Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Þurfa að stóla á áframhaldandi innflutning frá Kína

Read Full Article →

Donald Trump Bandaríkjaforseti kann að þurfa að heimila áframhaldandi innflutning á sjaldgæfum jarðmálmum frá Kína, þrátt fyrir markmið sitt um að stöðva slíkan innflutning frá og með janúar 2027. Ástæðan er sú að bandarísk námu- og vinnslufyrirtæki eru ekki enn í stakk búin til að anna eftirspurninni. Frá því Trump sneri aftur í Hvíta húsið hefur hann gert vinnslu sjaldgæfra jarðmálma að þjóðaröryggismáli og beint tugum milljarða dollara til nær 150 fyrirtækja í greininni. Markmiðið er að draga úr yfirráðum Kína yfir aðfangakeðjum fyrir vopn, bíla, tölvur og annan stefnumarkandi iðnað. Samkvæmt alríkisreglum eiga varnarfyrirtæki og aðrir framleiðendur að hætta kaupum á sjaldgæfum jarðefnum, seglum, wolframi, mólýbdeni og tantali frá Kína, Rússlandi, Íran og Norður-Kóreu 1. janúar 2027. Bandarísk stjórnvöld hafa þó ítrekað veitt undanþágur þar sem framboð innanlands hefur ekki annað eftirspurn. Sérfræðingar segja litlar líkur á að greinin verði tilbúin í tæka tíð. Bandaríkin eiga birgðir af flestum sjaldgæfum jarðmálmum en skortir námu- og vinnslugetu. Kína ræður nú yfir meira en 80% af vinnslu slíkra málma á heimsvísu. Bandarísk stjórnvöld stofnuðu til 12 milljarða dala birgðasöfnunar fyrr á árinu, Project Vault, ætluðu að styrkja innlenda framleiðslu. Stjórnvöld viðurkenndu hins vegar að í fyrstu þyrfti að kaupa efni hvaðan sem er, jafnvel frá Kína. Bandarísk námu- og vinnslufyrirtæki hafa gagnrýnt það og segja varnariðnaðinn verða að gera fleiri langtímasamninga heima fyrir. Nokkur bandarísk fyrirtæki, þar á meðal MP Materials, Ucore, ReElement, Energy Fuels og USA Rare Earth, vinna að því að byggja upp innlenda framleiðslu. Verkefnin hafa þó tafist vegna tæknilegra áskorana, lágs heimsmarkaðsverðs og óvissu um hvaða vinnsluaðferðir reynast hagkvæmar. Í sumum tilvikum er ekki gert ráð fyrir verulegri framleiðslu fyrr en á árunum 2027 til 2030. Sjá einnig Kína þrengir að lykilverkefni Bandaríkjanna í jarðmálmum

Share this article