tækjabúnaðar eða húsnæðis sem dæmi. „Að þá séu starfsmennirnir dregnir til saka en ekki stofnunin,“ segir hún.

Share this article