HS Orka hagnaðist um 3,7 milljarða króna eftir skatta á árinu 2025, samanborið við tap upp á 420 milljónir króna á árinu 2024. „Sveiflur í hagnaði fyrir skatta á milli ára skýrast aðallega af hagstæðum gengismun fjármagnsliða á árinu 2025 samanborið við gengistap á árinu 2024,“ segir í tilkynningu HS Orku. Heildartekjur HS Orku námu 15,7 milljörðum króna í fyrra og hækkuðu um 1,1 milljarð eða 8% á milli ára. Félagið segir að þar muni mest um aukna raforkusölu á almennum markaði, til stórnotenda og í heildsölu. Rekstrargjöld voru um 12,3 milljarðar og hækkuðu um 336 milljónir frá árinu 2024. Hækkun rekstrargjalda er sögð skýrast að miklu leyti af viðhaldi virkjana HS Orku. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) var 6.499 milljónir króna árið 2025 samanborið við 5.493 milljónir árið áður og hækkar því um 18% á milli ára. „Rekstur orkuvera HS Orku var stöðugur á árinu 2025 þrátt fyrir jarðhræringar og eldsumbrot. Framkvæmdum við stækkun og endurbætur Svartsengis virkjunar lauk á tilskildum tíma og í samræmi við áætlanir. EBITDA ársins hefur aldrei verið hærri og skapar fjárhagslegur styrkur fyrirtækisins traustan grunn fyrir áframhaldandi vöxt samhliða auknum fjárfestingum í sjálfbærri orkunýtingu.“ Eignir samstæðunnar námu 89,6 milljörðum króna í árslok 2025 og eigið fé var um 37,5 milljarðar. Vaxtaberandi skuldir framkvæmdalána hækkuðu um 1,9 milljarða á milli ára og skýrist hækkunin að mestu af stækkun og endurbótum á Svartsengisvirkjun. Eiginfjárhlutfall félagsins er 42% en 49% að meðtöldu víkjandi láni frá hluthöfum. Ekki var greiddur út arður á árinu en óráðstafað eigið fé lækkaði um 286 milljónir vegna hlutafjár lækkunar á árinu 2025. HS Orku er í jafnri eigu Jarðvarma, samlagshlutafélags í eigu þrettán íslenskra lífeyrissjóða, og sjóða í stýringu Ancala, sjóðastýringafélags með höfuðstöðvar í Bretlandi. „Við náðum stórum áfanga í uppbyggingu fyrirtækisins þegar sjöunda orkuverið í Svartsengi var tekið í notkun í samræmi við allar áætlanir og þrátt fyrir ýmsar áskoranir náttúrunnar, áskoranir sem við höfum væntingar um að séu senn að baki. Þessi góða rekstrarniðurstaða gefur okkur byr í seglin fyrir áframhaldandi vöxt fyrirtækisins,“ segir Tómas Már Sigurðsson , forstjóri HS Orku. Á aðalfundi 28. apríl 2026 voru endurkjörin í stjórn þau Adrian Pike, stjórnarformaður, Bjarni Þórður Bjarnason, varaformaður, Heike Bergmann, meðstjórnandi og Margrét Ormslev Ásgeirsdóttir, meðstjórnandi. Til vara voru kosin Gunnar Jóhannsson, Margrét Sveinsdóttir, Olli Mononen og Abby Tsai. Stækkuð og endurbætt Svartsengisvirkjun og rannsóknarboranir við Sveifluháls Ný 55 MW vélasamstæða var formlega tekin í notkun í jarðvarma virkjun inni í Svartsengi þann 1. desember 2025. Fyrirtækið segir að þrátt fyrir ýmsar tafir á verktíma vegna jarðhræringa og eldsumbrota hafi tíma - og kostnaðaráætlanir framkvæmdarinnar staðist. „Með aukinni afkastagetu Svartsengisvirkjunar skapast tækifæri til að auka orku framleiðslu í virkjuninni í samræmi við gildandi virkjunar leyfi á svæðinu en leyfið miðast við 85 MW. Sjá einnig Ljúka 14 milljarða framkvæmdum í Svartsengi Stækkun Svartsengisvirkjunar er hluti af umfangsmikilli uppbyggingu innviða HS Orku síðustu sex ár. Reykjanesvirkjun var stækkuð um 30 MW, lokið var við byggingu 10MW vatnsaflsvirkjunar að Brú í Biskupstungum og fjárfest var í Fjarðarárvirkjunum í botni Seyðisfjarðar. Fleiri stór þróunarverkefni eru í undirbúningi jafnt í jarðvarma sem vatnsafli.“ Þá er undirbúningur hafinn fyrir nýtingu jarðvarma í Eldvörpum í næsta nágrenni við Svartsengi en þar var fyrst borað eftir jarðvarma árið 1983. Stefnt er að því að flytja orku sem fæst úr Eldvörpum til vinnslu í endurbættri Svartsengisvirkjun. Fyrsta djúpa rannsóknar borholan við Sveifluháls á Krýsuvíkursvæðinu var boruð sumarið 2025 og fleiri rannsóknarholur eru í bígerð á árinu 2026. HS Orka segir frekari rannsóknir vera forsendu þess að unnt sé að leggja mat á nýtingarmöguleika svæðisins til framtíðar. Unnið sé að leyfismálum og frekari undirbúningi verkefnisins á grundvelli rannsóknar - og nýtingarsamnings við Hafnarfjarðarbæ. Þá haldi undirbúningur 55 MW Hvalár virkjunar í Ófeigsfirði á Ströndum og fleiri vatnsaflsverkefna á Vestfjörðum áfram í gegnum dótturfélag HS Orku , VesturVerk.