Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Ísland ekki á nýjum tollalista Trump

Read Full Article →

Ríkisstjórn Bandaríkjanna tilkynnti í gærkvöldi um nýja tolla, sem ná frá 10% til 12,5%, á 60 hagkerfi. Hinir nýju tollar taka við af tímabundnum 10% tollum sem runnu sitt skeið í dag. Ísland er ekki á lista yfir lönd sem sæta hinum nýju tollum. Með nýju tollunum hyggst ríkisstjórnin bregðast við því að Hæstiréttur Bandaríkjanna komst í febrúar síðastliðnum að þeirri niðurstöðu að hluti tollanna sem Trump tilkynnti á „frelsisdeginum“ 2. apríl 2025 hafi verið ólögmætur og var bandarískum tollyfirvöldum gert að endurgreiða þá. Í kjölfar dómsins tóku bandarísk stjórnvöld upp 10 prósenta tímabundna tolla, en þær ráðstafanir renna út í dag. Bandarískir embættismenn hafa undirbúið nokkrar leiðir sem gera Trump kleift að innleiða nýja tolla, meðal annars á grundvelli rannsóknar á nauðungarvinnu, sem gerir Trump kleift að komast hjá því að styðjast við neyðarheimildirnar sem Hæstiréttur Bandaríkjanna felldi úr gildi. Nýju álögurnar verða lagðar á yfir 80 lönd, sem skrifstofa viðskiptafulltrúa Bandaríkjanna segir nái til um 99% af utanríkisviðskiptum Bandaríkjanna. Lönd sem hafa í lögum ákvæði um að berjast gegn nauðungarvinnu sæta 10% tolli, en lönd sem ekki hafa slík lagaákvæði sæta 12,5% tolli. Hinir nýju tollar ná ekki til vara sem falla undir sérstaka innlenda þjóðaröryggistolla, svo sem stál, ál, bifreiðar og varahlutir. Jafnframt verða ákveðnar innfluttar matvæla- og landbúnaðarvörur, áburður og orkuframleiðsluvörur undanþegnar tollunum.

Share this article