HS Orka hefur gengið frá kaupum á Múlavirkjun hf., sem á og rekur vatnsaflsvirkjunina Múlavirkjun í Eyja- og Miklaholtshreppi á Snæfellsnesi. Ekki kom fram kaupverð í fréttatilkynningu félagsins. Múlavirkjun var formlega gangsett í nóvember 2005 og er með 3,2 MW uppsett afl. Stærsti eigandi félagsins var Eggert Kjartansson, bóndi á Hofsstöðum. „Við þekkjum Múlavirkjun vel og vitum að við erum að taka við góðu búi. Við höfum átt í farsælu samstarfi við fyrri eigendur og við munum leggja okkur fram um að eiga áfram í góðu samstarfi við samfélagið á Vesturlandi,“ segir Tómas Már Sigurðsson , forstjóri HS Orku, í tilkynningu. Rekstrartekjur félagsins vegna raforkusölu námu 95,1 milljón króna á síðasta ári, samanborið við 85,3 milljónir árið áður. Hagnaður nam 12,5 milljónum króna, samanborið við 2,6 milljónir árið 2024. Eigið fé félagsins nam 170,6 milljónum króna í árslok og heildareignir voru bókfærðar á 671,7 milljónir króna. Múlavirkjun nýtir vatn sem tekið er við upptök Straumfjarðarár þar sem hún fellur úr Baulárvallavatni og Hraunsfjarðarvatni. Virkjunin var reist að frumkvæði þriggja bænda í héraðinu, þeirra Eggerts Kjartanssonar á Hofsstöðum, Ástþórs Jóhannssonar í Dal og Bjarna Einarssonar í Tröðum. HS Orka hefur frá upphafi stýrt allri raforkuframleiðslu virkjunarinnar og jafnframt keypt alla raforku frá henni. HS Orka rekur nú tvær jarðvarmavirkjanir á Reykjanesskaga og þrjár vatnsaflsvirkjanir, þar á meðal Múlavirkjun. Fyrirtækið miðlar einnig raforku frá fjölda sjálfstæðra orkuframleiðenda víða um land og segir metnaðarfull þróunarverkefni í jarðvarma og vatnsafli vera í undirbúningi, auk þess sem vindorka sé til skoðunar til lengri tíma.