Innlent | Morgunblaðið | 24.7.2026 | 23:18 Gamlar hefðir á Grenjaðarstað Anna Karen og Unnsteinn Ingason með þvottabretti í bala. Smalahundurinn Kaldi með eigendum sínum. mbl.is/Atli Vigfússon Atli Vigfússon Laxamýri Setja bókamerki Það var margt um manninn í góða veðrinu á Grenjaðarstað í Aðaldal um síðustu helgi en boðað hafði verið til fjölskyldudags á byggðasafninu. Það var Anna Karen Unnsteins, þjóðfræðingur og viðburðastjóri Menningarmiðstöðvar Þingeyinga á Grenjaðarstað, sem hafði veg og vanda af skipulagningunni og aðaltilgangurinn var að rifja upp gamlar vinnuaðferðir. Þá var einnig farið í leiki og íslenski fjárhundurinn var á svæðinu enda var dagur íslenska hundsins sl. laugardag, 18. júlí. Vel sótt í sólinni Unnið var á nokkrum stöðum við gamla bæinn og gat fólk farið á milli svæða til þess að taka þátt í því sem var að gerast. Tóvinnan var í baðstofunni þar sem sýnt var hvernig ull verður að bandi og fengu allir að kemba og spinna að vild. Margir krakkar höfðu gaman af að handleika ullarkambana og rokkurinn fékk að snúast. Þá var unnið með hrosshár og föt voru þvegin upp á gamla mátann í bala með þvottabretti norðan við bæinn. Þeir kunnu sannarlega handtökin við sláttinn, þeir Indriði Ketilsson á Ytrafjalli og Pétur Fornason í Fornhaga. mbl.is/Atli Vigfússon Heyskapur var í hávegum hafður og það voru þeir Pétur Fornason, bóndi í Fornhaga, og Indriði Ketilsson, bóndi á Ytrafjalli, sem sýndu gamlar aðferðir. Þeir voru með orf og ljá og leyfðu yngra fólki að spreyta sig á slættinum. Þá var heyinu snúið með hrífum og sett í garða. Eftir sláttinn sýndi Indriði hvernig binda á í bagga og hélt smá fyrirlestur um aðferðina. Honum til aðstoðar var Snorri Sigurðsson, skjalavörður á Menningarmiðstöð Þingeyinga, sem fékk þar góða tilsögn, en Indriði, sem er kominn yfir nírætt, kann mörg handtök í ævagömlum vinnuaðferðum. Anna Karen var mikið með börnin í huga á þessum degi og var með fulla kassa af leikföngum fyrri tíma og er þá átt við hornabúið eða gullabúið eins og sumir kalla það. Anna Karen kenndi krökkunum að leika sér með leggi og naut það mikilla vinsælda. Þá var farið í gamla leiki og höfðu allir gaman af. Kristín Ingibjörg Hlynsdóttir spann í rokk í baðstofunni. mbl.is/Atli Vigfússon Dagur sem þessi var á Grenjaðarstað í fyrra og var vel sóttur. Nú spillti ekki að fólk gat setið úti í sólinni og notið veitinga. Þarna voru kleinur á boðstólum, kaffi og ýmsir drykkir fyrir börn. Þess vegna stoppaði fólk lengur. Hlöðuloftið var opið þar sem margt er til sölu, enda mikið af vönduðum prjónaskap á boðstólum og mikið er til af öðru fjölbreyttu handverki. Þar má nefna, auk prjónavöru, bein, horn, hönnunarvöru og myndlist. Gamli bærinn þarf mikið viðhald Gamli burstabærinn á Grenjaðarstað var reistur að hluta árið 1865 af sr. Magnúsi Jónssyni. Bætt var við hann í tíð sr. Benedikts Kristjánssonar sem tók við staðnum árið 1877. Flatarmál bæjarins er 775 fermetrar. Fimm burstir snúa í austur en að baki er hlóðaeldhús, búr og baðstofa sem er tvílyft. Oft var heimilisfólk milli 20-30 manns og gestgangur mikill. Síðasti prestur sem bjó í bænum var sr. Þorgrímur V. Sigurðsson frá 1931-1936 er reist var nýtt prestsseturshús. Á árunum 1950-1957 lét þáverandi þjóðminjavörður, dr. Kristján Eldjárn, endurbæta bæinn og gera við allt sem úr sér hafði gengið. Hinn 9. júlí 1958 var opnað Byggðasafn Þingeyinga. Gamli bærinn á Grenjaðarstað er fallegur. mbl.is/Atli Vigfússon Síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar og bærinn verið lagaður og endurhlaðinn í áranna rás. Verkefnin eru mörg og að sögn