Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu mm . dd . áááá – mm . dd . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Rafmagn komið aftur á í Breiðholti Elín Hrönn Jónsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson Viðgerð vegna háspennubilunar í Breiðholti er lokið og því ættu allir að vera komnir aftur með Rafmagn. Rafagnslaust var víða í Breiðholti vegna háspennubilunar í kvöld. Bakkar, Seljahverfi og nágrenni voru án rafmagns. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Veitum. Rafmagnslaust varð á tólfta tímanum. Tilkynning um að viðgerð væri lokið var birt tíu mínútum fyrir klukkan eitt í nótt. RÚV / Ragnar Visage Fréttin var uppfærð eftir að rafmagni var aftur komið á. Fyrir 28 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Sæti í hundruðum Boeing-þota rangt uppsett Gallin geldur valdið því að sæti losni við aukið álag, svo sem í neyðarlendingum eða mikilli ókyrrð. Boeing gaf út tilmæli til flugrekenda í desember vegna gallans. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Trump bjartsýnn á frið en Íranar segja engar viðræður í gangi Donald Trump Bandaríkjaforseti lýsti í dag yfir bjartsýni á að friðarsamningar náist við Íran og segir viðræður í gangi. Stjórnvöld í Teheran þvertaka hins vegar fyrir það og segja engar samningaviðræður hafnar. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarfélagið Skagaströnd Mynt frá tímum Ólafs kyrra Noregskonungs fannst við uppgröft Senn fer fornleifauppgreftri við Hafnir á Skaga að ljúka. Mynt frá tímum Ólafs kyrra Noregskonungs fannst á dögunum en hann réð ríkjum í Noregi frá 1067. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Rúmlega 600 bandarískir hermenn særst í stríðinu í Íran Frá því að átökin milli Bandaríkjanna og Íran hófust í febrúar hafa 18 bandarískir hermenn fallið í valinn og rúmlega 600 særst. Þetta kemur fram í nýjum tölum varnarmálaráðuneytis Bandaríkjanna en þær þykja nokkuð umdeildar. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Veðurblíðunnar notið í Nauthólsvík Veðrið lék við borgarbúa í dag og í Nauthólsvík flatmöguðu sumir meðan aðrir stunduðu íþróttir á landi og í sjó. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Akureyrarliðin skildu jöfn á nýjum KA-velli Sextándu umferð Bestu deildar karla í fótbolta lauk í kvöld með tveimur leikjum. Breiðablik tók á móti ÍBV og KA og Þór mættust í Akureyrarslag. Verið var að vígja nýjan KA-völl í kvöld. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Skagafjörður Undirbúningur í algleymingi Undirbúningur fyrir unglingalandsmót UMFÍ á Sauðárkróki um verslunarmannahelgina er í fullum gangi. Um 400 sjálfboðaliðar koma að verkefninu. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Náttúruhamfarir Loftslagsbreytingar helsta orsök vaxandi gróðurelda Þrálátar hitabylgjur í Evrópu þurrka upp jarðveg og skapa kjörastæður fyrir viðamikla gróðurelda. Sérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands segir að loftslagsbreytingar séu meginorsök þess að skógareldar færast í aukana. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bretland Stuðningur við Úkraínu breytist ekki þrátt fyrir sviptingar í breskum stjórnmálum Nýr forsætisráðherra Bretlands ítrekaði stuðning Breta við Úkraínumenn á fundi með forseta Úkraínu í dag. Sviptingar í stjórnmálum hafi ekki áhrif á stuðninginn. