Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Íslandsmet Heru gæti komið henni á EM: „Það verður löng bið“

Read Full Article →

Ísland féll á lokakeppnisdegi Meistaramóts Íslands í frjálsum íþróttum í dag. Hera Christensen bætti eigið Íslandsmet þegar hún kastaði kringlunni 56,76 sentimetra. Hún bætti metið um 81 sentimetra í dag. Hera sló Íslandsmetið fyrst síðasta haust og hefur bætt sig gríðarlega á síðustu misserum. Met hennar í dag er meira en tveimur metrum lengra en metið var áður en hún sló það fyrst. Hún segist hafa átt von á að metið gæti fallið í dag. „Já, æfingarnar voru búnar að ganga mjög vel fram að móti. Það var bara spurning hvenær ég myndi hitta á það og alveg frábært að geta gert það í dag - á hundraðasta Meistaramóti Íslands,“ sagði Hera eftir keppni. Átti eiginlega tvö met Hera segir það hafa verið mjög góða og sæta tilfinningu að sjá tölurnar þegar Íslandsmetið var staðfest. „Metið mitt var 55,95 metrar en það var ekki á móti sem var samþykkt af alþjóða frjálsíþróttasambandinu. Þannig að ég átti eiginlega tvö met.“ Hera Christensen úr FH bætti eigið Íslandsmet í kringlukasti á Meistaramóti Íslands í dag. Metið gæti fleytt henni á Evrópumótið í ágúst en það skýrist á miðvikudaginn. Hera segir að biðin eftir miðvikudeginum verði löng fyrir sig. Gæti komið henni á EM Líkur eru á að þetta Íslandsmet Heru komi henni inn á Evrópumótið í ágúst og nú tekur við spennandi bið fram á miðvikudag þegar það skýrist. „Já, það verður það. Það verður löng bið allavega.“ 50.000 krónur fyrir Íslandsmetið Og það eru fleiri ástæður til að fagna fyrir Heru því keppendur sem slá mótsmet fá 25.000 króna gjafabréf í Bónus og 50.000 krónur fyrir Íslandsmet. Hera er þó ekki viss um hvort þessar tvær upphæðir leggist saman því Íslandsmet jafngildir að sjálfsögðu mótsmeti. „Þannig að það er spurning hvað ég fer að versla fyrir mikið í Bónus.“

Share this article