Styrmis Franz Snorrasonar, sem passar bæinn nú í sumar, liggja fyrir framkvæmdir sem verður að sinna. Meiningin er að fara í að laga norðurvegg torfbæjarins með hjálp Fornverkaskólans, en í fyrra var þekjan yfir búrinu endurgerð. Anna Karen viðburðarstjóri var í lok dags himinlifandi með aðsóknina en yfir 150 manns tók þátt í því sem verið var að gera og gladdist mjög yfir þessum skemmtilega fjölskyldudegi. Var virkilega gaman og koma heim að Grenjaðarstað í þessu góða veðri og líka að fá innsýn í allan þennan fróðleik. Elín Kjartansdóttir kunni tökin á heyhrífunni. mbl.is/Atli Vigfússon Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Gamlar hefðir á Grenjaðarstað Þegar Ísland sótti ekki um Sveindís birtir fleiri myndir af kærastanum Saksóknara Alþjóðaglæpadómstólsins vikið úr starfi Sígild tónlist á fornum söguslóðum Umræðan Krafa um sanngjarnar leikreglur Stigmögnunarhættan vegna Pútíns Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sækja slasaðan einstakling á skemmtiferðaskip Þegar Ísland sótti ekki um Áttu að fá 2,5 milljónir á mann fyrir verkið Allar ákvarðanir senn teknar í Reykjavík Mest lesið Í gær Í vikunni Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Verktakasamningi var rift um leið og málið kom upp Rafbílar hækka um allt að 45% við inngöngu í ESB Dularfullt hljóð hélt vöku fyrir bæjarbúum Átti bágt með að trúa eigin augum Flugmannahópur Icelandair stækkar um 31 Afskrifuðu sektir fyrir 670 milljónir Mistök Vísis og þrettán daga þögn Fimm flutt á sjúkrahús eftir bílslys Bátur sigldi yfir kajakræðara Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Þungbært mál Íslendings í Noregi „Djöfullegt að vera hættur í þurrheyinu“ Stúlkan fannst heil á húfi „Þetta fólk er vont“ Fundu týnda ferðamenn á Kristínartindum „Tommi og Jenni“ í lifanda lífi á Framnesvegi Myndskeið: Braut bílrúðu með hamri Kynntust læknanáminu í sumarskóla í Tékklandi Selur Hlíðarkaup eftir 35 ár í rekstri Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Þungbært mál Íslendings í Noregi Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan Nýjast á mbl.is » Gamlar hefðir á Grenjaðarstað Þegar Ísland sótti ekki um Sveindís birtir fleiri myndir af kærastanum Saksóknara Alþjóðaglæpadómstólsins vikið úr starfi Sígild tónlist á fornum söguslóðum Umræðan Krafa um sanngjarnar leikreglur Stigmögnunarhættan vegna Pútíns Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Rafbílar hækka um allt að 45% við inngöngu í ESB Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Tók skyndiákvörðun og fór á „besta leik í sögu HM“ Moskító á undanhaldi á Íslandi Mest lesið Í gær Í vikunni Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Verktakasamningi var rift um leið og málið kom upp Rafbílar hækka um allt að 45% við inngöngu í ESB Dularfullt hljóð hélt vöku fyrir bæjarbúum Átti bágt með að trúa eigin augum Flugmannahópur Icelandair stækkar um 31 Afskrifuðu sektir fyrir 670 milljónir Mistök Vísis og þrettán daga þögn Fimm flutt á sjúkrahús eftir bílslys Bátur sigldi yfir kajakræðara Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Þungbært mál Íslendings í Noregi „Djöfullegt að vera hættur í þurrheyinu“ Stúlkan fannst heil á húfi „Þetta fólk er vont“ Fundu týnda ferðamenn á Kristínartindum „Tommi og Jenni“ í lifanda lífi á Framnesvegi Myndskeið: Braut bílrúðu með hamri Kynntust læknanáminu í sumarskóla í Tékklandi Selur Hlíðarkaup eftir 35 ár í rekstri Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Þungbært mál Íslendings í Noregi Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Fær afmælisdaginn ekki viðurkenndan