Innlent | Morgunblaðið | 8.8.2026 | 9:06 | Uppfært 9:24 „Þetta er auðvitað mjög ósanngjarnt“ Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra segir ráðuneytið meðvitað um þá gagnrýni sem stofnunin hefur sætt undanfarið. Samsett mynd Sólveig Sigurðardóttir [email protected] Setja bókamerki Háværar gagnrýnisraddir hafa undanfarið beinst að ósveigjanlegum reglum Fæðingarorlofssjóðs sem og viðmóti sjóðsins til umsækjenda. Kallað hefur verið eftir endurskoðun verklags sem tryggir að markmið laganna um stuðning við fjölskyldur njóti sín í framkvæmd. Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, segir ráðuneytið meðvitað um þá gagnrýni sem stofnunin hefur sætt undanfarið. „Við tökum alla gagnrýni alvarlega og við munum auðvitað fara ofan í saumana á þeirri gagnrýni sem hefur verið núna undanfarið á Fæðingarorlofssjóð og skoða hvað við getum gert til þess að bæta upplifun fólks á kerfinu, sömuleiðis hvernig við getum tekið betur utan um fólk sem fellur á milli skips og bryggju innan kerfisins og það á við um öll kerfi sem heyra undir okkar ráðuneyti,“ segir Ragnar Þór í samtali við Morgunblaðið. Hafa gert töluverðar breytingar „Við höfum gert töluverðar breytingar á regluverkinu eða lögum um Fæðingarorlofssjóð. Meðal annars höfum við tryggt rétt fjölburaforeldra til aukins fæðingarorlofs sem og aukinn rétt foreldra í tengslum við veikindi við meðgöngu. Við höfum hækkað lágmarksgreiðslur fæðingarstyrks til þeirra sem falla ekki undir þetta hefðbundna kerfi og síðan höfum við líka tryggt foreldrum sem lenda í áfalli sorgarleyfi. Við höfum líka gert þá breytingu að allar breytingar á fæðingarorlofskerfinu almennt séu óháð fæðingardegi barns og nái til allra foreldra innan kerfisins á þeim tíma. Það er líka mjög mikilvægt og mikið jafnréttismál. Þannig að við höfum verið að gera miklar breytingar og endurskoða kerfið og taka tillit til þeirrar gagnrýni sem hefur verið. Við tökum alla gagnrýni alvarlega og erum að skoða hvernig við getum brugðist við. Lítill sveigjanleiki Lögin eru almennt séð mjög afdráttarlaus þegar kemur að þeim viðmiðum sem falla þarf undir til þess að fá greiðslur, hvort sem það er í almannatryggingakerfinu, atvinnuleysistryggingum eða Fæðingarorlofssjóði. Vikmörkin eru nokkuð afdráttarlaus og lítill sveigjanleiki í kerfunum sem slíkum. Það sem við getum farið í saumana á er auðvitað ef fólk er að upplifa að viðmót sé ekki með þeim hætti sem það óskar, og ef fólk upplifir seinagang eða svör sem það myndi kalla eftir að væru manneskjulegri eða betri. Það er fullt sem við getum gert til að bæta þjónustuna sem slíka en þegar kemur að laga- og regluverki þá tekur það lengri tíma.“ Gagnrýni á að ekki sé hægt að miða við áætlaðan fæðingardag barns þegar kemur að greiðsluviðmiði hefur verið hávær. Dæmi eru um að foreldrar sem eignast fyrirbura uppfylli ekki kröfur kerfisins til greiðslna, einfaldlega vegna þess að börn þeirra fæddust fyrir tímann. Fyrirburafæðing er eitthvað sem foreldrar hafa ekki nokkra stjórn á. Mun þessi regla, sem hægt væri að kalla ósanngjarna, sæta endurskoðun? Sammála gagnrýni „Jú, ég bara er algjörlega sammála því að þetta er auðvitað mjög ósanngjarnt og það er þetta sem við erum að skoða. Og ég, þótt ég sé ekki kominn með það staðfest, reikna með að það þurfi lagabreytingu til. Þegar kemur að lagabreytingum sem slíkum er það eitthvað sem við getum ekki togað út úr erminni með stuttum fyrirvara. Það þarfnast auðvitað meiri yfirlegu og meiri breytinga og þinglegrar meðferðar. Ég get bara sagt og staðfest það að við erum að skoða hvað við getum gert til þess að grípa þessa hópa innan kerfisins. Réttarbreytingarnar í kerfinu ná nú til allra foreldra innan kerfisins. Þannig að við munum sannarlega skoða þetta og ég kom málinu sem þú vísar í áfram innan ráðuneytisins um leið og það kom upp til þess að rýna það betur og með það að markmiði að koma með tillögur að breytingum, þótt ég geti ekki sagt nákvæmlega til um hvenær slíkar breytingar líta dagsins ljós á þessum tíma. En málið er í vinnslumarki ráðuneytisins og við tökum það mjög alvarlega.