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður Sumir kusu „nei“ og aðrir kusu „já“ Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar um þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort hefja eigi á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið hófst á hátt í þrjú hundruð stöðum í morgun - bæði innan- og utanlands. Hún fer vel af stað - sumir kusu nei og aðrir já. Fyrir 7 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Hjartnætti Álfgríms Tónlistarmaðurinn Álfgrímur Aðalsteinsson sendi frá sér sína fyrstu breiðskífu í byrjun maí og gaf henni nafnið Hjartnætti. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Chad yfirgefur Alþjóðasakamáladómstólinn Stjórnvöld í Afríkuríkinu Chad hyggjast segja sig úr Alþjóðasakamáladómstólnum. Fjögur ríki hafa tilkynnt um úrsögn sína á síðastliðnu ári, þar á meðal þrjú Afríkuríki. Bandaríkin hafa hvatt önnur ríki til úrsagnar. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Akureyrarbær Tvöfalda gæsluna og við öllu búnir Straumur fólks liggur bæði norður yfir heiðar og til Vestmannaeyja um verslunarmannahelgina ef marka má orð skipuleggjenda. Lögreglan á Akureyri er við öllu búin. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Þjóðaratkvæði um ESB-viðræður Rúmlega 400 manns hafa skilað sínu atkvæði í kjörkassann Utankjörfundaratkvæðagreiðsla um hvort hefja eigi aðildarviðræður við Evrópusambandið hófst í dag. Rúmlega 400 hafa þegar skilað sínu atkvæði í kjörkassann. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Suður-Kórea Sparaði milljarða þegar ekki mátti taka mið af mútusjóði tengdaföðurins Skilnaður aldarinnar tók nýja stefnu þegar dómstóll lækkaði greiðsluna sem forstjóri tæknirisa þarf að greiða fyrrverandi eiginkonu sinni um nærri 40 milljarða króna. Ekki mátti taka tillit til mútusjóðs sem faðir brúðarinnar hafði ljáð þeim. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Leit og björgun Hífðu mann upp úr djúpu gili við krefjandi aðstæður Þyrla Landhelgisgæslunnar og björgunarsveitir voru kallaðar út til að aðstoða mann sem hlekktist á og brotlenti á svifvæng sunnan við Mýrdalsjökul í dag. Myndband náðist af björgunaraðgerðunum. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Endurskoða áhættumat í tengslum við Hinsegin daga í ljósi árásar í Berlín Áhættumat ríkislögreglustjóra er til endurskoðunar í ljósi árásarinnar á Hinsegin dögum í Berlín um helgina. Formaður Hinsegin daga á Íslandi segir skipuleggjendur eiga í góðu samtali við lögreglu. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Frakkland Illa gengur að ná tökum á skógareldum í Frakklandi Illa gengur að ná tökum á miklum skógareldum sem geisa í Frakklandi. Frakklandsforseti blés til neyðarfundar í dag. Embættismenn hafa áhyggjur af að hvorki sé til nægur búnaður né mannafli til að slökkva eldinn. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Leit og björgun Fannst með meðvitund eftir brotlendingu á svifvæng Landhelgisgæslan og björgunarsveitir komu að björgunaraðgerðum í dag þegar maður brotlenti í djúpu gili á svifvæng. Aðstæður voru erfiðar en maðurinn fannst fljótt og var með meðvitund. Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti manninn á sjúkrahús. 27. júlí 2026 kl. 14:59ERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Viðbúnaður eftir handtöku nærri Kastrup-flugvelli Danska lögreglan handtók mann skammt frá Kastrup-flugvelli í dag. Hann sást með hlut sem líktist skammbyssu. Lögregla er með mikinn viðbúnað. 27. júlí 2026 kl. 14:52INNLENDAR FRÉTTIR Matvælastofnun Matvælastofnun varar við fæðubótaefni og pálmasykri Matvælastofnun varar við fæðubótarefninu Codeage Liposomal NMN vegna ólöglegs nýfæðis og einni framleiðslulotu af Royal Orient Palm sugar frá Asia Express Food vegna vanmerkingar á innihaldslýsingu á súlfíti. 