Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Bandaríkin leggja nýja tolla á innflutning frá 85 ríkjum

Read Full Article →

Bandaríkin leggja nýja innflutningstolla á vörur frá 85 ríkjum frá og með morgundeginum. Stjórn Donalds Trumps sakar ríkin um að hafa ekki gert nóg til að sporna gegn nauðungarvinnu í framleiðslu. Tollarnir verða á bilinu 10–12,5%. Í tilkynningu stjórnvalda segir að tollarnir verði lagðir á 60 viðskiptalönd. Inni í þeirri tölu er Evrópusambandið, með sín 27 aðildarríki, og svo er litið á Hong Kong og Kína sem tvö ólík viðskiptalönd en Hong Kong tilheyrir Kína. Á hvaða ríki leggst innflutningstollurinn? Í tilkynningu bandarískra stjórnvalda segir að 54 viðskiptalöndum hafi ekki tekist að leggja á og framfylgja banni við innflutningi vara sem framleiddar eru af vinnuafli í nauðungarvinnu. Þessi lönd eru: Alsír, Angóla, Argentína, Ástralía, Bahamaeyjar, Bangladess, Barein, Brasilía, Bretland, Chile, Dóminíska lýðveldið, Egyptaland, El Salvador, Filippseyjar, Gvæjana, Gvatemala, Hondúras, Hong Kong, Indland, Írak, Ísrael, Japan, Jórdanía, Kambódía, Kasakstan, Katar, Kína, Kólumbía, Kosta Ríka, Kúveit, Líbía, Malasía, Marokkó, Nígería, Níkaragva, Noregur, Nýja-Sjáland, Óman, Perú, Rússland, Sádi-Arabía, Sameinuðu arabísku furstadæmin, Singapúr, Sri Lanka, Suður-Afríka, Suður-Kórea, Sviss, Taíland, Taívan, Trínidad og Tóbagó, Tyrkland, Úrúgvæ, Venesúela og Víetnam. Þá segir í tilkynningunni að sex viðskiptalöndum hafi ekki tekist að framfylgja banni við innflutningi vara sem framleiddar eru af vinnuafli í nauðungarvinnu. Þau eru: Ekvador, Evrópusambandið (27 aðildarríki) , Indónesía, Kanada, Mexíkó og Pakistan . 99,4% af öllum innflutningi til Bandaríkjanna kemur frá löndunum 85, að því er segir í frétt The Guardian . Nokkrir vöruflokkar eru þó undanþegnir nýju tollunum, þar á meðal olía og jarðgas, áburður og nokkrar tegundir matvæla. Jamieson Greer, viðskiptafulltrúi Bandaríkjanna, segir markmiðið með tollunum vera að bregðast við mannréttindabrotum og tryggja sanngjarnari samkeppni. Í febrúar lagði Donald Trump 10% toll á innflutning frá öllum ríkjum heims. Gildistími þeirra var 150 dagar og þeir falla því úr gildi á morgun. Fréttin var uppfærð.

Share this article