“ Upphæðir fæðingarstyrkja til námsmanna og þeirra sem falla utan kerfisins ná ekki framfærsluviðmiði yfirvalda. Er til skoðunar að hækka þessar greiðslur svo fólk í til dæmis námi nái endum saman? „Auðvitað myndi ég vilja að við hefðum svigrúm til þess að hækka þessar greiðslur en þetta er spurning um forgangsröðun. Ég fundaði með fulltrúum stúdenta núna í vor og við erum að skoða þann þátt kerfisins líka. Ég myndi segja að það sé ekki viljinn sem er áskorun hjá okkur heldur fyrst og fremst þeir fjármunir sem okkar málaflokkar hafa úr að spila og hvað er til skiptanna þegar kemur að ríkisfjármálunum.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Öldungadeildin enn öflugri í gleðigöngunni „Þetta er auðvitað mjög ósanngjarnt“ Sólin lætur sjá sig vestantil í dag Fær milljarð dollara frá Trump í meðgjöf Áfall fyrir ungan leikmann Arsenal Umræðan „hingað í sælunnar reit“ Af hverju vill ríkisstjórnin ekki lækka vexti? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Tölvan ekki lengur úr töskunni Landaskipting útflutnings stórlega bjöguð Byggir ekki eingöngu á vísindalegu mati „Þetta er auðvitað mjög ósanngjarnt“ Mest lesið Í gær Í vikunni Umtalaður vegur á sér óvenjulega sögu Enski boltinn 25% dýrari Biðtími víðast frá sex mánuðum til eins árs Refur stökk á bíl í Mosfellsbæ Umdeild ESB-reglugerð áfram í gildi Lenti utan vegar eftir framúrakstur Óska eftir aðstoð vegna almyrkvans Breytt eldvarnarverklag veldur ama Hjólhýsi fauk á hliðina Börn þolendur alvarlegs ofbeldis Refur stökk á bíl í Mosfellsbæ Stöðvaður tvö kvöld í röð Tölvan ekki lengur úr töskunni Hjólhýsi fauk á hliðina Er atkvæðagreiðslan blekkingarleikur? „Eins og að lenda í hryllingsmynd“ „Ég ber enga ábyrgð á skyrinu“ Nesklúbburinn óskar eftir aðstoð fyrir almyrkvann Pennavinurinn reyndist Churchill Skipuð í dómaraembætti Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Sögðu að mamma hefði ekki vaknað „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Maðurinn er kominn í leitirnar Íbúar yfirbuguðu innbrotsþjóf Bubbi: „Ég er ekki að flýja neitt“ Nýjast á mbl.is » Öldungadeildin enn öflugri í gleðigöngunni „Þetta er auðvitað mjög ósanngjarnt“ Sólin lætur sjá sig vestantil í dag Fær milljarð dollara frá Trump í meðgjöf Áfall fyrir ungan leikmann Arsenal Umræðan „hingað í sælunnar reit“ Af hverju vill ríkisstjórnin ekki lækka vexti? Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Landaskipting útflutnings stórlega bjöguð ESB mun semja fyrir okkur Brottvísanir skipverja hafnar Áslaug Arna ráðin til Fenris Creations í Lundúnum Mest lesið Í gær Í vikunni Umtalaður vegur á sér óvenjulega sögu Enski boltinn 25% dýrari Biðtími víðast frá sex mánuðum til eins árs Refur stökk á bíl í Mosfellsbæ Umdeild ESB-reglugerð áfram í gildi Lenti utan vegar eftir framúrakstur Óska eftir aðstoð vegna almyrkvans Breytt eldvarnarverklag veldur ama Hjólhýsi fauk á hliðina Börn þolendur alvarlegs ofbeldis Refur stökk á bíl í Mosfellsbæ Stöðvaður tvö kvöld í röð Tölvan ekki lengur úr töskunni Hjólhýsi fauk á hliðina Er atkvæðagreiðslan blekkingarleikur? „Eins og að lenda í hryllingsmynd“ „Ég ber enga ábyrgð á skyrinu“ Nesklúbburinn óskar eftir aðstoð fyrir almyrkvann Pennavinurinn reyndist Churchill Skipuð í dómaraembætti Óttast um öryggi foreldra sinna: Höggin dundu á heimilinu Sögðu að mamma hefði ekki vaknað „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef þurft að taka“ Sérsveitin í lögregluaðgerð á Akureyri Kólumbísk fjölskylda í gæsluvarðhaldi Enginn læknir og heilsugæslan lokuð Biðraðir geti slagað upp í þrjá klukkutíma Maðurinn er kominn í leitirnar Íbúar yfirbuguðu innbrotsþjóf Bubbi: „Ég er ekki að flýja neitt“