Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Jarðskjálfti af stærðinni 6,9 í Japan

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 27 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Japan Jarð­skjálfti af stærð­inni 6,9 í Japan Björgvin Brynjarsson Jarðskjálfti af stærðinni 6,9 varð í norðurhluta Japans í kvöld, samkvæmt veðurstofu landsins. Flóðbylgjuviðvörun hefur ekki verið gefin út. Fréttin verður uppfærð. Rauði krossinn á myndinni sýnir staðsetningu upptaka jarðskjálftans. Veðurstofa Japan Fyrir 39 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Fyrr­ver­andi starfs­mað­ur á rétt á 19,9 millj­ón­um í van­gold­in laun Landsréttur hefur úrskurðað að maður sem starfaði sem kokkur á Vietnam Restaurant eigi forgangskröfur upp á tæplega 20 milljónir í þrotabú staðarins. Ágreiningur stóð um greiðslu fyrir yfirvinnu vegna vinnu tólf tíma á dag, sex daga vikunnar. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Bosnía svo gott sem komin áfram en þarf að bíða lengi Bosnía og Hersegóvína vann öruggan 3-1 sigur gegn Katar. Liðið endar í 3. sæti B-riðils og er í ágætis stöðu að komast áfram sem eitt af þeim liðum sem eru með besta árangur í 3. sæti. Átta lið úr riðlunum tólf fara áfram. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Höfuðborgarsvæðið Eldur kvikn­aði í bíl í Foss­vogi Ragnhildur Helgadóttir Eldur kviknaði í bíl í íbúagötu í Fossvogi á níunda tímanum í kvöld. Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu eru tveir slökkviliðsbílar á vettvangi. Útkall barst stuttu fyrir klukkan níu. Hann sagði ekki enn liggja fyrir hvað hafi valdið eldinum. Hann býst við að slökkvistörfum verði lokið á næsta klukkutímanum. RÚV Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Allt það helsta: Bosnía og Her­seg­óv­ína - Katar Bosnía og Hersegóvína vann öruggan 3-1 sigur gegn Katar. Liðið endar í 3. sæti B-riðils og er í ágætis stöðu að komast áfram sem eitt af þeim liðum sem eru með besta árangur í 3. sæti. Átta lið úr riðlunum tólf fara áfram. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Sviss eyði­lagði kan­ad­íska par­tý­ið Sviss tók toppsætið í B-riðli á HM í fótbolta eftir 2-1 sigur gegn Kanada. Toppsætið verður áfram í Vancouver í Kanada og það vildu Kanadamenn ólmir gera. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Allt það helsta: Sviss - Kanada Hér má sjá mörkin þrjú úr leik Sviss og Kanada í B-riðli á HM í fótbolta. Sviss vann 2-1 og tryggði sér toppsætið. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Lög­reglu­mað­ur greind­ist með berkla Lögreglumaður sem greindist með berkla fyrr á árinu segir ekki næga meðvitund um smitvarnir í starfstéttinni. Hann óskaði sjálfur eftir því að fara í próf en margir mánuðir liðu frá því hann smitaðist og þangað til hann greindist. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Hafnarfjörður Fjögur hund­ruð krakk­ar kepptu í dorg­veiði í Hafn­ar­firði Samvinna, ábyrgð og vinátta eru lykillinn að góðu gengi, að sögn ungs manns sem hlaut verðlaun í dorgveiðikeppni Hafnarfjarðar í dag. Aflaklær ársins fengu yfir 25 fiska. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Brú yfir Horna­fjarð­ar­fljót opnuð Opnað var fyrir almenna umferð um nýjan veg um Hornafjarðarfljót í dag. Hornfirðingum þykir áætlað veggjald, sem á að standa undir hluta kostnaðar, ríflegt. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Húsnæðismál „Það hefði þurft að fara í gerð deili­skipu­lags á þessu svæði“ Formaður umhverfis- og skipulagsráðs segir sorglegt að Samhjálp hafi eytt miklum fjármunum í verkefni sem ekki var sett í viðeigandi farveg. Borgarstjóri fundar með Samhjálp á morgun. