Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Fjöldi fólks fastur í verslunarmiðstöð eftir jarðskjálfta

Read Full Article →

Jarðskjálfti af stærðinni 7,1 reið yfir Kyushu, þriðju stærstu eyju Japans, upp úr klukkan 16 á staðartíma – snemma í morgun að íslenskum tíma. Kyushu-eyja er sú syðsta og vestlægasta af fjórum höfuðeyjum Japans. Þar búa rúmlega 12 milljónir manna. Kumamoto-hérað eyjunnar varð einna verst út úr skjálftanum í morgun. Önnur hæð verslunarmiðstöðvar hrundi í bænum Kashima. Í tilkynningu slökkviliðsins í Kashima segir að fjöldi fólks sé fastur í rústunum. Upplýsingar um ástand fólksins liggja ekki fyrir. Í myndskeiðinu hér að neðan má sjá upptökur frá nokkrum sjónarhornum þegar skjálftinn reið yfir: Japönsk stjórnvöld vinna við að meta umfang meiðsla og eignatjóns eftir að jarðskjálfti af stærðinni 7,1 reið yfir þriðju stærstu eyju landsins í morgun. Fjöldi fólks situr fastur í verslunarmiðstöð eftir að önnur hæð hennar hrundi. Sanae Takaichi, forsætisráðherra Japans, segir að verið sé að meta umfang meiðsla fólks og skemmdir á mannvirkjum vegna skjálftans. Hún segir að minnsta kosti fimmtíu hafa slasast. Um 45 þúsund heimili og mannvirki eru án rafmagns. Vegir og brýr hafa skemmst og byggingar hrunið en ekki er talið að skjálftarnir hafi haft áhrif á kjarnorkuver landsins. Japanska veðurstofan gaf út flóðbylgjuviðvörun þegar skjálftanna varð vart en dró hana síðar til baka. Jarðskjálftavirkni í Japan er ein sú mesta í heiminum. Landið stendur á skilum fjögurra jarðfleka meðfram vesturjaðri „Eldhringsins“ í Kyrrahafi. Þar verða um 18% allra jarðskjálfta í heiminum.

Share this article