Innlent | mbl | 27.7.2026 | 21:00 Segir nýjan veg ekki skemma Landmannalaugar Enn þarf að þvera ár áður en komið er inn í Landmannalaugar þó svo að ræsi hafi verið gert yfir síðasta pollinn sem þarf að þvera. mbl.is/Sigurður Bogi Setja bókamerki Búið er að gera veg með ræsislögn yfir pollinn svokallaða í Landmannalaugum, þar sem afrennsli úr náttúruböðum lauganna hefur hingað til safnast saman. Nokkuð skiptar skoðanir eru um framkvæmdina ef marka má ummæli á samfélagsmiðlum, en þar lýsa netverjar yfir óánægju með hana og segjast óttast að nú muni illa upplýstir ferðamenn streyma á vanbúnum smábílum í Landmannalaugar með tilheyrandi raski og troðningi. Ljósmynd/Aðsend Ágúst Freyr Bjartmarsson, yfirverkstjóri Vegagerðarinnar á Vík í Mýrdal, segist skilja áhyggjur þeirra sem gagnrýna framkvæmdina en hann telur ekki að hún muni raska frið svæðisins. Undirbúningur framkvæmdarinnar hefur tekið um eitt ár, en vegagerðin sjálf hófst fyrr í vor. Ágúst bendir á að hún hafi verið unnin í nánu samstarfi við Náttúruverndarstofnun og að hún valdi ekki óafturkræfum breytingum á umhverfi eða náttúru Landmannalauga. Frétt af mbl.is Gjald lagt á stæði Landmannalauga Tug milljóna króna tjón á hverju sumri Ágúst segir að ráðist hafi verið í framkvæmdina þar sem á sumri hverju valdi ferðamenn tugmilljóna tjóni á vanbúnum bílaleigubílum, þegar þeir reyni að þvera þessa síðustu hindrun inn í Landmannalaugar. „Tjónið sem þessi pollur veldur á hverju ári eru margir tugir milljóna. Í þennan poll rennur vatnið úr heitu laugunum en hann hefur núna dýpkað með hverju ökutæki sem fer yfir hann. Það eru því margir sem hafa komist fyrst yfir ána en svo lent í því að festa og sökkva ökutækinu sínu þarna,“ segir Ágúst í samtali við mbl.is. Ljósmynd/Aðsend Hann ítrekar því að markmiðið með þessari vegagerð sé ekki að reyna skemma upplifun fólks af svæðinu heldur einungis að reyna koma í veg fyrir fjárhagslegt tjón og bendir hann á að vegurinn að Landmannalaugum sé og verði áfram ófær fyrir minni fólksbíla. „Ég skil vel að mönnum fynnist gaman að leika sér á stórum jeppum og keyra yfir ár, en þetta er einfaldlega spurning um að minnka fjárhagslegt tjón á svæðinu.“ segir Ágúst. Frétt af mbl.is Ferðamenn í vandræðum við Landmannalaugar Ljósmynd/Aðsend Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Bætist í hóp ríkja sem segja sig úr dómstólnum Sögð skilin eftir 16 ára hjónaband Stál í stál í Akrureyrarslagnum Hafa lokkað nokkur hundruð pör á eyjuna Verður sá dýrasti í sögu félagsins Umræðan Vændiskaup eru ekki einkamál Áfengispolkinn: Fram og til baka Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þjóðarrétturinn kostar nú 1.370 krónur Hafa lokkað nokkur hundruð pör á eyjuna Vonlaus barátta við Fæðingarorlofssjóð Enn sár skortur þrátt fyrir fögur fyrirheit Mest lesið Í gær Í vikunni Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Íslendingum sendur tónninn Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Flugmaðurinn fundinn: Fluttur á Landspítalann Banaslys á Þrengslavegi Lilja syrgir Hilmar og þakkar fyrir dýrmætan tíma „Langt síðan að það var skjálfti af þessari stærð“ Vonlaus barátta við Fæðingarorlofssjóð Leita að manni á sjó: Fjögur útköll á skömmum tíma Leita flugmanns eftir tilkynningu um flugslys Bar Jón Pál til grafar Barnafjölskyldur ganga fyrir: 93 strandaglópar „Einar í útlöndum og vitum ekki neitt“ Leita að manni á sjó: Fjögur útköll á skömmum tíma Skúli Tómas aftur á Landspítalann Slasaðist töluvert í Dýrafjarðargöngum Birkiskógur hefur mikið látið á sjá Slagviðri á Bræðslunni Feðgar greindust báðir með hvítblæði Ný brú yfir Gufufjörð tekur á sig mynd Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá Íslendingum sendur tónninn Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Þungbært mál Íslendings í Noregi Ástandið aldrei verið eins slæmt Varð að leggja út 800.000 krónur í gistingu Nýjast á mbl.is » Bætist í hóp ríkja sem segja sig úr dómstólnum Sögð skilin eftir 16 ára hjónaband Stál í stál í Akrureyrarslagnum Hafa lokkað nokkur hundruð pör á eyjuna Verður sá dýrasti í sögu félagsins Umræðan Vændiskaup eru ekki einkamál Áfengispolkinn: Fram og til baka Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ekki innstæða fyrir launahækkunum Mestu skógareldar í sögu Spánar Upplýsingagjöf hefði mátt vera betri Þegar Ísland sótti ekki um Mest lesið Í gær Í vikunni Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Íslendingum sendur tónninn Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Flugmaðurinn fundinn: Fluttur á Landspítalann Banaslys á Þrengslavegi Lilja syrgir Hilmar og þakkar fyrir dýrmætan tíma „Langt síðan að það var skjálfti af þessari stærð“ Vonlaus barátta við Fæðingarorlofssjóð Leita að manni á sjó: Fjögur útköll á skömmum tíma Leita flugmanns eftir tilkynningu um flugslys Bar Jón Pál til grafar Barnafjölskyldur ganga fyrir: 93 strandaglópar „Einar í útlöndum og vitum ekki neitt“ Leita að manni á sjó: Fjögur útköll á skömmum tíma Skúli Tómas aftur á Landspítalann Slasaðist töluvert í Dýrafjarðargöngum Birkiskógur hefur mikið látið á sjá Slagviðri á Bræðslunni Feðgar greindust báðir með hvítblæði Ný brú yfir Gufufjörð tekur á sig mynd Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Lést eftir að hafa fallið í Ölfusá Íslendingum sendur tónninn Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Þungbært mál Íslendings í Noregi Ástandið aldrei verið eins slæmt Varð að leggja út 800.000 krónur í gistingu