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarfélagið Árborg Sel­fyss­ing­ur tekur þátt í heims­meist­ara­keppn­inni í blóma­skreyt­ing­um Tinna Bjarnadóttir, blómaskreytir á Selfossi, hefur nóg að gera þessa dagana því hún er að fara að keppa í heimsmeistarakeppni í blómaskreytingum í Singapúr. Þátttakendur frá 17 löndum munu taka þátt. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 HM-vaktin: Vin­ic­us í gír og Haítí með sögu­legt mark Í kvöld og í nótt skýrast línur í þremur riðlum á HM. Lokaleikirnir í riðlunum fara fram. Leikirnir í hverjum riðli fara fram á sama tíma. Bosnía vann 3-1 gegn Katar í B-riðli. Sviss vann 2-1 sigur gegn Kanada og tekur toppsæti riðilsins. Kanada verður í 2. sæti, Bosnía í 3. sæti og er í góðri stöðu upp á 32-liða úrslit. Katar er úr leik. Í C-riðli er Haítí úr leik en Skotar, Marokkómenn og Brasilía eiga möguleika á toppsætinu. Brasilía leiðir 2-0 gegn Skotum og Haítí og Marokkó eru að gera 2-2 jafntefli. Þetta er fyrsta mark í sögu Haítí á HM. Við fylgjumst hér með gangi mála í fyrstu tveimur riðlum dagsins, en úrslit í A-riðli hefjast klukkan 01:00. FRÉTTAVAKT Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Evrópa Hvert hita­met­ið á fætur öðru fallið Fjölmörg hitamet féllu í Evrópu í dag vegna hitabylgju sem gengur yfir. Annan daginn í röð mældist hæsti meðalhiti frá upphafi mælinga í Frakklandi og 50 ára gamalt hitamet féll í Bretlandi. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Fjarskipti „Skrít­ið að kaupa nýjan síma þegar Neyð­ar­lín­an er eina núm­er­ið sem ekki næst í“ Enn eru um 6.000 tæki merkt rauð hjá Fjarskiptastofu og geta því ekki hringt neyðarsímtöl. „Ég vel að geta ekki hringt í Neyðarlínuna,“ segir einn þeirra sem á síma sem virkar í allt nema neyðarsímtöl. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Dæmdur fyrir að verða konu að bana á Sæ­braut Ökumaður sem ók á meira en tvöföldum hámarkshraða og varð valdur að banaslysi á Sæbraut árið 2024 hefur verið dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi. Hann játaði brot sitt skýlaust. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Umhverfismál Lög­regl­an gefur ekki upp sekt­ar­upp­hæð fyrir ut­an­vega­akst­ur Aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi segir máli erlendra ferðamanna sem gerðust uppvísir að utanvegaakstri um helgina lokið. Hún tekur undir með umhverfisráðherra sem segir mikilvægt að gæta hagsmuna íslenskrar náttúru. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Tveir sprengju­sér­fræð­ing­ar á vegum norskra hjálp­ar­sam­taka drepn­ir í Úkra­ínu Tveir sprengjusérfræðingar á vegum norsku hjálpar- og mannúðarsamtakanna Norsk Folkehjelp voru drepnir í loftárás Rússa í Úkraínu. Nokkrir særðust í árásinni og voru fluttir á sjúkrahús. Fyrir 7 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Pretty Yende í „Ást­ar­drykkn­um“ í Barc­el­ona Á Óperukvöldi útvarpsins, fimmtudaginn 25. júní, verður flutt gamanóperan „Ástardrykkurinn“ eftir Donizetti. Í aðalhlutverkum eru hinir frægu söngvarar Pretty Yende og Michael Spyres. Fyrir 7 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 Þessi lið eru komin áfram fyrir loka­um­ferð­ina Lokaumferð riðlakeppninnar á heimsmeistaramótinu í fótbolta er hafin. Þegar eru sjö lið með fullt hús stiga og því komin áfram í 32-liða úrslit. Fimm lið eru án stiga og úr leik. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Vélfag ætlar næst í mál við Arion og Lands­bank­ann Lögmaður Vélfags segir að næstu skref fyrirtækisins séu að lögsækja Arion banka og Landsbankann til þess að fá frystingu fjármuna aflétt. Íslenska ríkið var í dag sýknað af kröfum fyrirtækisins í Hæstarétti. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Leit og björgun Björg­un­ar­skip­ið Sig­ur­vin dregur fiski­bát í land Guðmundur Atli Hlynsson Björgunarskipið Sigurvin var kallað út um 14 leytið í dag vegna aflvana fiskibáts rétt norður af Straumsnesi. Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir Sigurvin kominn með fiskibátinn í taug og að draga hann í land. Báturinn verður dreginn til hafnar á Hofsósi. Björgunarskipið Sigurvin. Myndin er úr safni. Björgunarsveitin Strákar Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Leit og björgun Drógu fiski­bát í land þremur kort­er­um eftir útkall Björgunarskipið Þór í Vestmannaeyjum lagði úr höfn fimm mínútum eftir að útkall barst um aflvana fiskibát. Einn skipverji var um borð en hann var ekki í hættu. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Millj­arða­fram­kvæmd­ir fram­und­an við ónýtar gang­stétt­ir Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir að mikið verkefni sé framundan viðað bæta úr ástandi gangstétta víða um Reykjavík. Það sé milljarðaverkefni sem muni taka kjörtímabilið. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Spánn Jafnerf­itt að venj­ast hit­an­um og miklum kuldum Hitabylgja heldur áfram í Evrópu. Búist er við yfir 35 stiga hita í dag hjá tæplega hundrað miljónum manna, aðallega í Frakklandi og á Spáni. Sendiherra Íslands á Spáni segir jafn erfitt að venjast hita og kulda. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Opnun vegar um Horna­fjarð­ar­fljót lang­þráð en há veg­gjöld komi á óvart Bæjarstjóri Hornafjarðar segir það hápólitískt ef veggjöld eiga að vera hærri í fámennari sveitarfélögum en fjölmennum. Hringvegurinn styttist um 12 kílómetra með opnun brúar yfir Hornafjarðarfljót. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Fjarskipti Far­síma­sala ekki aukist þótt sum tæki séu orðin úrelt Fjarskiptastofa telur um 6.000 tæki í umferð sem ekki virki sem skyldi eftir að slökkt var á 2G- og 3G-sendum landsins. Farsímasala hjá Elko hefur þó aðeins aukist lítillega. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Ríkið sýknað af kröfum Vél­fags í Hæsta­rétti Íslenska ríkið var í dag sýknað af kröfum Vélfags í Hæstarétti. Máli Ivan Nicolai Kaufmann, meirihlutaeiganda fyrirtækisins, var vísað frá. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Vitni segir dótt­ur­ina hafa verið greind­ar­skerta Systir mannsins sem fannst látinn á Edition-hótelinu í fyrra gaf skýrslu fyrir dómi í morgun. Hún segir fjölskylduföðurinn hafa verið mjög stjórnsaman. Hún segir dóttur hans, Catherine, sem fannst líka látin, hafa verið lítillega greindarskerta. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Kven­kyns ger­end­um fjölg­ar í heim­il­is­of­beld­is­mál­um Kvenkyns gerendum í heimilisofbeldismálum hefur farið fjölgandi síðustu ár. Karlmenn eru þó enn stærstur hluti gerenda, og konur stærstur hluti þolenda. 24. júní 2026 kl. 13:17INNLENDAR FRÉTTIR Velferðarmál Saka ríkið um að ganga á bak orða sinna um þjón­ustu við börn með fjöl­þætt­an vanda Samband íslenskra sveitarfélaga segir ríkið brjóta samkomulag um ábyrgð á þjónustu við börn með fjölþættan vanda. Ríkið hefur endurskilgreint hópinn sem fellur undir þjónustuna. 24. júní 2026 kl. 13:11INNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál „

Share this article