Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Ekki gert til þess að tefja fyrir

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 28.7.2026 | 11:40 Ekki gert til þess að tefja fyrir Leó Örn, sviðsstjóri réttindasviðs Vinnumálastofnunar, segir mikilvægt að horfa á heildarmyndina. mbl.is/Ómar Óskarsson Sólveig Sigurðardóttir [email protected] Setja bókamerki Mikilvægt er að umræða um framkvæmd fæðingarorlofskerfisins hér á landi eigi sér stað reglulega enda er Vinnumálastofnun ávallt reiðubúin að fara yfir það sem vel tekst til með og bregðast við því sem betur má fara. Þetta segir Leó Örn Þorleifsson, sviðsstjóri réttindasviðs stofnunarinnar. Fjölmargir tilvonandi og nýbakaðir foreldrar hafa að undanförnu vakið athygli á erfiðum samskiptum sínum við Fæðingarorlofssjóð og lýsa margir reynslu sinni sem vonlausri baráttu við ópersónulegt kerfi þar sem lítill skilningur ríki. Í gær birtist til að mynda viðtal við móður í Morgunblaðinu sem hefur ítrekað verið hafnað um greiðslur frá sjóðnum þrátt fyrir að hafa verið óvinnufær frá því í apríl vegna alvarlegrar og hamlandi meðgönguveiki. Frétt af mbl.is Vonlaus barátta við Fæðingarorlofssjóð Byggist á þremur meginstoðum Að sögn Leós byggist íslenska fæðingarorlofskerfið í grunninn á þremur meginstoðum. Í einfaldaðri mynd veitir kerfið þeim sem hafa verið á innlendum vinnumarkaði, í námi eða utan vinnumarkaðar rétt til fæðingarorlofs. Réttindi ráðist af stöðu foreldra á tilteknu tímabili fyrir fæðingu barns. „Staða okkar allra er misjöfn. Hjá sumum er þetta klippt og skorið en hjá öðrum er staðan flókin,“ segir Leó og bendir á að breytilegar eða flóknar aðstæður geti leitt til umfangsmeiri og tímafrekari afgreiðslu umsókna. Þrátt fyrir þessa meginreglu segir Leó að í lögunum sé að finna fjölmargar undanþágur sem hafi það markmið að mæta ólíkum aðstæðum foreldra. Löggjafinn hafi sett reglur sem geri fólki kleift að viðhalda réttindum sínum við ákveðnar aðstæður. „Í langflestum tilfellum upplifum við bara jákvæðni, en við fáum auðvitað líka að heyra þegar það eru vandamál til staðar og það leiðir jafnvel til þess að viðkomandi á þá ekki þann rétt sem hann myndi helst vilja innan kerfisins,“ segir Leó. Meirihluti mála kláraður hratt Spurður hvort reglurnar séu sanngjarnar segir Leó mikilvægt að horfa á heildarmyndina. „Meginþorri foreldra rennur bara beint í gegn og klárar sitt mál á örskotsstundu. Það eru lítil sem engin samskipti, lítil sem engin gagnaskil og fólk upplifir bara almenna ánægju,“ segir hann. Leó tekur jafnframt upp hanskann fyrir starfsfólk Fæðingarorlofssjóðs og annarra ríkisstofnana. Hann segir starfsmönnum skylt að rannsaka aðstæður umsækjenda áður en ákvörðun sé tekin um réttindi þeirra. „Þetta er ekki gert til þess að tefja fyrir, þetta er ekki gert til þess að standa í vegi fyrir réttindum fólks. Þetta er gert til þess að rannsaka aðstæður svo unnt sé að taka ákvörðun um þeirra réttindi, svo þau fái rétt réttindi,“ segir hann. Leó Örn Þorleifsson Neitar því að tortryggni einkenni kerfið Spurður hvort umsóknarferlið til fæðingarorlofs einkennist af meiri hörku eða tortryggni í garð umsækjenda en önnur sambærileg stjórnsýsluferli neitar Leó því. „Ég myndi svara því neitandi. Í grunninn er fæðingarorlofskerfið jákvætt kerfi. Við erum að vinna í jákvæðu umhverfi og fáum að vera hluti af ákveðnum gleðistundum í lífi verðandi foreldra,“ segir hann. Þjónustukannanir sýna fram á ánægju Reglurnar hljóta þó að vera gagnrýnis verðar, upp að vissu marki? „Það er svolítið erfitt fyrir okkur sem sjáum um framkvæmdina að segja til um það. Það er okkar að sjá um að framkvæma lögin og að framkvæma þau með réttum hætti, hvort sem fólki líkar niðurstaðan vel eða illa. Oft bjóða ákvæðin ekki upp á eitthvert mat heldur mæla þau bara fyrir um hvað þurfi til þess að eiga réttinn. Þá ber starfsfólki lagaleg skylda til að afgreiða málið með þeim hætti.“ Að sögn Leós benda þjónustukannanir Fæðingarorlofssjóðs til þess að umsækjendur séu almennt ánægðir með þjónustu sjóðsins. Á síðastliðnu ári sögðust 96% svarenda vera annaðhvort ánægð eða hlutlaus um heildaránægju með Fæðingarorlofssjóð. „Meginþorrinn er sáttur. Það þýðir ekki að við berum ekki hlýjan hug til þeirra sem eru ósátt og viljum allt fyrir þau gera. Að sjálfsögðu gerum við það, það er okkar hlutverk. Það væri enginn starfsmaður að vinna þessa vinnu ef Fæðingarorlofssjóður væri ekki til. Við erum þarna fyrir fólkið, númer eitt, tvö og þrjú.