Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Gengið framhjá helsta gervigreindarsérfræðing þjóðarinnar

Read Full Article →

Hrafnarnir sjá að Kristrún Frostadóttir og Logi Einarsson, nýsköpunar- og háskólaráðherra, hafa skipað starfshóp um nálgun stjórnvalda í mál­efnum gervigreindar. Í hópnum sitja ­Hjálmar Gíslason, framkvæmdastjóri GRID, Anna Tumadóttir, framkvæmdastjóri Creative Commons, Ari Kristinn Jónsson, framkvæmdastjóri nýsköpunarsjóðs Atlantshafsbandalagsins, Halldór Fannar Guðjónsson, tæknistjóri NVIDIA, og Lilja Dögg Jóns­dóttir, framkvæmdastjóri Almannaróms. Allt gott er um þetta að segja enda vafalaust valinkunnur maður í hverju rúmi. En það vekur athygli hrafnanna að Halldóra Mogensen, fyrrverandi þingmaður Pírata, á ekki sæti í hópnum. En hún hlýtur að teljast okkar fremsti sérfræðingur í gervigreindarmálum enda á hún sæti í vísindanefnd framkvæmdastjórn ESB um þetta fyrirbrigði ásamt helstu sérfræðingum heims á þessu sviði. Enda segir í kynningu á nefndarmönnum að Halldóra hafi haft frumkvæði að rannsókn á áhrifum gervigreindar á lýðræðið, meðal annars með hliðsjón af því hvernig samfélög bregðast við kerfislægri áhættu, tæknibreytingum og breytingum í pólitískri umræðu. Huginn og Muninn er einn af ritstjórnardálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill birtist fyrst í blaðinu sem kom út 22. júlí 2026.

Share this article