Innlent | Morgunblaðið | 25.7.2026 | 17:30 Hraður vöxtur reynir á innviðina Skráði mig í kvenfélagið og tók sæti í stjórn íþróttafélagsins Þróttar. Í gegnum þá þátttöku kynntist ég aðstæðum, segir Björg hér í viðtalinu. mbl.is/Sigurður Bogi Sigurður Bogi Sævarsson [email protected] Setja bókamerki Íbúatalan í Sveitarfélaginu Vogum á Vatnsleysuströnd sveiflast nú, til og frá, um 2.000 manns. Fyrr á þessu ári fór hún yfir línuna en síðan þá hefur orðið lítils háttar fækkun. Þetta segir Björg Ásta Þórðardóttir bæjarstjóri eðlilega sveiflu í svona litlu sveitarfélagi og breyti ekki þeirri heildarmynd að Vogar hafi verið í miklum vexti undanfarin ár. „Það er enn hreyfing á fasteignamarkaðnum og áfram verið að byggja, þó að vissulega hafi hægt á uppbyggingunni. Ég á því alveg von á því að við förum aftur yfir 2.000 íbúa á næstunni og festum okkur þar í sessi,“ segir Björg sem tók við starfi bæjarstjóra í júní síðastliðnum. Í Sveitarfélaginu Vogum, eins og bæjarfélagið heitir formlega, er hún einn þriggja fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í sjö manna bæjarstjórn. Meirihlutann mynda Sjálfstæðisflokkurinn og óháðir, E-listi Framboðsfélagsins og L-listi Framfarafélagsins. Þurfum að byggja upp atvinnulífið „Hér hefur verið mikil íbúafjölgun og uppbygging sem heldur áfram. Við höfum skipulagt ný íbúðarsvæði. Sum þeirra eru þegar í uppbyggingu en önnur eiga eftir að fara af stað, þannig að það má alveg gera ráð fyrir því að sveitarfélagið haldi áfram að vaxa á næstu árum. En svona vöxtur kallar líka á að sveitarfélagið haldi í við þróunina. Leikskólamálin eru líklega skýrasta dæmið um það hvernig hraður vöxtur reynir á innviðina,“ segir Björg og heldur áfram: „Við þurfum fleiri leikskólapláss núna, ekki eftir nokkur ár. Þess vegna erum við bæði að vinna að lausn sem hægt er að koma hratt í framkvæmd og varanlegri uppbyggingu til lengri tíma. En það dugar ekki eitt og sér að bæta við húsnæði. Við þurfum líka að tryggja að við höfum öflugt starfsfólk, góðar starfsaðstæður og að barnafjölskyldur hafi fleiri raunhæfa valkosti. Svo þurfum við líka að byggja upp atvinnulífið. Hér eru of fá fyrirtæki og þjónustan hefur ekki vaxið í sama takti og íbúafjöldinn. Þar liggja að mínu mati stærstu tækifærin á næstu árum.“ Nýir Vogabúar koma víða frá Fjölgun íbúa í Vogum hefur verið fordæmalítil; það er um 700 manns á síðustu þremur árum. Þar kemur til, sem sterkur áhrifaþáttur, að við rýmingu Grindavíkur settu margir sem þar bjuggu áður sig niður í Vogum. Björg Ásta segir að hér megi þó ekki einfalda hlutina um of; nýir Vogabúar komi víða frá. Þótt freistandi sé að leita að einni skýringu er hún líklega ekki til. „Hingað flytur fólk af ýmsum ástæðum. Grindvíkingar hafa vissulega sest hér að og atburðirnir þar höfðu áhrif, en vöxturinn í Vogum hófst áður en það gerðist. Hingað flytja líka ungar fjölskyldur, fólk sem vill meira rými eða einfaldlega búa í minna samfélagi með stutt í báðar áttir. Það er einmitt einn af styrkleikum Voga. Hér er rólegt, stutt í náttúruna, sterkt samfélag og um leið stutt bæði á höfuðborgarsvæðið og um Suðurnesin,“ útskýrir bæjarstjórinn. Tók strax virkan þátt í samfélaginu Björg Ásta hefur búið í Vogum síðustu ár, en hún er upphaflega úr Keflavík og mikið af hennar fólki býr í Reykjanesbæ. Vogar urðu fyrir valinu þegar Björg og hennar fjölskylda voru að skoða flutninga á nýjar slóðir. Neðsti og elsti hluti bæjarins. Fjær sjást fjöllin syðst á Reykjanesskaga og til hægri er Vogastapinn. „Vogar hentuðu okkur mjög vel,“ segir Björg sem er lögfræðingur að mennt. Áður starfaði hún sem yfirlögfræðingur hjá Samtökum iðnaðarins, var aðstoðarmaður Guðrúnar Hafsteinsdóttur í dómsmálaráðuneytinu og um hríð framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins. „Fjölskyldan festi strax rætur hér í Vogum. Ég tók virkan þátt í samfélaginu, skráði mig í kvenfélagið og tók sæti í stjórn íþróttafélagsins Þróttar. Í gegnum þá þátttöku kynntist ég aðstæðum enn betur og áhuginn á að leggja mitt af mörkum í sveitarstjórnarmálum vaknaði; í verkefnum sem eru nálægt fólkinu og snerta daglegt líf þess með beinum hætti. Þegar vel tekst til sér maður líka árangurinn skýrt. Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á samfélagsmálum og hér fæ ég tækifæri til að vinna að þeim á heimavelli,“ segir Björg Ásta Þórðardóttir. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Lögregla og björgunarsveit í viðbragðsstöðu Veðurspáin slekkur vonarneista en ekki gróðurelda HM-stjarnan hefur fundið nýjan áfangastað Hraður vöxtur reynir á innviðina Fram - Grindavík/Njarðvík, staðan er 0:1 Umræðan Hert á ETS Randafluga í sumarbústað Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Það er bara algjört hrun“ Mistök Vísis og þrettán daga þögn Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Hægt að skipta á honum og heilu liði Mest lesið Í gær Í vikunni Manni kastað fram af svölum Þjóðarrétturinn kostar nú 1.370 krónur „Það er bara algjört hrun“ Gular viðvaranir vegna hvassviðris Hormónameðferð ekki svarið við dalandi testósteróni Góða veðrið seinna á ferðinni en áætlað var Feðgar greindust báðir með hvítblæði Tækifærið er núna fyrir fjölskyldufólk á Þjóðhátíð Skúr á Laugavegi 1 fer á Þingeyri Gefa lítið fyrir endurkomu Baldurs Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Verktakasamningi var rift um leið og málið kom upp Rafbílar hækka um allt að 45% við inngöngu í ESB Dularfullt hljóð hélt vöku fyrir bæjarbúum Átti bágt með að trúa eigin augum Flugmannahópur Icelandair stækkar um 31 Afskrifuðu sektir fyrir 670 milljónir Góða veðrið seinna á ferðinni en áætlað var Fimm flutt á sjúkrahús eftir bílslys Mistök Vísis og þrettán daga þögn Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Þungbært mál Íslendings í Noregi Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Manneskjunni bjargað úr Ölfusá Nýjast á mbl.is » Lögregla og björgunarsveit í viðbragðsstöðu Veðurspáin slekkur vonarneista en ekki gróðurelda HM-stjarnan hefur fundið nýjan áfangastað Hraður vöxtur reynir á innviðina Fram - Grindavík/Njarðvík, staðan er 0:1 Umræðan Hert á ETS Randafluga í sumarbústað Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þegar Ísland sótti ekki um Hormónameðferð ekki svarið við dalandi testósteróni Mikill styrkur í sjálfstæðinu fyrir Ísland Ekki innstæða fyrir launahækkunum Mest lesið Í gær Í vikunni Manni kastað fram af svölum Þjóðarrétturinn kostar nú 1.370 krónur „Það er bara algjört hrun“ Gular viðvaranir vegna hvassviðris Hormónameðferð ekki svarið við dalandi testósteróni Góða veðrið seinna á ferðinni en áætlað var Feðgar greindust báðir með hvítblæði Tækifærið er núna fyrir fjölskyldufólk á Þjóðhátíð Skúr á Laugavegi 1 fer á Þingeyri Gefa lítið fyrir endurkomu Baldurs Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Verktakasamningi var rift um leið og málið kom upp Rafbílar hækka um allt að 45% við inngöngu í ESB Dularfullt hljóð hélt vöku fyrir bæjarbúum Átti bágt með að trúa eigin augum Flugmannahópur Icelandair stækkar um 31 Afskrifuðu sektir fyrir 670 milljónir Góða veðrið seinna á ferðinni en áætlað var Fimm flutt á sjúkrahús eftir bílslys Mistök Vísis og þrettán daga þögn Björgólfur Thor flytur og kallar eftir skattaþaki Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Kúgaður um 108 milljónir: Sérsveitin kölluð til Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá „Harla ólíklegt að einhver tali við þig aftur af einhverju viti“ Þungbært mál Íslendings í Noregi Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Manneskjunni bjargað úr Ölfusá