Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Freyja seld til Djurgården

Read Full Article →

Knattspyrnukonan Freyja Stefánsdóttir hefur verið seld til sænska liðsins Djurgården frá Víkingi Reykjavík, þetta tilkynnti félagið á sínum miðlum í morgun. Freyja er uppalin í Víking og hefur leikið 106 meistaraflokksleiki fyrir félagið og skorað í þeim 30 mörk. Víkingur er sem stendur í neðsta sæti Bestu deildar kvenna en Freyja hefur skorað sex mörk í 12 leikjum liðsins á þessu tímabili. „Knattspyrnudeild Víkings óskar Freyju velgengni og hamingju í Svíþjóð og um leið þökkum við Freyju kærlega fyrir sitt framlag til félagsins. Sjáumst fljótlega í Hamingjunni Freyja," segir í tilkynningu Víkinga.

Share this article