27. júlí 2026 kl. 14:48ERLENDAR FRÉTTIR Kvikmyndir Ódysseifskviðu lekið á samfélagsmiðlum Kvikmyndinni The Odyssey var lekið á samfélagsmiðlinum X um helgina. Um 2,1 milljón manna horfðu á stolna útgáfu af myndinni. Aðgangurinn sem birti myndina var tekinn niður rúmum tveimur klukkustundum eftir að hún var birt. 27. júlí 2026 kl. 14:34ERLENDAR FRÉTTIR Þýskaland Merz vill herða lög eftir árás helgarinnar Kanslari Þýskalands vill herða lög eftir árás á hátíðahöldum á hinsegin dögum í Berlín um helgina þegar ungur karlmaður ók bíl inn í mannfjölda. Kona lést og 29 meiddust. Maðurinn gekk laus þrátt fyrir að vera talinn ógna öryggi fólks. 27. júlí 2026 kl. 14:15INNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál 17 ára á 167 kílómetra hraða Fjörutíu og tveir voru kærðir fyrir of hraðan akstur á Norðurlandi eystra um helgina. Sá sem hraðast ók var á 168 kílómetra hraða. Lögreglan á Norðurlandi eystra segir að Mærudagar hafi tekist vel. 27. júlí 2026 kl. 13:45INNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg „Ég vil meina að þetta sé þjófnaður á bílnum“ Maður sem varð fyrir því að Vaka fjarlægði bíl hans úr stæði fyrir hreyfihamlaða við heimili hans telur að það hafi verið þjófnaður. Fyrirtækið segir þetta hafa verið mistök og bílnum hafi verið skilað. 27. júlí 2026 kl. 12:59INNLENDAR FRÉTTIR Leit og björgun Slökkvilið aðstoðar slasaðan göngumann á Esjunni Malín Marta Eyfjörð Ægisdóttir Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu sinnir útkalli sem barst um klukkan hálfeitt vegna slasaðs manns á Esjunni. Samkvæmt slökkviliðinu virðist maðurinn ekki alvarlega slasaður en getur ekki gengið óstuddur. Erfitt var að komast að hinum slasaða í miklu brattlendi. Björgunarsveitir aðstoða slökkviliðið við að koma þeim slasaða í sjúkrabíl. RÚV / Ragnar Visage 27. júlí 2026 kl. 12:49INNLENDAR FRÉTTIR Leit og björgun Flugslys sunnan Mýrdalsjökuls – flugmaðurinn fundinn Þyrla Landhelgisgæslunnar og björgunarsveitir voru kallaðar út til leitar og björgunar manns sem hlekktist á á svifvæng. Maðurinn fannst og var hífður upp í þyrluna og fluttur á bráðamóttöku. 27. júlí 2026 kl. 12:29INNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Kærir frávísun í máli Skúla Tómasar Héraðssaksóknari hefur kært frávísun Héraðsdóms Reykjaness í máli Skúla Tómasar Gunnlaugssonar læknis sem var ákærður fyrir manndráp og brot á lögum um heilbrigðisstarfsmenn. Dómurinn taldi honum þegar hafa verið refsað með sviptingu lækningaleyfis. 27. júlí 2026 kl. 11:49INNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Fluttur til Danmerkur eftir bruna í flöskumóttöku Maður skaðbrenndist í flöskumóttöku Grænna skáta í Hraunbæ á föstudaginn. Hann hefur verið sendur til aðhlynningar í Kaupmannahöfn. Lögregla vill ekki tjá sig um málið. 27. júlí 2026 kl. 11:38ÍÞRÓTTIR Fótbolti Svarar gagnrýnisröddum í langri færslu Gianni Infantino, forseti Alþjóðaknattspyrnusambandins, svaraði gagnrýni í tengslum við HM af fullum þunga í langri færslu á Instagram. Hann segir að fólk sé upptekið af að spúa hatri og neikvæðni. 27. júlí 2026 kl. 10:47ERLENDAR FRÉTTIR Viðskipti Olíuverð ekki lægra í rúman mánuð Malín Marta Eyfjörð Ægisdóttir Olíuverð hefur lækkað um rúm 7% það sem af er degi. Verð á Brent-hráolíu stendur í um 85 dölum á tunnu og hefur ekki verið lægra í rúman mánuð. Nóttin í nótt v