Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Slysaðist í kringlukast en er nú Íslandsmethafi og stefnir á Ólympíuleika

Read Full Article →

Hera Christensen náði Íslandsmetinu í kringlukasti fyrst undir lok tímabilsins í fyrra þegar hún kastaði 55,95 metra. Í sumar hefur hún svo bætt metið í tvígang, fyrst á Meistaramóti Íslands með kasti upp á 56,67 metra. „Þetta sumar hefur verið alveg frábært og eiginlega framar öllum vonum. Ég reiknaði ekki með því að bæta mig svona mikið en það er auðvitað frábært að sjá þessa tölu og ég veit að ég á meira inni.“ Hera Christensen er Íslandsmethafi í kringlukasti. Hún náði metinu fyrst fyrir rúmu ári og hefur síðan þá bætt sig mjög. Hún slysaðist í raun inn í kringlukastið en stefnir hátt. Sat eftir á EM en sló eigið met aftur á meðan Hera var aðeins tveimur sætum frá sæti á Evrópumótinu en meðan á því stóð kastaði hún á héraðsmóti HSK. Þar sýndi hún og sannaði að hún ætti erindi á stórmót því þar sló hún eigið met á nýjan leik. Það stendur nú í 57,34 metrum. „Ég stefndi auðvitað á EM en mér fannst þetta samt vera fjarlægt markmið. Svo eftir því sem leið á sumarið þá voru komnar þessar tölur sem voru svo rosalega nálægt EM. Það var vissulega svekkjandi að komast ekki inn en það var gaman að geta náð þessu móti daginn áður en undanúrslitin í kringlunni voru.“ „Ég hefði átt heima þarna með þeim á EM.“ Með skautabakgrunn og slysaðist inn í kringlukast Hera byrjaði ung í frjálsíþróttum en var meira á hlaupabrautinni. Það var svo fyrir algera tilviljun að hún fór að kasta kringlu. „Ég var í Ármanni áður en að ég kom í FH og það vantaði í kringlukast á bikar 15 ára og yngri. Þjálfarinn eiginlega henti mér í það af því að hinar stelpurnar voru þegar í of mörgum greinum til þess að taka kringluna líka. Ég tók þetta á mig og síðan þá hefur mér ekki þótt nein önnur grein skemmtilegri og ég hef verið í kringlukasti síðan þá. “ Hera er einnig með bakgrunn í listskautum og þótt fljótt á litið séu ekki endilega mikil líkindi milli greinanna segir hún skautana geta hjálpað í kringlunni. „Þetta eru fínar hreyfingar, snúningurinn. Það er auðvitað fullt af snúningum á skautum. Ég sé reyndar persónulega engin brjálæðisleg líkindi þarna á milli en vinkonur mínar á skautunum sjá talsverð líkindi á milli greinanna.“ Hera er 21 árs og á góðum stað og stefnir að sjálfsögðu enn lengra. „Ég stefni auðvitað eins hátt og ég kemst, á Ólympíuleikana. Nú vinn ég bara markvisst að því að bæta tækni, kraft og styrk til að ná í metrana sem vantar og komast þá inn á Ólympíuleika.“

Share this article