Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Vill gera Reykvíkinga stolta á ný

Read Full Article →

Þrátt fyrir að deilt sé um ýmis mál í Reykjavík bendir Hildur Björnsdóttir borgarstjóri á að á einni hefðbundinni viku séu hæglega um 300 ákvarðanir teknar í stjórnkerfinu sem snúi að hefðbundnum rekstri sveitarfélaga og í um 90-95% tilfella séu ákvarðanirnar samhljóða. „En svo eru það þessi örfáu prósent sem eftir standa þar sem pólitíkin liggur og það er það sem fjallað er um í fjölmiðlum. Fólk upplifir þá að við séum kannski ósammála um alla hluti en í rauninni eru það þessi hugmyndafræðilegu atriði sem okkur greinir á um,“ segir Hildur. Markmiðið sé því ekki endilega að snúa við ­öllum ákvörðunum sem fyrri meirihluti hafi tekið. Hins vegar sé alveg ljóst að borgarbúar muni finna fyrir áherslubreytingu við stjórn borgarinnar. Aukin áhersla verði lögð á að hlusta á vilja íbúa og mæla árangur þeirra ákvarðana sem teknar eru. Þá þurfi að bæta ímynd borgar­innar, en Hildur segist upplifa að þegar fólk sjái fréttir úr borginni geri það ráð fyrir að þær séu nei­kvæðar. Margir vilji þó borginni það besta og vilji taka þátt í þeim uppbyggingarfasa sem er fram undan hjá nýjum meirihluta. „Það eru ofsalega margir sem vilja leggja okkur lið og vera með á þeirri vegferð, það eru svo margir sem halda með höfuð­borginni. Því miður hefur í allt of langan tíma skort á að ­íbúar séu stoltir af borginni sinni og að Íslendingar séu stoltir af höfuðborginni. Almennt erum við stolt af landinu okkar og ég vil að við getum byggt upp þetta stolt gagnvart Reykjavík í framtíðinni. Það er hluti af verkefninu,“ segir ­Hildur. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .

Share this article