Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Íslands þúsund ár

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 29.8.2026 | 8:00 Íslands þúsund ár Guðrún Hafsteinsdóttir mbl.is/Eyþór Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Við göngum í dag til þjóðaratkvæðagreiðslu um framtíð Íslands. Við gerum það sem frjáls og fullvalda þjóð sem í 82 ára lýðveldissögu sinni hefur sýnt að sjálfstæði okkar er ekki sjálfgefið náttúrulögmál. Það er tilkomið vegna áralangrar baráttu kynslóða sem þekktu hvernig það var þegar ákvarðanir um íslensk málefni voru teknar af öðrum en Íslendingum, á öðrum stað en á Íslandi. Í meira en þúsund ár hafa Íslendingar varðveitt tunguna, menninguna og meðvitundina um að við Íslendingar eigum saman land og eigum sameiginleg örlög. Á þeim grunni höfum við á síðustu áratugum byggt upp eitt farsælasta samfélag heims á alla helstu mælikvarða. Sá árangur náðist ekki með því að loka sig frá umheiminum. Þvert á móti. Við höfum sótt sjóinn, átt viðskipti við aðrar þjóðir og tekið þátt í alþjóðlegu samstarfi og gert það sem sjálfstæð þjóð og á okkar eigin forsendum. Það er sá málstaður sem Sjálfstæðisflokkurinn stendur fyrir í dag. Ég ber virðingu fyrir þeim sem hyggjast segja já. Við eigum öll sömu óskina um gott og öruggt líf á Íslandi. En ég hafna þeirri hugmynd að nei sé afstaða óttans, að við óttumst upplýsingar eða treystum ekki þjóð okkar. Ég treysti þjóðinni. Einmitt þess vegna tel ég að hún eigi rétt á að vita hvaða umboð hún er beðin ð veita ríkisstjórninni. Já er að hefja formlegt aðildarferli Atkvæðið í dag snýst ekki um að kíkja í pakkann eða að fá upplýsingar á borðið. Já felur í sér umboð til að hefja að nýju aðildarviðræður á grundvelli umsóknarinnar frá 2009. Slíkar viðræður snúast fyrst og fremst um hvernig umsóknarríki tekur upp og aðlagar sig að gildandi regluverki. Þetta liggur fyrir. Það sem ekki liggur fyrir er hvaða niðurstaða í viðræðunum er óviðunandi fyrir ríkisstjórnina. Því hefur hún ekki svarað. Þetta sést skýrt í sjávarútvegsmálum. Okkur er sagt að tryggt verði að þjóðin eigi auðlindina og njóti ávinningsins. Það er mikilvægt, en svarar ekki kjarnaspurningunni um það hver hafi ákvörðunarvaldið um stjórn veiðanna. Í dag er lokaákvörðunin okkar. Innan Evrópusambandsins fellur verndun sjávarauðlindarinnar undir sameiginlega sjávarútvegsstefnu sambandsins. Engin skýr yfirlýsing hefur fengist um að varanlegt íslenskt lokaákvörðunarvald sé ófrávíkjanlegt skilyrði ríkisstjórnarinnar. Það er of veigamikið atriði til að afgreiða með almennum fyrirheitum um góðan samning. Sama gildir um loforðin um lægri vexti, lægra verð og meiri stöðugleika. Þetta eru verkefni sem brenna á íslenskum heimilum núna. En já í dag lækkar ekki næstu afborgun, afnemur ekki verðtryggingu og nær ekki niður vöxtum og verðbólgu. Þetta eru allt okkar verkefni og við verðum að vinna heimavinnuna sjálf. Enginn vinnur hana fyrir okkur. Sjálfstætt Ísland í breyttri heimsmynd Heimurinn hefur tekið breytingum og við þurfum að horfast í augu við það. En svar Íslands er ekki að draga sig inn í skel. Það er heldur ekki að gera ESB-aðild að svari við öllum ógnum. Öryggi Íslands byggist á NATO, varnarsamstarfinu við Bandaríkin, norrænu samstarfi og traustum tengslum við Evrópu. Viðskiptahagsmunir okkar byggjast á EES, fríverslunarsamningum og dugnaði íslensks atvinnulífs. Fullveldið er ekki rykfallið hugtak heldur stjórntæki sem við notum til að gera góða samninga, verja auðlindirnar, skapa verðmæti og ákveða sjálf hvaða leið hentar Íslandi. Íslendingar hafa aldrei þurft að velja milli þess að vera stolt, sjálfstæð þjóð og virkur þátttakandi í samfélagi þjóðanna. Við getum verið hvort tveggja og höfum sannarlega verið það. Samstarf við Evrópu þarf ekki að leiða til aðildar að Evrópusambandinu. Íslands þúsund ára saga kennir okkur að sjálfstæðið varðveitist ekki af sjálfu sér. Lýðveldið okkar er ungt en það er arfleifð sem hver kynslóð þarf að taka ábyrgð á, nota af skynsemi og skila áfram til þeirrar næstu. Með þá ábyrgð að leiðarljósi segi ég nei í dag. Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Enn þrengt að umferðinni Meiri makríll eftir sögulegt lágmark Íslands þúsund ár Hvað á að gera í Brussel? Ók viljandi á gangandi vegfaranda Umræðan Ert' ekki gjóður? Íslands þúsund ár Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Svíar senda hersveitir til Finnlands Nýr konungur Noregs verður Hákon VIII Þorgerður tjáði sig um alvarlegar hótanir „Sendir okkur bara enn þá frekari hvatningu“ Mest lesið Í gær Í vikunni „Það er bara verið að ljúga að okkur“ Tölfræði ráðherra um lambakjöt röng Hnífjafnt í síðustu könnuninni Stór borgarísjaki við Vestfirði Augu heimspressunnar beinast að Íslandi Gefur nú grænt ljós á hótelíbúðir Hélt að hún myndi segja já – en snerist hugur Andlát: Hafsteinn Guðmundsson Vél Icelandair snúið við skömmu eftir flugtak „Getur verið að fjármunirnir stoppi í kerfinu?“ Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Tíðnin á Íslandi ein sú lægsta í heiminum Alvarlegar afleið­ingar fyrir hestinn Þorgerður tjáði sig um alvarlegar hótanir Brynjar nýr formaður stjórnar Ný nálgun á fasteignamarkaði geti lækkað verð Titringur á lokametrum baráttunnar Ríkisstjórnin taki falleinkunnina til sín Vél Icelandair snúið við skömmu eftir flugtak Brotist inn í Hygge: „Þetta er alveg týpískt“ Steinn Ármann Magnússon er látinn Katrín rýfur þögnina Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Embætti forstjórans ekki auglýst „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar Atvik á Prikinu: Gagnrýnir óbilgirni lögreglu Nýjast á mbl.is » Enn þrengt að umferðinni Meiri makríll eftir sögulegt lágmark Íslands þúsund ár Hvað á að gera í Brussel? Ók viljandi á gangandi vegfaranda Umræðan Ert' ekki gjóður? Íslands þúsund ár Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Nýr konungur Noregs verður Hákon VIII Áfengi gert „meira aðlaðandi og saklausara“ „Í hvort skiptið var verið að blöffa?“ Mest lesið Í gær Í vikunni „Það er bara verið að ljúga að okkur“ Tölfræði ráðherra um lambakjöt röng Hnífjafnt í síðustu könnuninni Stór borgarísjaki við Vestfirði Augu heimspressunnar beinast að Íslandi Gefur nú grænt ljós á hótelíbúðir Hélt að hún myndi segja já – en snerist hugur Andlát: Hafsteinn Guðmundsson Vél Icelandair snúið við skömmu eftir flugtak „Getur verið að fjármunirnir stoppi í kerfinu?“ Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Tíðnin á Íslandi ein sú lægsta í heiminum Alvarlegar afleið­ingar fyrir hestinn Þorgerður tjáði sig um alvarlegar hótanir Brynjar nýr formaður stjórnar Ný nálgun á fasteignamarkaði geti lækkað verð Titringur á lokametrum baráttunnar Ríkisstjórnin taki falleinkunnina til sín Vél Icelandair snúið við skömmu eftir flugtak Brotist inn í Hygge: „Þetta er alveg týpískt“ Steinn Ármann Magnússon er látinn Katrín rýfur þögnina Birta nafn mannsins sem lést í Stuðlagili „Ég er á Íslandi, hvar í fjáranum ert þú?“ Sema Erla ákærð: „Gjörsamlega galið“ „Ekkert stoppar fólk í að detta niður og deyja“ Embætti forstjórans ekki auglýst „Mér líður eins og það vanti á mann hendina“ Neitaði að ræða um hvarf Jóns Þrastar Atvik á Prikinu: Gagnrýnir óbilgirni lögreglu

Share this article