“ Gagnrýnin hefur líka snúist um að erfitt sé að fá samband við sérfræðinga innan sjóðsins til að ræða umsókn sína. Er það raunin? „Það þarf að skipuleggja starfsemina svo hún gangi sem hraðast. Ef sérfræðingarnir sem eru að taka ákvarðanir í málum væru alltaf í síma væru þeir á sama tíma ekki að taka ákvarðanir í málum og þá myndi afgreiðslan lengjast í heildina. Þess vegna er reynt að skipuleggja starfsemina þannig að þeir sem annast símsvörun séu mjög vel inni í öllum málum og vinni við hliðina á þeim sem taka endanlegar ákvarðanir. Það eru margar þjónustuleiðir opnar en fjöldinn er bara slíkur að við myndum aldrei ráða við að veita opið aðgengi að þeim sem taka ákvarðanir,“ segir Leó. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Fjölmargir fastir í verslunarmiðstöð Ekki gert til þess að tefja fyrir Stórkostleg innkoma Brassans í tíu marka leik „Hér hafið þið eitt það besta taco sem ég hef gert!“ Elsti sjómaðurinn á Þórshöfn Umræðan Um fullt að semja Hvers vegna þurfti þá meint samkomulag? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Af hverju taka við löstunum líka? Leita flugmanns eftir tilkynningu um flugslys Íslendingum sendur tónninn Kröftugur skjálfti í Bárðarbungu Mest lesið Í gær Í vikunni 400 metra hár borgarísjaki óvenju nálægt landi Kröftugur skjálfti í Bárðarbungu Hnuplaði vörum að andvirði tæprar milljónar króna Meginþorri umsókna renni í gegn „Þetta er ekki stórskjálftasvæði“ Hafa lokkað nokkur hundruð pör á eyjuna Skýjað, skúrir og hellidembur Óvissa um afleiðingar atkvæða Óvissa um afleiðingar bæði jás og neis Ákvörðun um veiði ekki á rökum reist Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Íslendingum sendur tónninn Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Flugmaðurinn fundinn: Fluttur á Landspítalann Banaslys á Þrengslavegi Lilja syrgir Hilmar og þakkar fyrir dýrmætan tíma „Langt síðan að það var skjálfti af þessari stærð“ Vonlaus barátta við Fæðingarorlofssjóð Leita flugmanns eftir tilkynningu um flugslys Leita að manni á sjó: Fjögur útköll á skömmum tíma Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Íslendingum sendur tónninn Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Þungbært mál Íslendings í Noregi Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Ástandið aldrei verið eins slæmt Flugmaðurinn fundinn: Fluttur á Landspítalann Nýjast á mbl.is » Fjölmargir fastir í verslunarmiðstöð Ekki gert til þess að tefja fyrir Stórkostleg innkoma Brassans í tíu marka leik „Hér hafið þið eitt það besta taco sem ég hef gert!“ Elsti sjómaðurinn á Þórshöfn Umræðan Um fullt að semja Hvers vegna þurfti þá meint samkomulag? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kröftugur skjálfti í Bárðarbungu Flugmaðurinn fundinn: Fluttur á Landspítalann Meginþorri umsókna renni í gegn Sjö ákærðir fyrir líkamsárás á Austurvelli Mest lesið Í gær Í vikunni 400 metra hár borgarísjaki óvenju nálægt landi Kröftugur skjálfti í Bárðarbungu Hnuplaði vörum að andvirði tæprar milljónar króna Meginþorri umsókna renni í gegn „Þetta er ekki stórskjálftasvæði“ Hafa lokkað nokkur hundruð pör á eyjuna Skýjað, skúrir og hellidembur Óvissa um afleiðingar atkvæða Óvissa um afleiðingar bæði jás og neis Ákvörðun um veiði ekki á rökum reist Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Íslendingum sendur tónninn Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Flugmaðurinn fundinn: Fluttur á Landspítalann Banaslys á Þrengslavegi Lilja syrgir Hilmar og þakkar fyrir dýrmætan tíma „Langt síðan að það var skjálfti af þessari stærð“ Vonlaus barátta við Fæðingarorlofssjóð Leita flugmanns eftir tilkynningu um flugslys Leita að manni á sjó: Fjögur útköll á skömmum tíma Kröftugur jarðskjálfti á suðvesturhorninu Ekki fyrir viðkvæma: „Ég er heppin að vera á lífi“ Bongóblíðu loks spáð vestanlands Þurfti að keyra út í kant: „Orðin skuldlaus!“ Íslendingum sendur tónninn Blöskrar ummæli um að allt sé í fína Þungbært mál Íslendings í Noregi Starfsmaður brann illa: Fluttur til Danmerkur Ástandið aldrei verið eins slæmt Flugmaðurinn fundinn: Fluttur á Landspítalann

Share this article