Innlent | Morgunblaðið | 27.7.2026 | 8:00 Aðsend grein: Treysta Íslendingar sér ekki lengur til að vera sjálfstæð þjóð? Kristján Pálsson Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Það verða mikil átök 29. ágúst nk um það hvort við Íslendingar ætlum að halda sjálfstæði okkar eða ekki. Íslendingar gengu til kosninga 21.-23. maí 1944 til að skera úr um hvort Ísland yrði áfram nýlenda frá Dönum eða sjálfstæð þjóð. Eins og flestir vita þá greiddu 99,5% Íslendinga atkvæði með sjálfstæði. Haldin var mikil sigurhátíð á Þingvöllum 17. júní 1944 og þorri Íslendinga mætti þar sem stofnun lýðveldis á Íslandi var samþykkt. Íslendingar þorðu að taka skrefið til fulls frá Dönum og vera sjálfstæð þjóð, þeir þurftu ekki að „líta í neina pakka“. Afi minn Páll Pálsson í Hnífsdal stofnaði ungmennafélag árið 1913 ásamt vinum sínum til að efla þjóðerniskennd Hnífsdælinga undir kjörorðinu „Íslandi allt“. Í ungmennafélögum landsins var lögð mikil áhersla á að efla íslenska tungu og eyða dönskuslettum úr málinu. Þetta sama fólk byggði upp öflugt atvinnulíf í nærumhverfi sínu með miklum sóma og sótti sjóinn við mjög erfið skilyrði. Íslendingar voru ein fátækasta þjóð Evrópu um þessar mundir og hafði svo verið í árhundruð þar sem þjóðin hafði þurft hjálparlaust að taka á hörmungum sem gengu yfir landið. Hægt gekk að ná tökum á atvinnulífinu undir Dönum. Almenningur fann verulega fyrir kreppu í heimsstyrjöldinni fyrri og innlendri óráðsíu á árunum 1920 til 1930 þegar vanhugsaðar gjaldeyrisaðgerðir stjórnvalda gengu mjög harkalega að sjávarútveginum. Á árunum 1930-1940 geisaði heimskreppan. Hagur landsmann versnaði enn og heimsstyrjöldin síðari skall svo yfir. Öll stríðsárin lögðu íslenskir sjómenn allt undir við að fæða stríðsþjáðar þjóðir og sigldu með fisk yfir hafið þar sem þýskir kafbátar biðu eftir því að skjóta sem flest skip niður. Faðir minn Páll Pálsson yngri sigldi sem skipstjóri með togarann Júpíter allt stríðið til Bretlands með fisk af Íslandsmiðum. Komst hann í gegnum það taugastríð sem slík sigling hafði í för með sér fyrir alla sem það þurftu að reyna. Með harðfylgi efnuðust Íslendingar í stríðinu og þráðu ekkert annað meir en að verða sjálfstæðir. Þessi sjálfstæðisþrá raungerðist í kosningunum árið 1944. Lýðveldi var stofnað árið 1944 á Þingvöllum eins og fyrr segir þar sem meginþorri þjóðarinnar mætti. Eftir lýðveldisstofnunina reis íslensk þjóð upp eins og fuglinn Fönix og er nú ein sú stærsta af þjóðum heims hvað varðar velmegun, hagsæld og jafnræði. Við höfum sigrast á olíukreppum og ágangi erlendra fiskiskipa á fiskimiðunum og nýtt okkur auðlindir landsins á sjálfbæran hátt. Nú er björninn unninn og framtíðin björt og auðvelt að lagfæra þau mál sem þjóðin kvartar yfir. Það er ekki ástæða til að leita yfir hafið eftir skjóli. Mér finnst óásættanlegt að Ísland verði nýlenda aftur, nú Evrópusambandsins. Til hvers var þá unnið, treystir íslensk þjóð sér ekki lengur til að stjórna sínum málum? Ég skora á Íslendinga að segja nei 29. ágúst. Áfram Ísland! Kristján Pálsson, sagnfræðingur og Hnífsdælingur. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » „Langt síðan að það var skjálfti af þessari stærð“ Myndskeið: Sveindís klobbaði markvörðinn Aðsend grein: Treysta Íslendingar sér ekki lengur til að vera sjálfstæð þjóð? Aðsend grein: Áfengispolkinn: Fram og til baka Vilborg Arna: „Áhuginn kviknaði frekar seint“ Umræðan Vændiskaup eru ekki einkamál Treysta Íslendingar sér ekki lengur til að vera sjálfstæð þjóð? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Dýr þétting skýri hæga sölu íbúða Afskrifuðu sektir fyrir 670 milljónir Áttu að fá 2,5 milljónir á mann fyrir verkið Ekki verra veður á morgun en í dag Mest lesið Í gær Í vikunni Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Íslendingum sendur tónninn Leita að manni á sjó: Fjögur útköll á skömmum tíma Barnafjölskyldur ganga fyrir: 93 strandaglópar Vonlaus barátta við Fæðingarorlofssjóð Bar Jón Pál til grafar Ekki verra veður á morgun en í dag Skúli Tómas aftur á Landspítalann Svíar herða skilyrði vegna dvalarleyfa Ekki hin dæmigerða K-poppsöngkona Bar Jón Pál til grafar Barnafjölskyldur ganga fyrir: 93 strandaglópar „Einar í útlöndum og vitum ekki neitt“ Leita að manni á sjó: Fjögur útköll á skömmum tíma Skúli Tómas aftur á Landspítalann Slasaðist töluvert í Dýrafjarðargöngum Birkiskógur hefur mikið látið á sjá Slagviðri á Bræðslunni Feðgar greindust báðir með hvítblæði Ný brú yfir Gufufjörð tekur á sig mynd Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Þungbært mál Íslendings í Noregi Ástandið aldrei verið eins slæmt Varð að leggja út 800.000 krónur í gistingu Verktakasamningi var rift um leið og málið kom upp Nýjast á mbl.is » „Langt síðan að það var skjálfti af þessari stærð“ Myndskeið: Sveindís klobbaði markvörðinn Aðsend grein: Treysta Íslendingar sér ekki lengur til að vera sjálfstæð þjóð? Aðsend grein: Áfengispolkinn: Fram og til baka Vilborg Arna: „Áhuginn kviknaði frekar seint“ Umræðan Vændiskaup eru ekki einkamál Treysta Íslendingar sér ekki lengur til að vera sjálfstæð þjóð? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Feðgar greindust báðir með hvítblæði Ísland í betri stöðu eftir nýja tolla Trumps Hormónameðferð ekki svarið við dalandi testósteróni Vonlaus barátta við Fæðingarorlofssjóð Mest lesið Í gær Í vikunni Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Íslendingum sendur tónninn Leita að manni á sjó: Fjögur útköll á skömmum tíma Barnafjölskyldur ganga fyrir: 93 strandaglópar Vonlaus barátta við Fæðingarorlofssjóð Bar Jón Pál til grafar Ekki verra veður á morgun en í dag Skúli Tómas aftur á Landspítalann Svíar herða skilyrði vegna dvalarleyfa Ekki hin dæmigerða K-poppsöngkona Bar Jón Pál til grafar Barnafjölskyldur ganga fyrir: 93 strandaglópar „Einar í útlöndum og vitum ekki neitt“ Leita að manni á sjó: Fjögur útköll á skömmum tíma Skúli Tómas aftur á Landspítalann Slasaðist töluvert í Dýrafjarðargöngum Birkiskógur hefur mikið látið á sjá Slagviðri á Bræðslunni Feðgar greindust báðir með hvítblæði Ný brú yfir Gufufjörð tekur á sig mynd Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Þungbært mál Íslendings í Noregi Ástandið aldrei verið eins slæmt Varð að leggja út 800.000 krónur í gistingu Verktakasamningi var rift um leið og málið kom upp